Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 18
18 27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR Framkvæmdastjóri Arkitekta-félags Íslands, Hrólfur Karl Cela arkitekt, lýsir áhuga félagsins á undirbúningi byggingar fangels- is á Hólmsheiði í opnu bréfi til for- sætisráðherra, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra í Frétta- blaðinu 22. júlí. Fyrir það vil ég þakka og um leið útskýra hvernig að málinu er staðið. Bygging nýs fangelsis hefur verið á verkefnalista stjórnvalda í langan tíma. Of langan. Mjög brýnt er að hrinda því verkefni í framkvæmd. Um það erum við sammála. Umgjörð og búnaður fangelsis þarf að standast kröfur um ítrasta öryggi, góðan aðbúnað fanga og starfsmanna og hagkvæmni í byggingu og rekstri. Arkitektinn bendir á að umhverfi fanga skuli vera mannsæmandi enda er það þáttur í því að fangavist leiði til betrunar. Um það erum við einn- ig sammála. Þá komum við að undirbúningi verksins og þar lýsir arkitektinn áhyggjum yfir því að fyrirhugað sé að bjóða verkið út í alútboði. Það muni koma niður á gæðum og engin samkeppni verði meðal arkitekta. Þar erum við hins vegar ekki að öllu leyti sammála. Í alútboði er tiltekið verk boðið út frá upphafi til enda að gefnum ákveðnum forsendum: Hönnun útlits, efnisval, verkhönnun öll, byggingaraðferð og verð. Í alút- boði koma allir nauðsynlegir sér- fræðingar að verki sem mynda hóp um sitt útboð. Engin takmörk eru fyrir því hversu margir hópar geta boðist til að vinna verkið. Ætlunin er sú að þannig náist fram kostir samkeppni á sviði hönnunar og hagkvæmni. Nýjasta dæmið hjá ríkinu um þetta er háskólatorgið. Nú er á það að líta að fangels- isbygging er mjög sérhæft mann- virki. Fyrir alllöngu voru fengn- ir sérfræðingar á þessu sérhæfða sviði til að leggja fram ítarlegar forsendur og skilgreiningar vegna fyrirhugaðs útboðs. Þótt sjálf fangelsisteikningin bíði útfærslu þá reynir öðruvísi á arkitekt- ana sem fá verkefnið en í ýmsum öðrum verkefnum þar sem hend- ur þeirra eru ekki eins bundnar frá fyrstu stundu. Sérfræðingar á vegum stjórnarráðsins hafa bent á að hönnunarsamkeppni eigi vissu- lega vel við þegar þarfir eru ekki mjög skilgreindar og leitað er eftir „góðum“ hugmyndum. Eftir því sem verkefnið er meira skilgreint því minni þörf er á þannig sam- keppni. Að þessu leyti sýnist mér nokkur samhljómur með fram- kvæmdastjóra Arkitektafélags Íslands og ráðgjöfum okkar þótt ekki komist þeir að sömu niður- stöðu. Það er mat þeirra sérfræðinga sem ég styðst við að með aðferð alútboðs í þessu verkefni náist að slá tvær flugur í einu höggi: Hópar sérfræðinga keppast um að setja fram vandaðar hugmynd- ir og áætlanir um útlit, efni, hag- kvæmni og verð. Við úrvinnslu vegur verkkaupi og metur síðan alla þessa þætti og mun að sjálf- sögðu í tilviki fangelsisbygging- ar láta sjónarmið um vandaðan aðbúnað ráða miklu. Það er því að mínu viti of mikil einföldun að segja að alútboð hafi verið nýtt í einföld mannvirki, skemmur eða lagerhúsnæði, sem geri litlar kröfur til mannlegra þarfa eins og Hrólfur Karl heldur fram í grein sinni. Tilvitnuð ábending arkitektsins úr stefnu stjórnvalda um mann- virkjagerð þar sem segir að kapp- kosta skuli að viðhafa samkeppni og hvetja til aðkomu yngri hönn- uða er því fyllilega í heiðri höfð í alútboði. Ég hygg að við arkitektinn séum að verulegu leyti sammála um verkefnið þegar allt kemur til alls þótt ég hljóti að fallast á þá ábend- ingu hans að alútboð setji arki- tektastofum þær skorður að þær þurfa að leita samstarfs við aðra sérfræðinga sem koma að mann- virkjagerð. Þetta getur vissulega verið hamlandi en spyrja má hvort slík samhæfing í hönnun og fram- kvæmd sé ekki jafnframt styrkur fyrir alla hlutaðeigandi, einnig sjálfstætt starfandi arkitektastof- ur og því sé verkefnið í heild sinni þeim til framdráttar. Það er mat þeirra sérfræðinga sem ég styðst við að með aðferð alútboðs í þessu verkefni náist að slá tvær flugur í einu höggi. Í fimmtu og síðustu grein minni um vægi áliðnaðar á Íslandi fjalla ég um raforkuverð til stór- iðju í alþjóðlegu samhengi. Því er gjarnan haldið fram að raforkuverð til stóriðju sé langtum lægra hér á landi en gengur og gerist annars staðar. Af neðangreindum samanburði má hins vegar sjá að sú er alls ekki raunin. Eftir því sem næst verður komist eru áform uppi um 35 ný álver í heiminum á næstu árum. 25 þessara verkefna eru áformuð í Asíu, þrjú í Mið-Aust- urlöndum, fjögur í Evrópu (Rúss- landi, Aserbaídsjan og Íslandi), tvö í Kanada og eitt í Argentínu. Samanlögð framleiðslugeta þess- ara álvera yrði um 16 milljónir tonna, yrðu þau öll byggð. Raforkuverð til þeirra verk- efna sem áformuð eru í Kína og Indlandi er að meðaltali nokkuð hærra en hér á landi, eða liðlega 40 USD/MWh. Á móti vegur hins vegar að fjárfestingarkostnaður við byggingu nýs álvers í Kína er áætlaður um þriðjungur af því sem það kostar að reisa nýtt álver á Vesturlöndum. Fyrir vikið eru þessi álver með nokkuð lægri framleiðslukostn- að, þrátt fyrir hærra raforku- verð. Rafmagnskostnaður hinna tíu verkefnanna er talinn vera á bilinu 20-25 USD/MWh að meðal- tali. Þetta er liðlega 30% lægra verð en áliðnaður hér á landi er að greiða í dag miðað við núver- andi stöðu álverðs. Raunar eru aðeins tvö verkefni áformuð utan Kína eða Indlands þar sem áætl- að raforkuverð er hærra en 25 USD/MWh. Raforkufrekur iðnaður flýr hátt orkuverð í Evrópu Það vekur líka athygli að ekkert verkefni er áformað í aðildar-ríkjum ESB né í Noregi, en í umræðunni að undanförnu hefur mikið borið á samanburði á raforkuverði hér á landi og á þessum markaðssvæðum. Stað- reyndin er sú að raforkuverð í þessum löndum er farið að fæla orkufrekan iðnað frá. Raunar er það svo að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er farin að skoða alvarlega að heimila niður- greiðslu á raforkuverði til orku- freks iðnaðar til þess að sporna gegn þessari þróun. Þegar borin er saman samkeppnisstaða Íslands gagnvart öðrum löndum hvað varðar orkufrekan iðnað verður að horfa til markaðs- svæða þar sem uppbygging er að eiga sér stað – ekki markaðs- svæða þar sem þessi iðnaður er á undanhaldi. Er raforkuverð til stóriðju hér lægra? Áliðnaður Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samál-Samtaka álframleiðenda á Íslandi Þú færð Naturfrisk engiferöl í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Gotthollt! ...og svo er hann auðvitað frábær á bragðið! Naturfrisk engiferöl er hollur og bragðgóður gosdrykkur, laus við öll óæskileg aukefni, s.s. viðbættan sykur, litar- og rotvarnarefni. Naturfrisk engiferöl er frábær drykkur fyrir alla fjölskylduna sem þú verður alltaf að eiga í ísskápnum! Keppt verður í gæðum og hag- kvæmni við byggingu fangelsis Í austanverðri Afríku er fjöldi barna nú illa haldinn af hungri og mörg þeirra hafa þegar dáið eða munu deyja innan skamms. Þarna verður vafalaust einhver mesti mannlegi harmleikur sem við höfum séð í langan tíma – nema nægjanleg hjálp berist í tæka tíð. Orsakir hörmunganna eru margvíslegar. Náttúrulegar veður- farssveiflur hafa magnast að tíðni og hörku vegna gróðurhúsaáhrifa þannig að þurrkar sem áður urðu að jafnaði einu sinni á áratug eða svo verða nú á nokkurra ára fresti. Vegna mannfjölgunar hefur ásókn í land, skóga og vatn vaxið verulega og ýtt undir gróðureyð- ingu. Í einu landanna, Sómalíu, hefur lengi ríkt pólitísk óstjórn og grimmilegt ættbálkastríð. Hvort tveggja hefur grafið undan mögu- leikum venjulegs fólks til að sjá sér farborða. Ástandið í landinu hefur líka komið í veg fyrir að hægt væri að bjóða upp á þróunar- aðstoð sem gæti komið að gagni. Af nógu er því að taka þegar finna skal skýringar og útdeila ábyrgð. En eitt er dagljóst: Börnin sem þjást af hungri og þorsta og halda í líftóruna með veikum fingrum eiga þarna enga sök! Samviska okkar hlýtur að kalla á að við rétt- um þeim hjálparhönd. Sem betur fer eigum við hér á Íslandi góðra kosta völ þegar við viljum veita aðstoð. Hin afbragðs- góðu félagasamtök Unicef á Íslandi, Rauði Krossinn og Barna- heill hafa hafið söfnun til hjálp- ar fórnarlömbum þurrkanna. Hjá þessum samtökum starfar fólk sem hefur viljann og getuna til að láta framlög okkar koma að sem mestu gagni. Við getum látið pen- ingana okkar í hendur þeirra full- viss um að peningarnir komast á leiðarenda og verða notaðir með faglegum og ábyrgum hætti til að fæða börn og forða þeim frá verstu hungurvofunni. Þau kunna sem sé að bjarga börnum. Fátt er eins gott fyrir sálina og samviskuna og að hjálpa nauð- stöddum. Hér gefst tækifæri sem er bæði fljótvirkt og einfalt og kostar ekki meira en það sem þú telur þig hafa efni á. Taktu upp símann eða farðu í tölvuna og gefðu peninga í söfnun fyrir börn- in sem eru að deyja úr hungri. Þú getur verið þess fullviss að fram- lag þitt fer í að bjarga barnslífi. Barni bjargað í dag Hungursneyð Engilbert Guðmundsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands Fangelsismál Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.