Fréttablaðið - 19.08.2011, Page 54
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR42
„Ég er með smá fiðrildi í magan-
um út af þessu en maður verður
að henda sér í djúpu laugina til að
halda áfram að þroskast,“ segir
Ásgrímur Már Friðriksson fata-
hönnuður, sem birtist á sjónvarps-
skjánum í fyrsta sinn í vetur.
Ásgrímur, eða Ási eins og hann
er kallaður, er nýr liðsmaður í
þættinum Nýtt útlit á Skjá einum
og stendur þar tískuvaktina við
hlið Jóhönnu Björgu Christensen
og Hafdísi Ingu Hinriksdóttur.
„Ég þekki bæði Hafdísi og
Jóhönnu vel og var því ekki lengi
að þiggja starfið þegar það bauðst.
Við skemmtum okkur alltaf vel
saman og hlæjum mikið. Ég vona
að það eigi eftir að endurspeglast
til áhorfenda gegnum skjáinn,“
segir Ási og bætir við að hann sé
mjög spenntur að hefjast handa en
tökur hefjast á næstu vikum.
„Þátturinn verður ekki bara
fyrir konur í þetta sinn heldur
ætlum við að fá karlmenn til okkar
í stíliseringu eða „make over“.
Fara yfir hreinlæti, rakstur og
ilm fyrir karlmenn, svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Ási en þetta er í fyrsta
sinn sem hann starfar í sjónvarpi
en hann hefur verið áberandi innan
íslenska tískubransans undanfar-
in ár. Ási er menntaður fatahönn-
uður frá Listaháskólanum og er að
vinna í sinni fyrstu herrafata línu,
sem kemur út á næsta ári.
„Ég er að vinna í fatalínunni
samhliða öðrum verkefnum og ekk-
ert að stressa mig. Nú er ég bara
spenntur að prófa eitthvað nýtt og
er mjög fegin að feimnin mín við
upptökuvélarnar er horfin í bili.“
- áp
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Ási Már á skjáinn
LÍKA FYRIR KARLMENN Ásgrímur Már
Friðriksson ætlar að fjalla um tísku og
útlit á Skjá einum í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það er Who Let the Dogs Out?
með Baha Men.“
Albert Steingrímsson hundaþjálfari.
Kvikmyndaverið Universal hefur ákveðið að
færa frumsýningardag Contraband sem Balt-
asar Kormákur leikstýrir fram til 13. janúar
en til stóð að myndin yrði frumsýnd um miðjan
mars. Leikstjórinn leggur lokahönd á myndina
um þessar mundir.
„Reglan er yfirleitt sú að ef menn eru hrifn-
ir þá er frumsýningin færð fram. Ef ekki eru
myndirnar stundum færðar aftar í dagatalið,“
segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Hann
var staddur í London þegar Fréttablaðið náði
tali af honum en hann var að litgreina film-
una ásamt kvikmyndatökumanninum Barry
Ackroyd. Að sögn leikstjórans er búið að klippa
myndina og virðist „klippið“ hafa farið það vel
ofan í forsvarsmenn Universal að Contraband
hefur verið úthlutað þriggja daga helgi. Hún
verður frumsýnd föstudaginn 13. janúar
en helgin sem þá gengur í garð er kennd
við blökkumannaleiðtogann séra Martin
Luther King.
Contraband er endurgerð á íslensku
kvikmyndinni Reykjavik-Rotterdam
sem Óskar Jónasson leikstýrði og var
frumsýnd fyrir þremur árum. Baltas-
ar lék sjálfur aðalhlutverkið í mynd-
inni en Mark Wahlberg tekur við
keflinu af honum. Meðal
annarra leikara má nefna
Kate Beckinsale, Ben
Foster, Giovanni Rib-
isi og J.K Simmons auk
Lukas Haas og Diego
Luna.
Baltasar fær nýjan frumsýningardag
„Þetta verður í fyrsta skipti sem
við spilum í Kaupmannahöfn Og
raunar í fyrsta skipti sem við spil-
um erlendis síðan við reyndum
að meika það á Englandi í „den“.
Það næsta sem við höfum komist
útlöndum síðan þá eru bara Vest-
mannaeyjar,“ segir Jón Ólafsson,
hljómborðsleikari Ný danskrar.
Sveitin, sem verður 25 ára
gömul á næsta ári, ætlar að
halda tónleika á tónleikastaðnum
Bryggen í gamla höfuðstaðnum
9. september næstkomandi. Jón
segir þá renna blint í sjóinn með
aðsókn en vonast þó til að íbúar
gamla höfuðstaðarins kunni að
meta heimsókn frá „gömlu brýn-
unum“ eins og hann kemst sjálf-
ur að orði. „Ég hef trú á því að
Íslendingar sem hafa verið
búsettir lengi í Danmörku eigi
eftir að láta sjá sig.“
Það kann kannski að koma ein-
hverjum á óvart að það skuli vera
svona langt síðan Ný dönsk hélt
tónleika fyrir utan landsteinana.
Á tímum útrásarvíkinga var ekki
óalgengt að íslenskum listamönn-
um væri flogið í starfsmanna-
partí en Ný dönsk varð þess
heiðurs aldrei aðnjótandi. „Við
spiluðum náttúrlega í brúðkaupi
aldarinnar hjá Jóni Ásgeiri og
ég spilaði sjálfur í nokkrum slík-
um veislum en við gerðum þetta
aldrei saman sem hljómsveit.“
Jón segir að þeir verði allir með
á tónleikunum í Kaupmannahöfn.
Þeir hafi haft það fyrir reglu síðan
Daníel Ágúst snéri aftur í hljóm-
sveitina 2007 að koma helst ekki
fram nema fullmannaðir. - fgg
Síðbúin útrás Ný danskrar
TIL DANMERKUR Ný danskir ætla að spila á tónleikum á Bryggen í Kaupmannahöfn
9. september. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÆRÐ FRAM Frumsýning kvikmyndarinnar Contraband
hefur verið færð fram til 13. janúar. Baltasar Kormákur
leikstýrir myndinni en með aðalhlutverkin fara þau
Mark Wahlberg og Kate Beckinsale.
„Þetta verður alveg æðislega
skemmtilegt og eitthvað sem eng-
inn má missa af,“ segir Sigríð-
ur Beinteinsdóttir söngkona sem
kemur fram á væntanlegum afmæl-
istónleikum Bylgjunnar annað
kvöld.
Mikið hefur verið að gera hjá Sig-
ríði í sumar en hún eignaðist tví-
bura, stúlku og strák, í maí ásamt
unnustu sinni, Birnu Maríu Björns-
dóttur. „Það er brjálað að gera og
gaman,“ segir Sigríður og bætir við
að tvíburarnir verði nú ekki bak-
sviðs á tónleikunum enda þeir of
seint um kvöldið fyrir ungabörn.
Útvarpsstöðin Bylgjan heldur
upp á 25 ára afmæli stöðvarinnar
með því að slá upp allsherjar tón-
listarveislu á Ingólfstorgi á Menn-
ingarnótt. „Ég bara trúi því ekki
að það séu komin 25 ár, mér finnst
eins og það séu svona tvö ár síðan
þetta byrjaði,“ segir Sigríður, sem
hefur fylgt Bylgjunni frá upphafi
árið 1986. „Stjórnin var í mörg ár
svona sumarsveit Bylgjunnar og
við höfum því fylgt stöðinni lengi.“
Ásamt Sigríði koma fram for-
sprakkar margra vinsælustu sveita
landsins á borð við Egil Ólafsson,
Pál Óskar, Helga Björns, Bubba
Morthens og Björgvin Halldórsson.
Sigríður kemur fram ásamt Grétari
Örvarssyni en þau hafa ekki sungið
saman á sviði í langan tíma.
„Nei, það má segja að þetta sé
eins konar endurkoma hjá okkur.
Við höfum ekki sungið saman lengi
og ætlum að taka fullt af skemmti-
legum slögurum,“ segir Sigríður
en hún ætlar einnig að syngja með
Björgvini Halldórssyni á tónleikun-
um en samstarf þeirra hefur vakið
mikla lukku hlustenda gegnum tíð-
ina.
Dagkráin hefst á Ingólfstorgi
klukkan 13.30 og koma þar fram
Sveppi og Villi, Jón Jónsson og
Friðrik Dór og Páll Óskar. Um
kvöldið, klukkan 20, heldur svo
fjörið áfram en stjörnuhljómsveit-
in stígur á svið klukkan 21.
alfrun@frettabladid.is
SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR: SYNGUR AFTUR MEÐ GRÉTARI ÖRVARS
Skilur tvíburana eftir heima
HLAKKAR TIL Sigríður Beinsteinsdóttir fullyrðir að enginn megi missa af tónleikunum annað kvöld á Ingólfstorgi. Hér er hún með
konu sinni, Birnu Önnu Björnsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.