Fréttablaðið - 27.07.2011, Page 28
KYNNING − AUGLÝSINGmaraþon MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20114
Einn fremsti hlaupari Ís-lands, Kári Steinn Karls-son, tekur þátt í Reykjavík-
urmaraþoninu þann 20. ágúst.
Hann hleypur hálft maraþon sem
æfingu fyrir Berlínarmaraþon-
ið, sem verður hans fyrsta heila
maraþon. „Ég stefni á að taka þátt
í Ólympíuleikunum árið 2012. Til
þess þarf ég að hlaupa heilt mara-
þon á undir tveimur klukku-
stundum og átján mínútum.“
Jöfn keppni og góðar aðstæður
eru mikilvægir þættir fyrir hann
til þess að ná settu markmiði. Því
hleypur hann heila maraþonið
erlendis, þar eru fleiri á hans reki
og með hugann við þátttöku á Ól-
ympíuleikunum.
Áður hefur Kári, sem er 25
ára, tekið þátt í yfir tíu Reykja-
víkurmaraþonum, bæði í fimm
og tíu kílómetra hlaupum. „Það
þykir gott að ná góðum grunni í
brautarhlaupum og styttri hlaup-
um, sem ég hef verið að gera und-
anfarið,“ segir Kári sem varð um
síðastliðna helgi Íslandsmeistari
í fimm þúsund metra hlaupi líkt
og undanfarin ár.
Ferill Kára hófst með götu-
hlaupum á yngri árum. Hann
tók fyrst þátt í Reykjavíkurmara-
þoninu þegar hann hljóp tíu
kílómetra aðeins níu ára. Símtal
frá Ungmannasambandi Skaga-
manna var það sem breytti öllu.
Þá var hann fimmtán ára og
höfðu þeir veitt góðri frammi-
stöðu hans athygli. „Margir öfl-
ugir langhlauparar voru á þeirra
snærum, ég þekkti nöfnin og
fannst þetta mjög spennandi.“
Kári hóf að mæta á æfingar hjá
þeim og fann þar með sína hillu í
lífinu. Fyrir sex árum gekk hann
til liðs við Breiðablik og æfir nú
tíu til þrettán sinnum í viku og
hleypur á bilinu 130 til 180 kíló-
metra á viku.
Þrátt fyrir þrotlausar æfing-
ar segir Kári: „Maraþon er ekkert
grín, margt getur farið úrskeiðið
á þessari löngu leið.“ Hann vonar
að allt muni þó ganga að óskum í
Berlín og veita honum þátttöku-
rétt á Ólympíuleikunum í Lond-
on næsta sumar.
-hþt
Stefnir ótrauður á
Ólympíuleikana
Kári Steinn ætlar að hlaupa sitt fyrsta 42 kílómetra maraþon á undir tveimur klukku-
stundum og átján mínútum og komast á Ólympíuleikana. MYND/STEFÁN
HVETJANDI SKIPULAG
Hlauparar nota í auknum
mæli farsíma með inn-
byggðu gps-mælitæki til að
fylgjast með hversu langt
þeir hlaupa. Á vefsíðunni
endomondo.com er
hægt að halda utan um
slíkar mælingar og deila því
hvernig æfingarnar ganga.
Það virkar hvetjandi fyrir
marga. Á síðunni er einnig
hægt að skrá inn hjólavega-
lengdir.
GEFÐU LÍF
Líf – styrktarfélag kvennadeildar
Landspítalans er meðal hinna
fjölmörgu góðgerðarfélaga sem
taka þátt í maraþoninu 20. ágúst.
Það verður með boðsveit í heilu
maraþoni og einnig munu fleiri
hlaupa fyrir samtökin og safna
með því áheitum. Þeir sem vilja
slást í þann hóp eru hvattir til að
skrá sig í hlaupið og fara síðan inn
á www.hlaupastyrkur.is.
Líf vinnur að því að bæta aðbúnað
og þjónustu við konur og fjöl-
skyldur þeirra á meðgöngu, í
fæðingu og sængurlegu sem og
konur sem þurfa umönnun vegna
kvensjúkdóma. Meira um það á
síðunni www.gefdulif.is.
Pro-Gastro8 hefur hjálpað þúsundum Íslendinga
að koma jafnvægi á meltinguna.
Pro-Gastro8 er stútfullt af hjálpsömum góðgerlum
ensímum og trefjum.
Pro-Gastro8
er fáanlegt á ný!
Pro-Gastro 8 fæst í apótekum, heilsubúðum
og heilsuhillum stórmarkaðanna.
D
reifing: G
engur vel ehf.
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
1
1
8
6
1
Þjálfun
Náðu settum markmiðum með
hlaupafélaganum í tækinu
(Virtual Partner). Fáðu nákvæma
vegalengd, staðsetningu, hraða,
púls, kaloríur og fleira og fleira.
Alvöru æfingar = Alvöru árangur.
Geymdu, greindu og deildu.
Þú sendir æfingaupplýsingarnar
þína í tölvuna og sérð
árangurinn strax.
ÚT Á GRANDA ÚT Á GRANDA
Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940
Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 9–16
Opið á sunnudögum í júní, júlí og ágúst.
Jaxon slöngubátur
Visa raðgreiðslur til 36 mán.
Vaxtalaust Visa lán til 6 mánaða
Leigjum einnig út bátana
Síðustu 290 cm slöngubátarnir í tösku
Verð áður 259.000 kr.
TILBOÐ 199.000 KR.
Rafmagnsmótorar 48 libs.
Verð 44.900 kr.
TILBOÐ 39.900 KR.