Fréttablaðið - 27.07.2011, Page 29

Fréttablaðið - 27.07.2011, Page 29
KYNNING − AUGLÝSING maraþon27. JÚLÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR 5 Sportís er einn af helstu styrktaraðilum Reykjavíkurmaraþonsins. Fyrirtækið er ein stærsta sportvöruheildsala landsins. Reykjavíkurmaraþonið fer fram 20. ágúst næstkom-andi. Fjölmargir styrktar- aðilar hafa lagt sitt af mörkum svo það geti orðið að veruleika. Þar á meðal heildverslunin Sportís ehf. Sölustjórinn Kristinn Kristjánsson veit allt um málið. „Við höfum verið styrktarað- ilar að Reykjavíkurmaraþoninu síðastliðin tvö ár og um áramót- in ákváðum við að framlengja samninginn til ársins 2013. Sáum ekki ástæðu til annars en að halda áfram þessu frábæra samstarfi, enda varla hægt að styðja betur við og byggja upp hlaupamenn- inguna hérlendis. Þetta er nú einu sinni stærsta hlaupið,“ útskýrir Kristinn og lætur þess getið að al- mennt láti fyrirtækið sig heilsu og heilbrigði varða. „Við höfum í gegnum tíð- ina reynt að hvetja almenning til heilbrigðara lífernis og leynt og ljóst aðstoðað íslenskt afreks- fólk í hinum og þessum íþrótt- um, svo sem handbolta, blaki, badminton, frjálsum íþróttum og vitanlega hlaupi,“ segir Kristinn. „Þannig erum við með framúr- skarandi íþróttamenn eins og til dæmis Rögnu Ingólfsdóttur bad- mintonkonu og Helgu Margréti Þorsteinsdóttur frjálsíþróttakonu á samningi auk nokkurra lands- liðsmanna í handbolta.“ Kristinn segir fyrirtækið leggja málefninu lið með ýmsum hætti, þar á meðal með íþrótta- og skó- fatnaði frá Asics. „Sportís er ein stærsta sportvöruheildsala lands- ins og hefur umboð fyrir nokk- ur af bestu vörumerkjum heims. Asics er eitt þeirra. Það er aðal- lega þekkt sem einstaklega vand- að hlaupaskómerki enda er Asics með að minnsta kosti 50 prósenta markaðshlutdeild í hlaupaskóm á Íslandi. Framan af lagði Asics hins vegar minni áherslu á íþróttafatn- að en hefur sótt í sig veðrið und- anfarin ár og framleiðir nú há- gæðavöru. Stefnan er að bjóða eingöngu upp á það besta.“ Hann segir því um að gera að kynna sér úrvalið í hlaupaskóm og fatnaði frá Asics. „Þarna eru alls kyns vörur sem henta vel til dæmis í Reykjavíkurmaraþonið og skemmtilegar nýjungar á leiðinni, sem er auðvelt að nálgast því Asics er fáanlegt í öllum helstu íþrótta- vöruverslunum landsins,“ bend- ir hann á og telur nokkrar upp: „Útilífi, Intersporti, Sportveri á Akureyri, Hafnarbúðinni á Ísa- firði, Fjarðasporti í Neskaupstað, Fjölsporti í Hafnarfirði, Tískuhús- inu á Sauðárkróki, Skóbúð Húsa- víkur, Efnalaug Suðurlands og verslunum Cintamani í Banka- stræti í Reykjavík og Austur- hrauni í Garðabæ.“ Kristinn getur þess að starfs- fólkið aðstoði viðskiptavini eftir fremsta megni við að finna vöru við sitt hæfi. Sportís er ein stærsta sportvöruheildsala landsins og hefur umboð fyrir nokkur af bestu vörumerkjum heims. Asics er eitt þeirra. asics.com Hvetjum til heilbrigðis Kristinn segir starfsfólk verslana taka vel á móti viðskiptavinum. Í þeirra hópi er hand- boltakappinn góðkunni Logi Geirsson sem er vörumerkjastjóri Asics á Íslandi. MYND/STEFÁN NOKKRIR VÆNTALEGIR FRÁ ASICS Gel-Kayano 17 Herra Gel – Kayano 17 Dömu Gel – Nimbus 13 Herra Gel – Nimbus 13 Dömu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.