Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 32
KYNNING − AUGLÝSINGmaraþon MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20118 Kaldasta maraþon í heimi er Norðurpólsmaraþonið. Það var hlaupið í fyrsta sinn árið 2002 þegar skipuleggjandi hlaupsins lagði 42 kílómetra hlaupsins að baki. Fyrst var keppt í Norðupólsmaraþoninu ári seinna þegar tíu kepp- endur þreyttu það. Síðan hafa 215 hlauparar frá 34 löndum lokið hlaupinu. Nokkuð kalt er í Norðurpólshlaupinu en kuldinn getur farið niður í mínus þrjátíu gráður. Því er sjálfsagt að vera klæddur í samræmi við það. Frostið hefur að jafnaði verið á milli 20 og 30 stig en í ár náði kuldinn mínus 32 gráðum. Árið 2006 var óvenju milt og hitastigið var við mínus tíu gráður. Næsta Norðurpólsmaraþon verður haldið hinn 7. apríl 2012. KALDASTA MARAÞON HEIMSINS Lagt er af stað frá Svalbarða þaðan sem flogið er yfir á norðurpólinn til þess að þreyta hlaupið. NORDICPHOTOS/AFP ÍS L E N SK A S IA .IS M S A 5 49 59 0 5/ 11 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU, LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN Að HLEðSLA ER VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR Á ÍSLANDI.* HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL. MJÓLKURSAMSALAN WWW.MS.IS NÚ EINNIG MEÐ KÓKOS OG SÚKKULAÐI PRÓTEINDRYKKURINN SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF OF MIKIÐ MARAÞON HLAUP SKAÐLEGT Skokk, sund og hjólreiðar minnka líkur á hjartaáfalli. Öðru máli gegnir um maraþonhlaup. Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknar Herz-zentrum Essen í Þýskalandi eru karlkyns hlaup- arar yfir fimmtugt, sem hafa hlaupið fimm eða fleiri maraþon á síðustu þremur árum, í meiri hættu á að fá kransæðahersli og hjartaáfall en jafnaldrar þeirra sem stunda ekki íþróttir. Lækn- arnir telja að þetta skýrist af auknum vöðvamassa hjartans. Rannsóknin sýnir hins vegar að jákvæð áhrif mikilla maraþon- hlaupa eru lægri blóð- þrýstingur og minna kólest- eról í blóði. Ef hlaupið er í hófi minnka líkur á hjartaáfalli hjá þessum aldurshópi. RAFMAGNAÐUR SKOKK ARI Maður einn tók sig til á þessu ári og hljóp nakinn í maraþon- hlaupi í Cincinnati-borg í Ohio í Bandaríkjunum. Þar sem hann var á Adamsklæðunum var lögreglan kölluð á staðinn til að stöðva manninn. Þegar nakti skokkarinn hlýddi ekki fyrirmæl- um lögreglunnar um að hætta hlaupinu og fylgja sér skaut hún á manninn með rafbyssu. Hann var síðan handtekinn fyrir að valda usla á almannafæri. FYRSTA MARAÞONIÐ Uppruni maraþonhlaupsins nær allt aftur til ársins 490 fyrir Krist. Grikkir áttu þá í stríði við Persa í orrustunni um Maraþon. Þegar sigur Grikkja var í höfn var maður að nafni Þersippos sendur til Aþenu til að segja frá sigrinum. Þegar hann kom á leiðarenda hné hann niður örendur. Fyrstu nútímaólympíuleikarnir fóru fram í Aþenu árið 1896 en þar var maraþonhlaup meðal keppnisgreina. Grikki að nafni Spiridon Louis kom fyrstur í mark á tímanum 2 klukkustundir, 58 mínútur og 50 sekúndur. Vegalengdin var hins vegar einungis 40 kílómetrar en frá og með Ólympíuleikunum í París árið 1924 var vegalengdin fastsett 42 kílómetrar og 195 metrar eða 26,22 mílur eins og Bandaríkjamenn tala gjarnan um. Heimild: www.visindavefur.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.