Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2011, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 19.08.2011, Qupperneq 2
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR2 DÝRALÍF Svo virðist sem Fréttablaðið hafi farið á mis við sjálfan aldursforsetann í leit sinni að elsta ketti landsins því kötturinn Keli varð 23 ára í júlí og er því ári eldri en Öskubuska sem fjallað var um í gær. Keli er víst afar athyglissjúkur og hefur lengi þráð að komast í fjölmiðla en þeirri athygli hefur verið mjög misskipt á heimilinu því eigandi hans er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utan- ríkisráðherra og fyrrverandi formaður Samfylk- ingarinnar. En nú virðist hans tími kominn. „Þegar fjölmiðlamenn komu hingað var hann ekki lengi að taka við sér og sótti mjög í mynda- vélarnar þannig að það er kominn tími til þess að hann fái líka sína 15 mínútna frægð eins og nú er svo mikið í tísku,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún fékk Kela þegar hann var aðeins mán- aðargamall og því verður mikill sjónarsvipt- ir af honum en óneitanlega nálgast hans hinsta stund. „Já, hann er orðinn lúinn, heyrir illa og er gigtveikur og kominn með elliglöp; stundum man hann ekki hvort hann er búinn að borða. En hann fer alltaf út og labbar aðeins um.“ Keli kemst ekki frá því að verða settur í póli- tískt samhengi en hann fæddist í stjórnartíð rík- isstjórnar Þorsteins Pálssonar og hefur lifað af ellefu ríkisstjórnir. Geri aðrir kettir betur. - jse Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, á kött sem er eldri en læðan Öskubuska: Kötturinn Keli baðar sig loksins í sviðsljósinu ALLRA KATTA ELSTUR Kötturinn Keli hefur lengi þráð sviðsljósið en því var einatt beint að eiganda hans. En nú er hans tími kominn eftir 23 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Foreldrar korna- barns skildu það eftir á gang- stétt fyrir utan hús sitt í gær- morgun. Vegfarendur sem komu að barninu kölluðu á lögreglu. Foreldrar barnsins voru farnir í blaðaútburð og höfðu samband við lögreglu um klukkustund eftir að barnið fannst sitjandi í bílstól, grátandi og kalt. Foreldrarnir fengu barnið fljótt aftur í sína umsjá en barna- verndaryfirvöld hafa málið til meðferðar. - shá Vegfarendur fundu lítið barn: Gleymdu barni sínu á gangstétt SPURNING DAGSINS Smurostar við öll tækifæri ms.is ...tvær nýjar bragðtegundir H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA - 11 -0 50 9 NÁTTÚRA Árið 1971 hóf Baldur Sigurðsson, sem er frumkvöðull í ferðamennsku á jöklum, ferðir frá Dyngjuhálsi og var hann þar með snjóbíla og fleiri tæki sem notuð voru til ferða um Kverk- fjöll, Bárðar bungu og Grímsvötn á Vatnajökli til fjölda ára. Um haustið, það ár, bar svo til að þegar hann ætlaði að ferja öll tæki og tól til byggða varð hann að skilja eftir farangursvagn nokkurn sem hann- aður er til að hafa aftan í snjóbíla. „Það átti að ná í hann helgina eftir og þá fór pabbi við annan mann en þeir urðu frá að hverfa vegna óveðurs,“ rifjar Sigurður, sonur Baldurs, upp. Síðan fór Sig- urður sjálfur á vettvang en þá var allt komið undir hvíta fönn. Í hönd fór mik- ill snjóavetur svo ekki sást tangur né tetur af vagninum og fóru þeir feðgar þó á hverju hausti að leita að honum með stöngum líkt og gert er við leit eftir snjóflóð. „Við sögðum í gríni að það væri engu líkara en jökullinn hefði bara stol- ið vagninum meðan við vorum í byggð,“ segir Sigurður. Baldur er nokkuð kominn á aldur svo hann hafði ekki farið á svæðið í nokkur ár þar til í síðustu viku að hann ákvað að fara þang- að með Sigurði syni sínum. Og þá dró heldur betur til tíðinda. „Ég er að labba þarna meðfram jöklinum þegar ég sé glytta í vagninn upp úr sandinum, svo ég kalla í pabba og hann átti náttúrlega erfitt með að trúa þessu, reyndar var hann varla enn farinn að trúa þessu þótt hann stæði uppi á sjálfum vagnin- um.“ Sigurður hafði labbað yfir þetta svæði í fyrrahaust en þá lá um tveggja metra snjór yfir því. Með vagninum fundust þrír hálffullir bensínbrúsar. „Pabbi sagðist muna það að hann hefði keypt lítrann á 16 krónur svo verðið hefur heldur betur hækkað þessi 40 ár sem þessi brúsar hafa dvalið í skaflinum,“ segir Sigurð- ur. Síðast liðið föstudagskvöld fór síðan Sigurður með vösku liði og gróf vagninn upp en svo kalt er orðið á fjöllum að það snjóaði á þá meðan á verkinu stóð. Nú er þessu 40 ára volki vagns- ins lokið og hann kominn til byggða. Sigurður ætlar að gera hann upp og þótt vagninn fari kannski ekki aftur hátt upp á fjöll verður honum engu að síður gert hátt undir höfði. jse@frettabladid.is Fundu dráttarvagn eftir 40 ár undir fönn Baldur Sigurðsson varð að skilja dráttarvagn eftir uppi á fjöllum haustið 1971. Hann komst ekki í leitirnar fyrr en í síðustu viku. Í honum voru hálffullir bensínbrúsar en það eldsneyti var keypt á 16 krónur lítrann. BALDUR SIGURÐSSON BENSÍNBRÚSARNIR Ef heilt væri gætu þeir selt bensínið í þessum brúsum með miklum hagnaði en það var keypt á 16 krónur lítrann. VAGNINN MOKAÐUR UPP Það snjóaði á kappana meðan þeir mokuðu vagninn upp. Fremstur er Hreinn Skagfjörð, fyrir aftan hann er Einar Logi Vilhjálmsson og síðan er Sigurður Baldursson á gröfunni. MYND/SIGURGEIR HARALDSSON HEILBRIGÐISMÁL Svo virðist sem hægt hafi á vexti notkunar lyfja við ADHD, athyglisbresti og ofvirkni. Hertar aðgerðir landlæknisembættisins og fleiri opin- berra stofnana gegn ávísun þeirra voru að fullu komn- ar í framkvæmd 1. maí síðastliðinn, að því er Geir Gunnlaugsson landlæknir greinir frá. „Það voru gerðar ákveðnar kröfur um hverjir megi ávísa þessum lyfjum, um frumgreiningu og um hverjir megi skrifa út lyfjaskírteini. Þetta varðar um 4.500 einstaklinga og þetta var gríðar leg vinna. Það var gripið til þessara aðgerða síðast liðið haust og það var síðan 1. maí sem þær voru að fullu komnar í fram- kvæmd. Það er ákveðinn fjöldi sem þarf á þessum lyfjum að halda en samtímis þarf að koma í veg fyrir flæðið til þeirra sem ekki þurfa á þeim að halda,“ segir Geir. Notkun ADHD-lyfja er umtalsvert meiri hér miðað við höfðatölu en í Danmörku. Þar hefur hins vegar notkunin tuttugufaldast á tólf árum samkvæmt frétta- vef danska blaðsins Jyllandsposten. „Notkunin hér hefur farið vaxandi undanfarin fimm ár en í Danmörku hefur hún vaxið hraðar. Notk- unin hefur almennt farið vaxandi á Norðurlöndunum. Vonandi erum við búin að ná toppnum,“ segir Geir. - ibs Hertar aðgerðir gegn ávísun á lyf við athyglisbresti og ofvirkni: Hægist á vexti lyfjanotkunar ADHD-LYF Ávísun undanfarin fimm ár í skilgreindum dag- skömmtum á hverja 1.000 íbúa á dag. Sigurður Kári, ertu nokkuð hlynntur innflutningi á svörtum sauðum? „Nei, það er nú nóg af þeim fyrir svo það er ekki á það bætandi.“ Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að heimila eigi innflutning á landbúnaðarvörum. VEIÐI Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst á morgun á sama tíma og útlit er fyrir að afkomu- brestur hafi orðið hjá báðum stofn- unum vegna óblíðrar veðráttu framan af sumri. Í tilkynningu frá Umhverfis- stofnun segir að þegar um 90 prósent af veiðiskýrslum fyrir árið 2010 hafi skilað sér sé skráð heildar veiði á grágæs um 46 þús- und fuglar og á heiðagæs um 17 þúsund fuglar. Árið 2009 var veið- in samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir. Helsingja er leyfilegt að veiða frá 1. september utan Skaftafells- sýslna, þar sem veiði hefst 25. sept- ember. Blesgæs er alfriðuð. - shá Gæsaveiðin hefst á morgun: Afkomubrestur skyggir á veiði VEIÐIN HEFST Veiði á gæs hefur aukist síðustu ár. MYND/AÞS SAMGÖNGUMÁL Vetraráætlun Strætó 2011-2012 tekur gildi á sunnudaginn. Ferðum fjölgar á flestum leiðum og verður tíðni þeirra svipuð og liðinn vetur. Leiðir 1 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti frá kl. 6.30 til 18.00 á virkum dögum í stað 30 mínútna í sumar. Leiðir 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 aka einnig á 15 mínútna fresti, en einungis á annatímum, frá klukk- an 6.30 til 9.00 og 14.00 til 18.00 á virkum dögum. Nánari upplýs- ingar um vetraráætlun Strætó er að finna á vefnum straeto.is. - shá Vetraráætlun tekur gildi: Strætó eykur tíðni ferða ANNATÍMI Nú þegar skólar hefjast og sumarleyfum lýkur fjölgar ferðum hjá Strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SLYS Björgunarsveitarmenn komu svissneskum ferðamanni í Kverk- fjöllum til bjargar um sjöleytið í gærkvöldi. Ís hafði fallið á fætur mannsins með þeim afleiðingum að báðir fætur brotnuðu. Maðurinn var á ferð í Kverk- fjöllum með tveimur samlöndum sínum þegar slysið varð um klukkan tvö í gær. Þyrla lenti á í grennd við slysstaðinn á sjötta tímanum en flytja þurfti björg- unarsveitarmenn í áföngum frá Sigurðarskála á slysstað. Þaðan báru björgunarmenn hinn slasaða um 500 metra yfir erfitt landslag og upp bratt ein- stigi þangað sem hægt var að flytja hann burt. - mþl Ferðamaður slasaðist á jökli: Bjargað úr Kverkfjöllum Ávísanir ADHD lyfja á Íslandi og í Danmörku 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 16 14 12 10 8 6 4 2 0 Danmörk Ísland D D D /1 .0 00 íb úa /d ag

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.