Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2011, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 19.08.2011, Qupperneq 40
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR28 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta BAKÞANKAR Mörtu Maríu Friðriksdóttur ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Jói, þetta er Zigrún! Hún er með mér í bandinu. Ánægju- legt! Hvað spilar þú á, fagoth? Gítar Ókeiii! Sjáumst í kvöld, Zlatan. Það gerum við! Hafðu það go... fínt! Hvað með þig, Palli? Hvernig var dagurinn þinn? Afsakið. Ég get ekki tjáð mig núna. Má ég fá tómat- sósuna? Afsakið en ég get ekki aðstoðað núna. Ups Gat verið að foreldrar þínir sendu svona pirrandi leikfang. Það minnir mig á það! Ég á eftir að þakka þeim fyrir að senda Lóu leikfangið. Mamma? Lóa er yfir sig hrifin af öskrandi trúðnum. Þau eru farin að sjá í gegnum þetta! En við Lárus vorum að velta því fyrir okkur hvort þið væruð viljandi að senda hingað hávær og pirrandi leikföng. Haha! LÁRÉTT 2. feikn, 6. ullarflóki, 8. þrá, 9. heyskaparamboð, 11. nesoddi, 12. sljóvga, 14. yfirstéttar, 16. tvíhljóði, 17. svipuð, 18. suss, 20. skammstöfun, 21. faðmlag. LÓÐRÉTT 1. gleðimerki, 3. fíngerð líkamshár, 4. kynlíf, 5. hallandi, 7. ráðning, 10. fálæti, 13. kosning, 15. skrifa, 16. umfram, 19. gyltu. LAUSN LÁRÉTT: 2. glás, 6. rú, 8. ósk, 9. orf, 11. tá, 12. slæva, 14. aðals, 16. au, 17. lík, 18. uss, 20. fr, 21. knús. LÓÐRÉTT: 1. bros, 3. ló, 4. ástalíf, 5. ská, 7. úrlausn, 10. fæð, 13. val, 15. skrá, 16. auk, 19. sú. Þú ert augljóslega með ofnæmi fyrir einhverju... hefurðu borðað eitthvert sjávarfang nýlega? Meðal annars efnis: Fólk er enn í losti Mikið starf er enn óunnið á hamfarasvæðum í Japan. Eins og gömul sófasett í magadansi Fréttablaðið skoðar ljótustu fótboltatreyjurnar. Verð að fá að vera ég sjálf Tobba Marinós lætur umtalið ekki slá sig út af laginu. Veðrið ætti að vera aðalumræðuefnið, alltaf!“ sagði sessunautur minn með miklum þunga, þegar ég velti fyrir mér að skrifa um veðrið og komandi haust í þess- um pistli mínum í dag. Hún bætti því svo við að veðrið ætti að vera aðalumræðu efnið alltaf og klykkti út með því að samræður um veður og veðurtengd málefni gætu verið svo rosalega skemmtilegar. HVATNING sætisfélagans varð til þess að veðrið og haustið, sem nálg- ast óðfluga, verður umræðuefni dagsins og líklega komandi daga, eins og svo oft áður. Ég er nú einu sinni Íslendingur og viðurkenn- um það bara, veðrið er bráð- skemmtilegt umræðuefni. Það verður enda oft að umræðuefni okkar vinkonu minnar sem býr úti í Lúxemborg en er frá Íslandi. Veðrið berst reyndar mun oftar í tal á veturna og getur verið verulega spenn- andi, sérstaklega fyrir Íslendinginn í útlöndum sem lifir bara í rólyndisveðrinu í hjarta Evrópu. Hljómar það ekki spennandi að sólin skíni langt fram eftir kvöldi og ylji landsmönnum í ágúst, bílar festist í snjósköflum víða um land í febrúar og umferðar- skilti fjúka um koll vegna veður ofsa? Þetta hefur oft reynst hið áhugaverðasta efni í líflegar samræður okkar vinkvennanna og hún spyr iðulega um veðrið á Íslandi. HVERNIG er best að lýsa veðrinu á Íslandi? Það er svo margbreytilegt og skjótt skipast veður í lofti. Ég tók upp á því þegar ég var lítil að segja pabba, sem staddur var í öðrum landshluta, að það væri ekkert veður fyrir utan. Veður- áhugamanninum fannst þetta verulega óskemmtileg lýsing og innti mig frekari svara, sem ég hafði alls ekki á takteinum. Það var ekki vegna þess að ég nennti ekki að gá, heldur var besta lýsingin ekkert veður. Í dag er pabbi búinn að átta sig á því hvað ekkert veður er, það er skýjað og grátt. Ekkert veður er bara hin ágætasta lýsing, að mínu mati. VEÐRIÐ í morgun bar með sér að haustið væri á næsta leiti. Haustilmur var í loft- inu, bílrúðan var rök og einmana gult og rautt laufblað blakti fyrir utan gluggann minn. Það er ekki bara veðrið og trén sem bera með sér að haustið sé skammt undan heldur gera fréttir vikunnar það einnig. Haustuppskeran er að hefjast og átta hundruð epli verða tínd af eplatré á Akranesi. Menningarnótt með öllum sínum fjölda viðburða og verkfall leik- skólakennara sem hefur áhrif á þúsundir fjölskyldna. Bráðskemmtilegt veður

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.