Fréttablaðið - 19.08.2011, Page 23
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
S
tefán Ingi Svansson, yfir-
kokkur Veisluturnsins,
hefur vakað yfir grill-
inu í sumar og grillað alls
kyns krásir fyrir sjónvarpsáhorf-
endur í þættinum Grillað ásamt
þeim Sigurði Gíslasyni og Völundi
Snæ Völundarsyni. Þeir félagar
gera gjarnan óáfenga fordrykki
sem Stefán Ingi segir góða til að
koma bragðlaukunum í gang. Hann
hrærði saman léttan drykk í takt
við árstíðina.
„Þar sem berin eru farin að
spretta ákvað ég að gera krydd-
aðan trönuberjadrykk með fersk-
um nýtíndum bláberjum. Ég nota
lífrænan trönuberjasafa sem
er ekki eins sætur og sá hefð-
bundni en þannig er hægt að leika
sér meira með hann og bæta út í
sýrópi, sítrus ávöxtum og alls kyns
kryddi.“
Stefán Ingi lætur uppskrift að
grilluðum osti fylgja með sem
hann segir afbragðseftirrétt. „Ég
grilla hann á kolagrilli í opnu íláti
sem gefur skemmtilegt kolabragð.
Það er upplagt að setja hann á
grillið eftir aðalréttinn þegar kolin
eru aðeins farin að kólna.“
Fjórir grillþættir eru eftir hjá
þeim félögum og spurður hvort
Kryddaðir fordrykkir passa vel á svölu síðsumri og hita upp fyrir grillsteikur og aðrar krásir:
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Grillaður hvítmygluostur með
apríkósumarmelaði, sultuðum
fíkjum og heslihnetum.
1 stk. hvítmygluostur
2 msk. apríkósumarmelaði
3 stk. sultaðar fíkjur
30 g heslihnetur
2 stk. timjangreinar
Setjið ostinn í stálform og
dreifið sultunni, fíkjunum
og hnetunum yfir. Skreytið
með
timjan.
Grillið á
miðl-
ungs hita í
15 mínútur.
Trönuberja- og bláberjadrykkur
með myntu
1 l trönuberjasafi
3 msk. söxuð bláber
2 msk. hrásykur
safi úr ½ sítrónu
2 cm ferskur engifer
15 stk. myntulauf
ísmolar
Skrælið engifer og rífið niður
með rifjárni í stóra skál. Bætið
hrásykri, sítrónusafa og blá-
berjum út í ásamt myntulaufum
sem eru skorin í ræmur. Látið
standa í tíu mínútur. Hellið
trönuberjasafa saman
við ásamt ísmolum.
Berið fram í háum
kokkteilglösum
og skreytið með
engifer og myntu.
BLÁBERJAFORDRYKKUR OG GRILLAÐUR OSTUR
Kemur bragð-
laukunum í gang
framhald verði á sjónvarps-
ferlinum segir Stefán Ingi aldrei
að vita. „Við þrír erum alltaf eitt-
hvað að bralla saman og við höfum
svakalega gaman af þessu.“
Tökum á þáttunum er nýlokið en
þeir hafa verið teknir jöfnum hönd-
um. „Við höfum leyft sumrinu að
líða svolítið með þessu og gerum
það sem okkur finnst skemmtilegt
og passar hverju sinni.“
Nánari upplýsingar um þættina
er að finna á www.grillad.is.
vera@frettabladid.is
Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík, Bryggjan og
CCP standa fyrir dagskrá við höfnina á Menningar-
nótt. Þar verða hljómsveitir, föndursmiðja fyrir börn
og upplestrar. Þá verður hægt að dansa á Bryggju-
pallinum frá 20 til 22, þar sem félagsskapurinn
Komið og dansið verður í fararbroddi.
ALLA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300
www.geysirbistro.is
Verð
aðeins
1.895
með kaffi
eða te