Fréttablaðið - 19.08.2011, Side 8
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR8
NOREGUR Anders Behring Breivik
hringdi tíu sinnum í lögregluna
meðan á hryðjuverkum hans í Útey
stóð. Hann náði tvisvar sinnum í
gegn en í bæði skiptin sleit hann
símtalinu og í bæði skiptin reyndi
lögreglan að hringja til baka. Frá
þessu var greint á blaðamanna-
fundi í gær og afrit af báðum sím-
tölunum voru gerð opinber.
Neyðarsími lögreglunnar í
Norður-Buskerud tók við fyrra sím-
talinu frá Breivik. Þar var aðeins
einn á vakt þegar símtalið barst
klukkan 18.01. Þá greindi Brei-
vik frá nafni sínu og sagðist vera
í norsku andkommúnistahreyfing-
unni. Hann væri í Útey og vildi
gefa sig fram við lögreglu. Hann
sagðist hringja úr farsíma en ekki
eigin síma. Að því loknu skellti
hann á. Seinna símtalið barst til
lögreglunnar í Suður-Buskerud
klukkan 18.26, rétt áður en hann
var handtekinn. Þá sagði hann
aftur til nafns og sagðist hafa lokið
verkefni sínu og vildi gefa sig fram.
Hann talaði um samtökin Knight
Templar Europe og talaði um að
þau hefðu lokið við aðgerð. Vegna
þess að aðgerðinni væri lokið gæti
hann gefist upp fyrir lögreglunni.
Mikið álag var á símkerfi lög-
reglunnar allt frá því að fyrsta til-
kynningin um skotárás í Útey kom
til lögreglunnar klukkan 17.27 22.
júlí. Þegar mest lét voru fjöru-
tíu símtöl í bið. Nokkrum mínút-
um eftir að fyrsta tilkynningin
barst hófst lögreglulið handa við
undirbúning. Tilkynningar bentu
til þess að tveir til fimm árásar-
menn gætu verið í eyjunni. Vegna
mikils álags á samskiptakerfi var
ekki hægt að greina lögregluliði í
Norður-Buskerud frá því að aukinn
Breivik hringdi
tvisvar í lögregluna
Anders Behring Breivik reyndi tíu sinnum að ná í lögregluna í síma meðan á
hryðjuverkaárás hans í Útey stóð. Hann náði tvisvar í gegn. Gríðarlegt álag var
á símkerfinu og var um tíma erfitt að koma skilaboðum til lögreglumanna.
Síðasta fórnarlamb hryðjuverkaárásanna í Noregi var lagt til hinstu hvílu í
gær. Elisabeth Trønnes Lie var sextán ára gömul og hélt Jens Stoltenberg
forsætisráðherra meðal annarra ræðu, en fulltrúar frá Verkamannaflokknum
hafa verið viðstaddir allar jarðarfarir ungmenna sem létust í Útey. Jarðarför
Elisabethar fór fram talsvert seinna en aðrar vegna þess að sautján ára
gömul systir hennar særðist alvarlega í skotárásinni í Útey. Beðið var þar til
hún var útskrifuð af spítala og gat verið viðstödd athöfnina.
Öll fórnarlömbin borin til grafar
Í ÓSLÓ Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og Herman Van Rompuy, for-
seti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, lögðu blóm við dómkirkjuna í Ósló í gær
til minningar um fórnarlömbin. Stoltenberg var einnig viðstaddur jarðarför sextán
ára stúlku í gær, en hún var sú síðasta af fórnarlömbunum til að vera jarðsett.
NORDICPHOTOS/AFP
mannskapur væri á leiðinni fyrr en
klukkan 18.02.
Lögreglan sagði á fundi í gær að
mikilvægt væri fyrir aðstandend-
ur og þá sem lifðu árásina af að fá
sem bestar upplýsingar um aðgerð-
ir lögreglunnar.
Staðfest hefur verið að önnur
sprengja, stærri en sú sem sprakk
í Ósló, hafi fundist á býli Breiviks.
Þá hefur verið greint frá því að
þriðja vopn Breiviks hafi fundist.
Þegar hann var handtekinn í Útey
var hann með tvö skotvopn en nú
hefur haglabyssa í hans eigu einnig
fundist. Lögreglan vill ekki greina
frá því hvar hún fannst.
thorunn@frettabladid.is
1. Hvað heitir hellirinn sem var
friðlýstur í Borgarfirði á dögunum?
2. Hvaða alþjóðlega poppstjarna
mun syngja á jólatónleikum Björg-
vins Halldórssonar?
3. Hver varð í gær fyrsti Íslend-
ingurinn til að keppa á PGA-móta-
röðinni bandarísku?
SVÖR:
1. Kalmanshellir 2. Robin Gibb 3. Ólafur
Björn Loftsson
HEILSA Reykjavíkurmaraþonið fer
fram í 28. skipti á morgun en í
gær höfðu 9.788 manns skráð sig
til þátttöku, 29 prósentum fleiri en
á sama tíma í fyrra.
Tíu kílómetra hlaupið er sem
fyrr vinsælast og forskráðu rétt
tæplega fjögur þúsund manns sig
til þátttöku. Þá höfðu 692 skráð sig
í heilt maraþon.
Róbert Magnússon, sérfræðing-
ur í íþróttasjúkraþjálfun hjá Atlas
endurhæfingu, ræður fólki frá því
að skrá sig á síðustu stundu í hlaup
sem það ráði ekki við.
„Mörg þau vandamál sem hlaup-
arar glíma við og geta komið upp
eru ofálagseinkenni í kringum
hné, hásinar og ökkla sem rekja
má til þess að æfingaálagið hafi
verið of mikið á skömmum tíma
fyrir hlaup eða þá að undirbún-
ingurinn hafi ekki verið nægilega
langur,“ segir Róbert.
Róbert mælir með því að þátt-
takendur hlaupi „taktískt“ og
passi sig á því að sprengja sig ekki
í byrjun hlaups. Þá varar hann
langhlaupara við því að byrja of
fljótt að hlaupa aftur eftir Reykja-
víkurmaraþonið.
„Eftir hlaup er mikilvægt að
hafa í huga að það tekur líkam-
ann langan tíma að jafna sig eftir
maraþon, allt upp í þrjár vikur.
Bæði maraþon og hálfmaraþon
er rosaleg áreynsla. Það er því
varhugavert að fara of snemma
af stað aftur,“ segir Róbert.
Loks minnir Róbert á mikil-
vægi góðs skóbúnaðar en varar
þó við því að kaupa nýja skó
fyrir hlaupið. Þá sé mikilvægt að
drekka nóg af vatni og skynsam-
legt að borða saðsama kolvetnis-
máltíð tveimur til þremur tímum
fyrir hlaup.
- mþl
Reykjavíkurmaraþonið fer fram í 28. skipti á morgun, hátt í tíu þúsund hlauparar hafa skráð sig til leiks:
Að mörgu að huga fyrir Reykjavíkurmaraþonið
REYKJAVÍKURMARAÞONIÐ Reikna má með fjölmenni á laugardag í Lækjargötunni
þar sem hlaupið verður ræst. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BANDARÍKIN, AP Bæði Barack Obama
Bandaríkjaforseti og Catherine
Ashton, utanríkisfulltrúi Evr-
ópusambandsins, skora á Bashar
Assad Sýrlandsforseta að segja af
sér.
Þau fordæma bæði harkalega
framgöngu Sýrlandsstjórnar gegn
mótmælendum undanfarnar vikur
og mánuði, sem kostað hafa meira
en þúsund manns lífið.
Jafnframt hefur Bandaríkja-
stjórn fryst allar eigur sýrlenskra
ráðamanna í Bandaríkjunum og
Evrópusambandið boðar frekari
aðgerðir. Þá hefur Mannréttinda-
ráð Sameinuðu þjóðanna verið kall-
að saman til að fjalla um framferði
stjórnvalda í Sýrlandi.
„Við höfum statt og stöðugt sagt
að Assad forseti verði að hafa for-
ystu um breytingar í lýðræðisátt
eða víkja ella. Hann hefur ekki
tekið þá forystu,“ segir Obama.
Bandarískir embættismenn við-
urkenna reyndar að þessar yfirlýs-
ingar séu ekki líklegar til að hafa
nein áhrif á hegðun sýrlenskra
stjórnvalda á næstunni. Hins vegar
sé með þessu gefin sterk skilaboð
um að Assad njóti ekki lengur vel-
vildar alþjóða samfélagsins.
Frekari refsiaðgerðir geti einn-
ig aukið þrýsting á Assad og helstu
samstarfsmenn hans. - gb
Bandaríkin og Evrópusambandið krefjast afsagnar Assads Sýrlandsforseta:
Frekari refsiaðgerðir boðaðar
SÝRLANDSFORSETI Assad sætir vaxandi
þrýstingi. NORDICPHOTOS/AFP
NOREGUR Kosningaþátttaka
verður meiri í Noregi nú en síð-
ustu ár. Þetta segir kosninga-
sérfræðingurinn Frank Aare-
brot hjá Háskólanum í Bergen.
Aarebrot segir að meiri fylgis-
aukningar gæti hjá Verka-
mannaflokknum en öðrum
flokkum vegna hryðjuverkanna
22. júlí og þess sem hann kallar
Stoltenberg-áhrifin. Nýjar skoð-
anakannanir bendi jafnframt
til þess að þátttaka í sveitar-
stjórnarkosningum sem fara
fram í næsta mánuði verði um 70
prósent, sem er næstum tíu pró-
sentum meira en þegar kosið var
fyrir fjórum árum. - þeb
Kosningar á næsta leiti:
Stoltenberg-
áhrif í Noregi
KAUPMANNAHÖFN Tveir starfs-
menn flugvallarins í Kaupmanna-
höfn meiddust lítillega í vikunni
þegar skot hljóp úr haglabyssu
sem var í farangri vélar.
Politiken segir svo frá að taska
með byssunni hafi verið í vél frá
Orlando. Skotið hafi hlaupið af
þegar taskan var sett upp á far-
angursvagn, en högl lentu einnig
í væng vélarinnar.
Eigandi byssunnar, 76 ára
gamall maður frá einu Norður-
landaríkjnna, var að sögn miður
sín vegna slyssins. Krafist hefur
verið gæsluvarðhalds yfir honum
fyrir að stofna lífi annarra í
hættu með gáleysi sínu. - þj
Óhapp í Kaupmannahöfn:
Byssuskot hljóp
af á flugvelli
FRÁ KASTRUP Skot hljóp úr haglabyssu
á flughlaðinu á flugvellinum í Kaup-
mannahöfn.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði þrjár
kannabisræktanir í Hafnarfirði á
föstudag og laugardag. Lagt var
hald á bæði kannabisplöntur og
græðlinga auk ýmiss búnaðar.
Nokkrir karlmenn voru hand-
teknir og yfirheyrðir. Á einum
staðnum var einnig lagt hald á
töluvert af peningum sem grunur
leikur á að séu tilkomnir vegna
fíkniefnasölu. Á sunnudag var
einnig gerð húsleit í Hafnar-
firði og þá fundust nokkrir tugir
gramma af marijúana.
Þá voru þrír fíkniefnasalar,
allir karlmenn um tvítugt, hand-
teknir í Hafnarfirði á föstu-
dag. Þeir voru með nokkra tugi
gramma af marijúana og viður-
kenndu fíkniefnasölu. - jss
Kannabisræktanir stöðvaðar:
Lögregla tók
nokkra dópsala
SVÍÞJÓÐ Sænsk kona hefur verið
ásökuð um vanrækslu gagnvart
barni sínu eftir að hún skildi það
eftir í kerru fyrir utan veitinga-
stað í Massachusetts í Bandaríkj-
unum.
Konan fór inn til að panta mat
og skildi eins árs gamalt barnið
eftir fyrir utan í tíu mínútur. Hún
greindi lögreglu frá því að slíkt
væri alsiða í Svíþjóð og hún hefði
ekki talið sig vera að gera nokkuð
af sér. Barnavernd í Massa-
chusetts skoðar nú málið.
- þeb
Sökuð um vanrækslu:
Skildi barn eftir
í tíu mínútur
DANMÖRK Börn sem hafa verið
í vel mönnuðum leikskólum fá
betri einkunnir upp úr 9. bekk
grunnskólans en önnur börn.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
vísindamanna frá háskólanum
í Árósum og Maastricht-
háskólanum auk fleiri vísinda-
manna.
Rannsóknin tók til 30 þúsund
barna fæddra árið 1992 sem
luku grunnskólanámi 2008. Hún
leiddi einnig í ljós að drengjum
og börnum innflytjenda gengur
betur í lokaprófum grunnskólans
ef þau hafa verið í leikskóla þar
sem hlutfallslega fleiri karlar
voru við störf og þar sem starfs-
mannaskipti voru ekki tíð. - ibs
Vel mannaðir leikskólar:
Betri einkunnir
í grunnskóla
ÞÝSKALAND Ellefu ára gamall
piltur frá Aachen í Þýska-
landi hringdi á lögregluna fyrir
skemmstu og sagði móður sína
þvinga hann til að vinna nauð-
ungarvinnu í sumarfríinu. Þetta
kom fram í frétt á vef BBC.
Aðspurður sagðist piltur þurfa
að vinna allan daginn og ekki fá
tíma til neins annars. Til dæmis
þurfti hann að þrífa heimilið og á
veröndinni. Móðir hans greip svo
inn í samtalið og sagði drenginn
oft hafa hótað því að kalla til lög-
reglu vegna meintrar ánauðar, en
í raun gerði hann aldrei handtak
á heimilinu. - þj
Ellefu ára hringdi í lögguna:
Klagaði vegna
barnaþrælkunar
Veiða makríl lengur
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, gaf í gær út
reglugerð sem heimilar bátum sem
stunda makrílveiðar á handfæri og
línu að halda þeim veiðum áfram
eftir 1. september 2011. Áður var
makrílveiði þessara aðila takmarkað
við veiðar fram til 1. september.
SJÁVARÚTVEGUR
VEISTU SVARIÐ?