Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 54
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR42
GOTT Á GRILLIÐ
„Ég held að við getum staðfest
að samfestingaæðið sé komið til
Íslands,“ segir Karl Garðarsson,
eigandi vefverslunarinnar Weezo.
is sem flytur inn svokallaða heil-
galla fyrir fullorðna.
Þessir bómullarsamfestingar
með rennilás og hettu hafa sleg-
ið í gegn í nágrannalöndum okkar
og ekki langt síðan við hlógum að
þessari tískubylgju þeirra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá söluað-
ilum samfestingsins hér á landi
rennur hann út eins og heitar
lummur.
„Það eru ekki nema þrjár vikur
síðan við opnuðum vefverslunina
okkar en það er brjálað að gera
og við seljum gallana í hundraða-
tali þessa dagana,“ segir Karl og
hefur greint ákveðna þróun í sölu-
munstrinu hér á landi en hann vill
meina að heilu bæirnir á lands-
byggðinni séu að kaupa sér flíkina.
„Þetta greinilega slær í gegn í
ákveðnum hópum og við höfum
verið að senda gríðarlegt magn út
á land. Sérstaklega í sömu bæina
og til dæmis eiga margir á Akur-
eyri núna heilgalla í fataskápnum.
Þetta smitar út frá sér og er að
verða stór tískubóla núna.“
Davíð Matthíasson, markaðs-
stjóri Europris-búðanna, sem einn-
ig selur svipaða útgáfu af samfest-
ingnum, tekur undir með Karli.
„Við byrjuðum að selja þessa galla
í fyrrasumar og má segja að salan
hafi byrjað strax með látum. Þeir
hafa selst gríðarlega vel í sumar
og við eigum ekki mikið eftir á
lager núna,“ segir Davíð og bætir
við að það komi honum sérstaklega
á óvart að fullorðna fólkið kaupir
gallana til jafns við ungu kynslóð-
ina. „Þetta eru svona heimagallar
í sumarbústaðinn og útileguna.
Einnig vorum við að moka þeim
út fyrir jólin í fyrra.“
Karl vill meina að gallarn-
ir henti einkar vel við íslenskar
aðstæður en bleiki liturinn er vin-
sælastur um þessar mundir.
„Gallarnir eru nothæfir allt
árið um kring, innandyra sem
utan. Þeir eru kannski sérstaklega
þægilegir í útileguna og á svölum
sumarkvöldum,“ segir Karl og við-
urkennir að hann eigi einn rennd-
an samfesting inni í skáp. „Það er
ekki hægt að segja annað en að
flíkin sé mjög þægileg.“
alfrun@frettabladid.is
KARL GARÐARSSON: ÞETTA SMITAR ÚT FRÁ SÉR
LANDSBYGGÐIN HREINSAR
UPP LITRÍKA SAMFESTINGA
TÍSKUBYLGJA Renndir bómullarsamfestingar með hettu eru vinsælir hjá Íslendingum í sumar. Systkinin Sigríður Anna og Karl
Garðarsbörn, eigendur vefverslunarinnar weezo.is, selja heilgallana í hundraðatali þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Fréttablaðið greindi nýlega frá
stofnun Bandalags íslenskra
tónleikahaldara, BÍT. Félagið
ætlar að standa vörð um hags-
muni tónleikahaldara enda getur
þessi bransi verið bæði erfiður
og áhættusamur. Einn þeirra sem
fengu boð um að ganga til liðs við
bandalagið var Kári Sturluson sem
er margreyndur tónleikahaldari og
flutti síðast til landsins írska Ósk-
arsverðlaunahafann Glen Hansard.
Einhverra hluta vegna sá
Kári ekki ástæðu til að
ganga til liðs við Ísleif
B. Þórhallsson, Grím
Atlason og félaga í
BÍT og verður hann
því áfram einn á
báti í íslensku
tónleika-
haldi.
Skemmtikrafturinn Steindi Jr. gerði
sér lítið fyrir og fór beint í efsta sæti
Tónlistans sína fyrstu viku á lista
með lagið Gull af mönnum, sem
hann syngur með Matthíasi Matth-
íassyni. Lagið er tekið af plötunni
Án djóks – samt djók sem kom út
fyrir skömmu og hefur að
geyma lög úr þáttunum
Steindinn okkar. Með
árangri sínum skákaði
Steindi engum öðrum
en poppstjörnunni
Páli Óskari
Hjálmtýssyni
sem er einnig
nýkominn
á listann
með
þjóðhátíð-
arlag sitt,
La Dolce
Vita. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það verður gaman að tækla þetta aftur,“ segir
Bergur Ísleifsson, en hann tekur við ritstjórn
Mynda mánaðarins af Erlingi Grétari Einars-
syni, en sá síðarnefndi tók við blaðinu af Bergi
árið 2006. Bergur hóf útgáfu á Myndböndum
mánaðarins fyrir þrettán árum, en hætti árið
2006 og fór þá að sinna öðrum verkefnum.
Erlingur Grétar tók við blaðinu og sagði í viðtali
við Fréttablaðið á mánudag að hann hefði sett
mikinn metnað í blaðið. „Ég ætla að reyna að
viðhalda sama metnaði. Auðvitað fylgja nýjum
mönnum ný vinnubrögð, en ég ætla að gera mitt
besta til þess að koma minni þekkingu um kvik-
myndir á framfæri,“ segir Bergur.
Blaðið hét áður Myndbönd mánaðarins
og fjallaði þá eingöngu um kvikmyndir sem
komnar voru út á myndbandi. Nú fjallar það
hins vegar bæði um myndir sem sýndar eru í
kvikmyndahúsum og þær sem komnar eru út á
myndbönd. Bergur segist ánægður með það og
að hann sé að taka við því blaði sem hann ætl-
aði upphaflega að vera með. „Blaðið átti alltaf
að vera bæði um kvikmyndir og myndbönd, en
þetta slitnaði frá á sínum tíma. Það er gaman
að taka við þessu aftur núna þegar blaðið
fjallar um hvort tveggja,“ segir Berg-
ur. Hans fyrsta blað, ef svo má kalla,
kemur út í september og segir hann
undirbúninginn hefjast eftir verslun-
armannahelgina. „Ég fer bara á fullt
að ganga frá næsta blaði eftir helgi,“
segir Bergur. -ka
Sest aftur í ritstjórastólinn
HLAKKAR TIL AÐ SNÚA AFTUR Bergur
Ísleifsson hóf útgáfu á Mynd-
böndum mánaðarins fyrir
þrettán árum. Hann tekur nú
aftur við ritstjórn blaðsins
af Erlingi Grétari Einars-
syni, en hann hefur
ritstýrt blaðinu í tæp
fimm ár.
Stjórn Mýrarboltafélags Íslands hefur
skrifað undir samning við Eyjólf Sverris-
son um að hann þjálfi bæði karla- og
kvennalandslið Íslands í mýrarbolta.
„Þetta er ánægjulegt skref. Mig hefur í
nokkurn tíma vantað þægilega aukavinnu
sem borgar vel, og þetta djobb uppfyllir
þær kröfur,” segir Eyjólfur, sem þjálfar
einnig íslenska U-21 árs landsliðið.
„Ég man að einu sinni var ég á landbún-
aðarsýningu í nágrenni við Stuttgart og þar
sá ég fjögur ægileg svín takast á í stíu. Þar
sýndist mér sá feitasti hafa ótvíræða yfir-
burði og því er líklegt að ég muni leggja
á það ríka áherslu að landsliðsmennirnir
borði kolvetna- og fituríka fæðu. Leikskipu-
lag hefur líklega minni áhrif,“ segir hann.
Jóhann Bæring Gunnarsson, aðal-
ritari Mýrarboltafélags Íslands og
drullusokkur, er ánægður með ráðn-
inguna.
„Stórum áfanga er náð. Eyjólfur er
búinn að vera í drullumálum síðustu
misseri og samkvæmt þessum samn-
ingi verður hann það áfram.“
Vonast er til að Eyjólfur geti
komið á mýrarboltamótið á Ísa-
firði um næstu helgi til að velja
landsliðsmenn beggja liða.
MÝRARBOLTI Stjórn Mýrarbolta-
félags Íslands hefur skrifað undir
samning við Eyjólf Sverrisson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LANDSLIÐÞJÁLFARI Eyjólfur
Sverrisson þjálfar karla- og
kvennalandsliðin í mýrarbolta.
„Mér finnst mjög gott að grilla
kjúklingabringur með spínati og
fetaosti.“
Bjartey Sveinsdóttir úr hljómsveitinni Ylju.
Landsliðsþjálfari í mýrarbolta
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín