Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 6
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR6 Krakkafjör á Korputorgi alla helgina • Frítt í skemmtileg leiktæki og í Krakkahöllina. • Hundasýning yngstu hundaeigendanna hjá Gæludýr.is á sunnudaginn Parísarhjól - Klessubílar - hoppukastalar og margt fleira VIÐSKIPTI Ef áform Geogreen- house um að reisa 3,3 hektara gróðurhús á næsta ári verða að veruleika þýðir það að tómata- ræktun á Íslandi mun tvöfaldast, að sögn Bjarna Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Sambands garð- yrkjubænda. Öll tómataræktun í landinu fer nú fram á samtals fjórum hekturum. Fyrirtækið áformar að reisa í framtíðinni tuttugu hektara gróðurhús og segir Bjarni það vera álíka og allt það svæði sem notað er til grænmetisræktunar á landinu í dag. Hann segir það ánægjuefni ef vel takist til við útflutning tómata en að enn verði að svara mikil vægum spurningum. „Ég veit til þess að í Hollandi, til dæmis, geta menn ræktað tómata með mun lægri kostnaði og eru nær markaðssvæðinu en þar hafa þessi fyrirtæki lent í verulegum vandræðum, reyndar eru bank- arnir að yfirtaka mörg þeirra. Hvað segir okkur að ræktend- um hér á landi takist betur til?“ spyr Bjarni. „Eins þarf að svara þeirri spurningu hvað eigi að gera ef gengi íslensku krónunnar hækkar verulega. Á þá að reyna að selja tómatana á innanlands- markaði?“ Enn fremur spyr Bjarni hvort ekki sé verið að mismuna fyrir- tækjum í þessum rekstri ef Geo- greenhouse geti komist hjá dreif- ingarkostnaði með því að hafa gróðurhús sín við túnfótinn hjá jarðvarmavirkjun. „Raforku- kostnaður er um 25 til 30 pró- sent af rekstrarkostnaði garð- yrkjubænda svo það er töluverð forgjöf ef einhver losnar við þann bagga,“ segir hann. Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, segir framleiðslu- getu Reykjanesvirkjunar og virkjunarinnar í Svartsengi sam- tals um 170 megavött og magns- ins vegna ætti ekki að vera vand- kvæðum bundið að semja við Geogreenhouse. Fyrir tækið muni þurfa 6 megavött fyrir fyrsta áfanga en 36 megavött fyrir þriðja og síðasta áfang- ann, sem óvíst sé hvenær hefj- ist. „Við getum ekki, frekar en önnur orkufyrirtæki, tekið frá orku fyrir einhverja sem ætla kannski að nota hana í framtíð- inni. Ef komið væri hins vegar til okkar með bindandi samning með skuldbindingum um 36 megavött myndum við gera eitthvað í því,“ segir Júlíus. jse@frettabladid.is Tómataræktun gæti tvöfaldast á næsta ári Ef áform Geogreenhouse ganga eftir mun tómataræktun á Íslandi tvöfaldast strax á næsta ári. Í lokaáfanga er gert ráð fyrir ræktun á álíka svæði og öllu því sem notað er til grænmetisræktunar. HS Orka frátekur ekki orku. Í GRÓÐURHÚSI Á SUÐURLANDI Gróðurhús landsins þekja samtals um 20 hektara, sem er einmitt sú stærð sem á að vera á gróðurhúsi Geogreenhouse þegar loka- áfanga er náð. MYND/HEIÐA Raforkukostnaður er um 25 til 30 prósent af rekstrarkostnaði garðyrkju- bænda svo það er töluverð forgjöf ef einhver losnar við þann bagga. BJARNI JÓNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMBANDS GARÐYRKJUBÆNDA EVRÓPUMÁL Orri Hauksson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins (SI), segir að árétting á skoðun samtakanna um að umsóknar ferlinu vegna umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu skuli lokið, og birt var á vef samtakanna í gær, sé ekki svar við orðum Bjarna Benedikts sonar, formanns Sjálf- stæðisflokksins, frekar en öðrum einstaklingum í samfélaginu. Eins og kunnugt er sagði Bjarni í byrj- un vikunnar að draga ætti umsókn Íslands til baka. Í yfirlýsingu samtakanna segir að SI telji mikilvægt að umsóknar- ferlinu sé haldið áfram af fullum heilindum og í náinni samvinnu við atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila, enda kunni hagfelldur aðildar- samningur að verða fyrirtækjum og heimilum til mikilla hagsbóta. Þá telja samtökin engar líkur til að samningur, „þar sem veiga miklum hagsmunum verður fórnað, verði samþykktur í þjóðaratkvæða- greiðslu“. „Þessi skoðun hefur lengi legið fyrir. Undanfarið hefur verið rætt, og þá úr ýmsum áttum, að draga í land. Þess vegna þótti okkur ástæða til að árétta það sem var samþykkt á Iðnþingi í mars. Við nefnum engan á nafn heldur vildum við koma þessu á framfæri fyrst þessi umræða er ofarlega á baugi,“ segir Orri. - shá Samtök iðnaðarins hvetja til þess að aðildarviðræðum við ESB verði lokið: Ekki svar við skoðun formanns BJARNI BENEDIKTSSON ORRI HAUKSSON BRETLAND, AP Breska lögreglan handtók í gær James Des- borough, fyrrverandi blaðamann á News of the World, sem árið 2009 fékk verðlaun fyrir skrif sín um frægðarfólk í blaðið. Handtakan tengist rannsókn lögreglunnar á símanjósnum, sem stundaðar voru á blaðinu. Des- borough er þrettándi maðurinn sem handtekinn er í tengslum við málið, en ákærur á hendur einum þeirra hafa verið felldar niður. Útgáfu blaðsins var hætt þegar málið komst í hámæli í sumar. - gb Símanjósnir í Bretlandi: Blaðamaður handtekinn DÓMSMÁL Gæsluvarðhald var í vikunni framlengt yfir karl- manni sem grunaður er um að hafa nauðgað ungri stjúpdóttur sinni í Vestmannaeyjum. Skal hann sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur, en þó ekki lengur en til 14. september. Maðurinn er jafnframt grun- aður um að hafa brotið gegn tveimur öðrum stúlkum. Þá ligg- ur hann undir grun um að hafa haft í fórum sínum mikið magn myndefnis sem sýnir kynferðis- legt ofbeldi gegn börnum. - jss Gæsluvarðhald framlengt: Meintur nauðg- ari áfram inni SAMFÉLAGSMÁL Borgarráð hefur samþykkt þá tillögu Jóns Gnarr borgarstjóra að ljós verði tendr- að á Friðarsúlunni í Viðey næst- komandi sunnudagskvöld. Til- efnið er að stjórnvöld í Noregi hafa ákveðið að sunnudagurinn 21. ágúst skuli tileinkaður minn- ingu þeirra er létust í hryðjuver- kaárásunum í Ósló og á Útey 22. júlí síðastliðinn. Að öllu jöfnu er ekki kveikt á Friðarsúlunni fyrr en 9. október ár hvert en í samráði við höfund verksins, Yoko Ono, er nú lagt til að gerð verði á því undantekning og að ljós súlunnar fái að loga frá sólsetri 21. ágúst og fram á morg- un. - shá Friðarsúlan tendruð: Minning hinna látnu heiðruð FRIÐARSÚLAN Minning þeirra sem létust í hryðjuverkaárásinni í Noregi verður minnst á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÍSRAEL, AP Tugir vopnaðra manna í litlum hópum drápu að minnsta kosti sjö Ísraela í árásum rétt við landamæri Egyptalands í gær. Mennirnir voru vopnaðir sprengjum og þungavopnum og stóðu árásirnar í næstum þrjá tíma. Meðal annars réðust þeir á strætisvagna og einkabifreiðar. Ísraelski herinn gerði í fram- haldinu loftárás á Gasasvæðið sunnanvert. Ísraelskum öryggis- sveitum tókst að leita uppi suma árásarmannanna og felldu nokkra í bardögum. Að minnsta kosti þrír þeirra voru með sprengjubelti um sig miðja. Ísraelskir ráðamenn fullyrtu strax að árásarmennirnir væru á vegum Hamas-samtakanna á Gasasvæðinu, en fulltrúar Hamas vísuðu því á bug. - gb Mannskæð árás í Ísrael: Svarað með loftárás á Gasa SÆRÐUR HERMAÐUR Árásarmennirnir réðust meðal annars á strætisvagna og bifreiðar. NORDICPHOTOS/AFP Bensínlykt í borginni Töluverð bensínlykt fannst í vestur- hluta borgarinnar í gær, en lyktin barst frá olíubirgðastöð í Örfirisey. Þar var opinn tankur sem unnið var að því að loka fyrir hádegi í gær. Ákveðnar reglur eru um í hvaða vind- átt má opna tankana en í gær virtist það hafa verið gert í rangri vindátt, sem var ástæða þess að lyktin fannst í borginni. UMHVERFISMÁL Ertu með bílalán? Já 35,2% Nei 64,8% SPURNING DAGSINS Í DAG Notar þú kreditkort? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.