Fréttablaðið - 19.08.2011, Page 30
Vanaföst kynlífsiðkun
? Hæ Sigga Dögg. Mig langar að vita hvort þú lumir á einhverjum ráðum um hvernig megi krydda upp á kynlífið með makanum. Það er komið
í fastar skorður hjá okkur hjónunum og á sér oftast stað á kvöldin þegar
við erum komin undir sæng. Við erum bæði ung og leiðinlegt að þetta skuli
vera komið í þetta hjólfar.
Svar: Þú segir að kynlífið eigi sér oftast stað á kvöldin og ég ætla að álykta
sem svo að það finnist þér galli. Ef þér finnst verra að stunda kynlíf á kvöld-
in þá gætuð þið komið ykkur saman um annan tíma sem væri í senn spenn-
andi og myndi henta báðum betur. Staðreyndin er sú að oftar en ekki fer
kynlíf í langtímasambandi í einhvers konar vana eða rútínu. Það má líta á
það sem leiðinlegt eða eðlilega þróun á því þegar tveir einstaklingar reyna
að skipuleggja tíma sinn saman. Þetta er einnig spurning um hvernig maka
þínum finnist kynlífið ykkar vera. Hér reynir á samskiptin og lausnin felst
ekki endilega í titrandi baðönd eða blárri mynd. Ef þið eruð bæði sammála
um að ykkur langi til að fá nýjar hugmyndir má finna ágætar kynlífstækni-
bækur á næsta bókasafni. Fyrst þurfið þið að tala hreinskilnislega saman,
því samskipti og skilningur á afstöðu hins aðilans er lykilatriði.
? Hæ Sigga. Ég á kærasta og við erum búin að hittast í nokkra mánuði. Núna vill hann fá að sofa hjá mér í endaþarm og ég er hrædd um að
það sé vont. Mér finnst leiðinlegt að hann sé alltaf að spyrja mig
um þetta því ég vil þetta ekki. Ég þori ekki að tala um þetta við
vinkonur mínar því ég er hrædd um að þeim finnist ég skrítin
eða kærastinn leiðinlegur við mig.
Svar: Spurning þín er mjög algeng og áhyggjur þínar rétt-
mætar. Þú segist ekki vilja prófa þetta og það er þinn réttur
og hann ber að virða það. Þú getur prófað að snúa dæm-
inu við, ég segi gjarnan að eitt skuli yfir báða ganga. Enda-
þarmurinn er mikill örvunarstaður hjá karlmönnum og
mæli ég með að þú leggir til að þið prófið fyrst gælur við
hans endaþarm, svo framarlega sem þú sért til í að prófa
það. Hann gæti þá öðlast skilning á því hversu varlega þarf
að fara með þetta svæði og jafnvel uppgötvað nýjan unaðs-
stað á sjálfum sér. Ef þú ert opin fyrir því að prófa þetta þá
er best að byrja smátt og þá á örvun endaþarmsins með
fingri. Lykillinn er að vera afslappaður og með nóg af sleipi-
efni, ef þetta er sárt þá á að hætta eða taka pásu. Ekki nota
deyfilyf eða deyfikrem, og smokkanotkun er mikilvæg. Það
þarf að passa að gæta fyllsta hreinlætis og fara ekki úr
endaþarmi yfir í leggöng því það getur valdið sýkingu. Svo
má ekki gleyma því að þetta er kannski ekki kynlíf sem
hentar þér og þú ert alls ekkert síðri kynlífsfélagi fyrir
vikið.
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um
umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Líkur eru á að þriðja kvikmyndin um vin-konurnar Carrie, Samönthu, Charlotte
og Miröndu verði gerð innan skamms.
Myndin verður forsaga þáttanna og þar
kynnist áhorfandinn ungri
Carrie, sem er þá nýflutt
til New York.
Daily Mail segir frá
því að nokkrar ungar
og efnilegar leikkonur
séu orðaðar við hlut-
verk í kvikmyndinni
en sitt sýnist hverj-
um um valið. Gossip
Girl-stjarnan Blake
Lively er sögð eiga að leika Samönthu
Jones og söngkonan Selena Gomez hefur
verið orðuð við hlutverk Charlotte
York. Emma Roberts, bróðurdóttir
Juliu Roberts, er möguleg Miranda
Hobbs og hlutverk hinnar ungu
Carrie gæti Elizabeth Olsen
hreppt, en sú er yngri systir
Olsen-tvíburanna. Það verður
forvitnilegt fyrir aðdáendur
þáttanna að fylgjast með fram-
vindu mála, enda standa framleið-
endur kvikmyndarinnar frammi fyrir
ærnu verkefni.
Forsaga Sex and the City í bígerð:
Leita að hinni
ungu Carrie
Elizabeth Olsen er orðuð
við hlutverk hinnar ungu
Carrie Bradshaw.
NORDICPHOTOS/GETTY
Blake Lively gæti leikið Samönthu
Jones.
Innritun er allan ársins hring.
Nemendur stunda námið á þeim hraða
sem hentar hverjum og einum, en miðað
er við námslok innan 12 mánaða.
Kennt er á miðvikudögum
kl. 18 - 22
Nemendur fá tösku með naglaslípivél og lampa
ásamt veglegum vörupakka.
Kennararnir hafa áralanga reynslu í faginu og
kennsluréttindi frá Professionails í Belgíu.
Hjölur ehf
Hjallabrekku 1
www.snyrtiakademian.is
Sími 588 8300
Naglaskóli Professionails er
alþjóðlegur naglaskóli sem
útskrifar nemendur með Diploma
sem gildir víða um heim.
Naglaskóli Professionails á Íslandi á Facebook
Hjallabrekku 1 • 200 Kópavogur
www.snyrtiakademian.is • skoli@snyrtiakademian.is
Sími 553-7900
- 14 vikna námskeið hefst 5. september.
- Kennt er mánudaga til fimmtudaga. Hægt
er að velja um morgunhóp eða kvöldhóp.
- Nemendur útskrifast með diploma sem
förðunarfræðingar.
- Nemendur fá förðunartösku með vörum
frá NNCosmetics.
- Kennararnir hafa áralanga reynslu í faginu.
- Kennd er tísku- ljósmynda- leikhús- og
líkamsförðun og airbrush.
- Spennandi gestakennarar og þátttaka í
ýmsum verkefnum.
Verkefni sem nemendur tóku þátt í
síðasta vetur:
- Buddy Holly.
- Frostrósir.
- Forvarnarauglýsing.
- Forsíða fyrir Vikuna.
- Förðun fyrir L’Oréal hárgreiðslumeistara.
Fjölbreytt förðunarnám!