Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 50
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR38
KÖRFUBOLTI Logi Gunnarsson var
aðalmaðurinn á bak við góðan
sigur á Dönum á Norðurlanda-
mótinu á mánudagskvöldið og
það var vel við hæfi að hann næði
stórum tímamótum á landsliðs-
ferlinum í þessum fyrsta sigri
íslenska liðsins undir stjórn Sví-
ans Peters Öqvist.
Logi skoraði nefnilega sitt
þúsundasta stig fyrir landslið-
ið þegar hann gulltryggði sigur
Íslands með körfu fjórum sekúnd-
um fyrir leikslok sem kom eftir
stoðsendingu frá hinum unga
Hauki Helga Pálssyni sem er að
spila sína fyrstu landsleiki á NM.
Þarna unnu elsti og yngsti leik-
maður liðsins vel saman.
„Það var mjög mikilvægt að
vinna Danina. Þeir hafa oft verið
erfiðir og við töpuðum til dæmis
fyrir þeim á síðasta Norðurlanda-
móti í Finnlandi fyrir nokkrum
árum. Þeir voru með alla sína
bestu menn og þetta var hörku-
leikur allan tímann,“ segir Logi
og hann fagnar nýju hlutverki
sínu í liðinu.
„Ég er ekki orðinn þrítugur
en er bæði elstur og leikjahæst-
ur í liðinu. Maður er því kominn
í öðruvísi hlutverk og reynir að
miðla af reynslunni til yngri leik-
manna,“ sagði Logi sem fannst
það góðar fréttir að hann væri
búinn að brjóta þúsund stiga múr-
inn.
„Það er gaman að heyra það
og það eru víst komin tíu ár sem
maður byrjaði. Maður er búinn
að vera svolítinn tíma í þessu og
vonandi á ég mörg ár eftir,“ segir
Logi í léttum tón. „Maður reyn-
ir alltaf að gera allt sem maður
getur til þess að spila fyrir
Ísland. Ég hef haft mikla ánægju
af þessum tíu árum í landsliðinu,“
segir Logi. Logi lék sína fyrstu
landsleiki á Norðurlandamótinu
á Íslandi í ágúst 2000 og það var
einmitt í sínum þriðja landsleik á
móti Dönum sem hann braut fyrst
tíu stiga múrinn. Logi skoraði þá
11 stig í sigri á Dönum.
Logi hefur mest skorað 30 stig í
einum landsleik en það gerði hann
í sigri í vináttulandsleik á móti
Norðmönnum í DHL-höllinni í
maí 2003. Hann hefur tvisvar náð
að skora 29 stig í keppnislands-
leik, fyrst á móti Slóveníu á EM í
Laugardalshöllinni 29. nóvember
2000 og svo í sigri á San Marínó
á Smáþjóðaleikunum 1. júní 2001.
Logi braut 20 stiga múrinn í
fjórtánda sinn á móti Dönum en
það var frábær frammistaða hans
í lokaleikhlutanum (11 af 24 stig-
um íslenska liðsins) sem lagði
grunninn að sigri íslenska liðsins.
Logi tók af skarið á móti Dönum
í forföllum Jóns Arnórs Stefáns-
sonar en hann segir að liðið sakni
Jóns.
„Það var svolítil synd að í eitt
af fáu skiptunum sem allir gefa
kost á sér þá missum við Jón
Arnór í fyrsta leikhluta í fyrsta
leik. Við höfum ekki oft átt svona
góðan möguleika á að vinna
Svíana eins og við áttum núna.
Við vorum í jöfnum leik fram í
seinni hálfleik og ég held að það
sé ekki spurning að ef hann hefði
verið með okkur þá hefðum við
átt góða möguleika á að vinna
Svíana,“ segir Logi.
Logi er ánægður með nýjan
þjálfara, Svíann Peter Öqvist.
„Mér líst mjög vel á nýja þjálfar-
ann. Hann er mjög skipulagður og
við erum að venjast því að vinna
eftir hans skipulagi. Það er að
verða betra og betra með hverjum
leiknum. Þetta lofar mjög góðu,“
segir Logi og hann talar um að
hraður leikstíll liðsins undir hans
stjórn henti sér vel en að auðvitað
þurfi hann tíma eins og aðrir að
venjast nýjum stíl.
„Það er mjög mikilvægt fyrir
yngri strákana og fyrir okkur
sem lið að fá þetta Norðurlanda-
mót til þess að fá tækifæri til
að spila saman. Við erum að
taka fyrstu skrefin í undirbún-
ingi fyrir undankeppni Evrópu-
mótsins næsta haust. Svo verður
gaman að sjá í framtíðinni hvern-
ig þessi kjarni helst og vonandi
helst hann lengi. Við erum sam-
stilltir og þetta er góður hópur,“
segir Logi en hann er einnig
þakklátur þeim Friðriki Inga
Rúnarssyni og Sigurði Ingimund-
arsyni, forverum Peter.
„Þeir voru mínir þjálfarar í
landsliðinu í tíu ár og hafa hjálp-
að mér mjög mikið á mínum ferli
af því að ég hef fengið að spila
svo mikið með landsliðinu. Ég
hef komist í atvinnumennskuna í
gegnum landsleikina sem ég hef
spilað. Ég er þeim því mjög þakk-
látur að hafa komið mér á fram-
færi. Það hefur gefið mér mikið í
gegnum tíðina að spila með lands-
liðinu og þess vegna hef ég allt-
af gefið kost á mér,“ segir Logi
en það hefur oft haft sín áhrif á
atvinnumannsferilinn.
„Ég hef í einhver skipti þurft
að súpa seyðið af því að vera ekki
með í undirbúningstímabilinu hjá
mínum liðum en það er ákveðin
fórn hjá manni. Það er rosalega
gaman að vera í þessum félags-
skap og maður er stoltur af því að
spila fyrir Ísland. Ég viðurkenni
það alveg að það hefur stundum
ekki hentað vel að sleppa undir-
búningstímabilinu með liðinu til
þess að fara að spila landsleiki en
ég hef alltaf gert það,“ segir Logi.
Íslenska landsliðið mætir Nor-
egi í lokaleik sínum í dag og
tryggir sér bronsið með sigri.
„Það verður ekki auðveldur leik-
ur á móti Norðmönnum. Svíarnir
voru í erfiðleikum með þá framan
af og það má ekkert slaka á. Við
verðum að vera mjög vel undir-
búnir fyrir þann leik og vinna þá
á morgun.“ ooj@frettabladid.is
Logi yfir þúsund stiga múrinn
Logi Gunnarsson er nú kominn í fámennan en góðan hóp þeirra sem hafa skorað þúsund stig fyrir lands-
lið. Hann fór á kostum gegn Dönum og náði tímamótunum í fyrsta sigri liðsins undir stjórn Peters Öqvist.
Logi fagnar nýju hlutverki í landsliðinu og stefnir á að spila í mörg ár til viðbótar með liðinu.
79 LEIKIR OG 1.000 STIG Logi Gunnarsson í miðbæ Sundvall í gær. MYND/KRISTINN GEIR PÁLSSON
Logi og landsliðið
Stigaskor Loga eftir leikjum:
30 stig eða meira 1 leikur
26-29 stig 4 leikir
20-25 stig 9 leikir
16-19 stig 8 leikir
10-15 stig 27 leikir
1-9 stig 29 leikir
0 stig 1 leikur
Stigaskor Loga eftir árum:
2000 - 10,9 í leik (7 leikir/76 stig)
2001 - 13,5 (13/175)
2002 - 13,7 (3/41)
2003 - 15,5 (8/124)
2005 - 10,5 (6/63)
2006 - 12,7 (13/165)
2007 - 14,4 (9/130)
2008 - 10,5 (8/84)
2009 - 12,0 (9/108)
2011 - 11,3 (3/34)
Stigaskor Loga eftir þjálfurum:
Friðrik Ingi 13,4 í leik (31 leikir/416)
Sigurður Ingimundarson 12,2 (45/550)
Peter Öqvist 11,3 (3/34 stig)
Stigaskor Loga eftir keppnum:
Smáþjóðal. 13,9 (20 leikir/278 stig)
Vináttuleikir 12,7 í leik (16/203)
Evrópumót 12,4 (29/359)
Norðurlandamót 11,4 (14/160)
Flest stig fyrir landsliðið 1983-2011:
Guðmundur Bragason 2163 (12,8 í leik)
Valur Ingimundarson 1647 (12,4)*
Teitur Örlygsson 1494 (12,8)
Herbert Arnarson 1129 (10,3)
Guðjón Skúlason 1071 (8,9)
Logi Gunnarsson 1000 (12,7)
Jón Kr. Gíslason 935 (6,6)*
Falur Harðarson 735 (7,0)
Pálmar Sigurðsson 715 (10,7)*
Friðrik Stefánsson 654 (5,8)
*Vantar hluta landsliðsferilsins
FÓTBOLTI Þórsarar taka á móti ÍBV í undan-
úrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu í
kvöld. Þórsarar geta komist í úrslit keppninnar
í fyrsta skipti en Eyjamenn hafa unnið bikarinn
fjórum sinnum, síðast árið 1998.
„Ég held að menn séu nokkuð spenntir fyrir
þessu þar sem við erum ekki í undanúrslitum
á hverjum degi. Ég vona bara að fólk átti sig á
því. Ef það kemur ekki á þennan leik þá veit ég
ekki hvenær það ætti að koma. Við ætlum að
sýna hvað við getum,“ segir Páll Viðar Gísla-
son þjálfari Þórs.
Staða liðanna í deildinni er ólík. Eyjamenn
eru í 3. sæti í toppbaráttunni en nýliðar Þórs
berjast fyrir sæti sínu í 9. sæti deildarinnar.
Liðin mættust á Þórsvelli í 6. umferð Pepsi-
deildar og þá höfðu Þórsarar betur 2-1.
„Þeir segjast örugglega ekki hafa verið með
allan sinn mannskap og þar fram eftir götun-
um. Við erum ekkert að velta okkur upp úr því.
Það er okkar lið sem við þurfum að vera með
á hreinu og að allir séu í gírnum. Þeir eru allt-
af með mjög sterkt lið sama hvernig þeir stilla
upp.“
Eyjamenn hafa tapað mikilvægum stigum
gegn liðum í neðri hluta deildarinnar í sumar,
litlu liðunum títtnefndu. Páll Viðar segir Þórs-
ara ekki hafa tíma til þess að pirra sig á svo-
leiðis umræðu.
„Við værum ekki að gera neitt annað ef við
værum að pirra okkur á því að vera lítið í svið-
ljósinu fyrir utan að vera nýliðar, lítið lið með
ljótan völl og einbýlishús á vallarsvæðinu. Við
værum þá uppteknir af allt öðrum hlutum en
við ættum að vera,“ segir Páll Viðar.
Páll Viðar var í liði KA sem tapaði í bikar-
úrslitunum árið 1992 gegn Val. Þá var Gunnar
Már Guðmundsson í tapliði Fjölnis í úrslitum
2007 og 2008. Aðrir hafa ekki komist í bikar-
úrslit.
Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, á
góðar minningar úr bikarnum, þó ekki með
ÍBV. Hann varð bikarmeistari með KR árið
1994 og með FH árið 2007. Hann var hins vegar
í tapliði Eyjamanna 1996 og 1997. Þegar Eyja-
menn unnu loks bikarinn 1998 var Tryggvi far-
inn í atvinnumennsku.
„Menn eru vel stemmdir. Það er langt síðan
við komumst í úrslit. Það er alltaf extra kikk í
leikmönnum síðasta leik fyrir Þjóðhátíð hvort
sem það er í deild eða bikar,“ segir Tryggvi.
„Okkur langar svakalega mikið að hefna
fyrir tapið fyrir norðan í deildinni. Það var svo-
lítið sárt tap enda töldum við okkur eiga að fá
meira út úr þeim leik,“ segir markaskorarinn
sem gefur ekki mikið fyrir þá skoðun blaða-
manns að meiri pressa sé á Eyjamönnum.
„Þessi leikur snýst um það að komast í stóra
úrslitaleikinn á Laugardalsvellinum. Ég veit
ekkert hvort liðið er stærra eða minna. Þetta
eru tvö góð fótboltalið, tvö úrvalsdeildarlið,“
segir Tryggvi.
Allir leikmenn eru heilir hjá báðum liðum
og enginn í leikbanni. Því er von á sterkustu
liðum beggja félaga á Þórsvelli í kvöld Leikur-
inn hefst klukkan 19.15.
- ktd
Það verður sannkallaður landsbyggðarslagur þegar Þór tekur á móti ÍBV í undanúrslitum Valitor-bikars karla:
Bikarúrslitaleikurinn í húfi fyrir norðan
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnars-
son vill frekar fara til Rosenborg
en Vålerenga samkvæmt frétt
Aftonbladet í gær. Bæði lið vilja
kaupa íslenska framherjann frá
Stabæk sem þarf að sjá á eftir
sínum besta leikmanni vegna
fjárhagsvandræða.
„Hann vill fara til Rosenborg.
Hann er búinn að ná samkomu-
lagi við Rosenborg og nú þurfa
félögin bara að semja um kaup-
verðið,“ sagði Arnór Guðjohn-
sen við Aftonbladet en Arnór er
umboðsmaður Veigars Páls.
Veigar Páll vildi ekki tjá sig um
málið við blaðamann Aftonbladet
ekki frekar en forráðamenn Sta-
bæk-liðsins. - óój
Veigar Páll Gunnarsson:
Búinn að velja
Rosenborg
VEIGAR PÁLL Hefur alls komið að 11
mörkum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PÁLL VIÐAR GÍSLASON Fór í bikarúrslitaleikinn með KA
fyrir 19 árum síðan. wFRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Maður reynir
alltaf að gera allt sem
maður getur til þess að spila
fyrir Ísland. Ég hef haft mikla
ánægju af þessum tíu árum í
landsliðinu
LOGI GUNNARSSON
LANDSLIÐSMAÐUR