Fréttablaðið - 27.08.2011, Blaðsíða 74
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR38
Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og
persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Fyrsti bíllinn komst til Siglufjarðar
þennan dag árið 1946, eftir að
unnið hafði verið að vegagerð um
Siglufjarðarskarð í ellefu ár. Það var
þó ekki fyrr en ári síðar, eða 1947,
að vegurinn taldist tilbúinn. Hann
lá upp úr Fljótum í Skagafirði.
Upphaflega var Siglufjarðarskarð
fjallsegg en gegnum hana voru
dyr sem gátu hafa verið gerðar af
fornmönnum. Þá var hægt að sitja
þar klofvega með annan fótinn í
Skagafjarðarsýslu en hinn í Eyja-
fjarðarsýslu. Árið 1940 var skarðið
sprengt niður um 14 metra og í
framhaldi af því ráðist í að gera
bílfæran veg yfir það. Þetta var
hæsti fjallvegur landsins og mjög
snjóþungur. Hann lokaðist í fyrstu
snjóum á haustin og var ekki
opnaður aftur fyrr en sjö til átta
mánuðum síðar.
ÞETTA GERÐIST: 27. ÁGÚST 1946
Ekið yfir Siglufjarðarskarð
Merkisatubrðir
1729 Hraun rennur út í Mývatn umhverfis kirkjuna í Reykjahlíð í
Mývatnseldum.
1867 Eldgos hefst í Vatnajökli, nærri Grímsvötnum, og stendur í
þrettán daga.
1914 Fjórir menn af sautján manna áhöfn togarans Skúla fógeta
farast er togarinn siglir á tundurdufl.
1951 Sýningarsalir Listasafns Íslands í húsi Þjóðminjasafnsins
eru formlega opnaðir.
1991 Moldóva fær sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
1994 Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, hlýtur nor-
rænu Amanda-kvikmyndaverðlaunin.
49 SIGURJÓN B. SIGURÐSSON (SJÓN) skáld er fæddur þennan dag árið 1962.„Það sem ég nem fel ég innra með mér eða hvísla því að fiskunum í sjónum.“
Rathlaup fatlaðra er íþróttagrein sem
hingað til hefur ekki verið stunduð hér-
lendis en á morgun mun Rathlaups-
félagið Hekla efna til kynningar á þess-
ari íþróttagrein sem nýtur sívaxandi
vinsælda í nágrannalöndunum. Af því
tilefni mun einn helsti sérfræðingur
heims í þessari grein, Svíinn Owe Fred-
holm og eiginkona hans, Eva Fredholm,
vera viðstödd kynninguna.
Guðmundur Finnbogason er formaður
Rathlaupsfélagsins Heklu. „Félagið
okkar var stofnað árið 2009 og höfum
við allt frá þeim tíma kynnt hefðbundið
rathlaup, sem og hinar ýmsu útgáfur af
því, fyrir þjóðinni. Þetta er hins vegar
í fyrsta skipti sem við kynnum Rat-
hlaup sem er sérsniðið fyrir fatlaða,“
segir Guðmundur. Í fyrra héldu félagar
í Heklu til Svíþjóðar á alþjóðlegt mót
í rathlaupi og kynntust Fredholm þar.
„Það vildi svo til að hann var að
koma til landsins vegna annarra verk-
efna þannig að við njótum góðs af því
og fengum hann til að koma og kenna
okkur þessa grein. Hann hefur verið
sendiherra þessarar gerðar rathlaups-
ins, sem er kallað Trail-O erlendis, og
hefur setið í nefnd alþjóða rathlaups-
sambandsins, IOF. Þá hefur hann
haldið, stýrt og dæmt á ótal keppnum
undanfarna áratugi.“
Kynningin fer fram í Elliðaárdal en
mæting er við Rafstöðvarveg 20, hjá
félagsheimilinu Rafheimum. Leikar
hefjast klukkan 11 og standa til 12.30
en ekki er skylda að mæta á slaginu 11
því menn fá rástíma þegar þeir mæta
í stað þess að allur hópurinn leggi af
stað saman í einu. Guðmundur bendir
á heimasíðuna rathlaup.is fyrir nánari
upplýsingar.
„Við munum vera á staðnum og kenna
og leiðbeina fólki og einnig verður
hefðbundinn ratleikur í boði þar sem
Trail-O er ekki aðeins fyrir fatlaða
heldur viðurkennd æfingagrein fyrir
hlaupara. Þetta er mjög góð æfing í
kortalestri og krefst nákvæmni. Menn
geta verið flinkir hlauparar en í þessari
grein geta þeir tapað ef þeir eru ekki
góðir í kortalestri,“ segir Guðmundur.
Greinin er ekki síst skemmtileg að
mati Guðmundur vegna þess að hún
er náttúruíþrótt. „Það er spennandi
að geta boðið upp á þetta fyrir fatlaða
þar sem rathlaup er oft stundað í villtri
náttúru, en það er vettvangur sem er
ekki alltaf aðgengilegur fötluðum. Þessi
íþrótt býður fólki út í náttúruna.“
juliam@frettabladid.is
RATHLAUPSFÉLAGIÐ HEKLA: STENDUR FYRIR KYNNINGU Á RATHLAUPI FATLAÐRA
Íþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda
Í VILLTRI NÁTTÚRU Rathlaupsfélagið Hekla kynnir rathlaup fyrir fatlaða á morgun en það er
nýjung hér á landi. Hingað til hefur félagið kynnt hefðbundið rathlaup en rathlaup fatlaðra
nýtur sívaxandi vinsælda í nágrannalöndunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Móðir okkar og amma,
Steinunn Karlsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu miðvikudaginn
24. ágúst síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju miðvikudaginn 31. ágúst kl. 13.
Áslaug Sturlaugsdóttir
Svandís Sturlaugsdóttir
Daníel Grímsson
Hjartans þakkir sendum við öllum sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför okkar elskuðu eiginkonu,
móður, dóttur, systur og tengdadóttur,
Ragnheiði Jónu
Ármannsdóttur
Akraseli 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá heimahlynning, heimahjúkrun,
Líknardeildin í Kópavogi og allir aðrir sem önnuðust
hana af alúð og umhyggju og veittu stuðning á einn
eða annan hátt í veikindum hennar. Einnig skátafélagið
Segull, aðrir skátar, Hjálpræðisherinn, vinir og vanda-
menn sem heiðruðu minningu hennar á einstakan hátt
við útförina.
Trond Are Schelander
Ármann Schelander
Knut Egil Schelander
Jan Olav Schelander
Katrín Eyjólfsdóttir og Ármann Gunnlaugsson
Eyjólfur Ármannsson
Synnøve Schelander Wang og Leif Ole Wang
Útför konu minnar, móður okkar
og ömmu,
Dórotheu Sveinu
Einarsdóttur
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 16. ágúst, fer fram
frá Guðríðarkirkju í Grafarholti mánudaginn 29. ágúst
kl. 15.
Hörður Bergmann
Halldóra Björk Bergmann
Atli Bergmann
Jóhanna Bergmann
Helga Lilja Bergmann
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Jón Trausti Kárason
fyrrv. aðalbókari Pósts og síma,
Hlíðarhúsum 3,
lést miðvikudaginn 24. ágúst. Jarðsungið verður frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13.
Bjarghildur Stefánsdóttir
Gylfi Jónsson Þórunn Ásgeirsdóttir
Birgir Jónsson Dagrún Þórðardóttir
Kári Jónsson Hermína Hermannsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingveldur Hannesdóttir
frá Brekkukoti, Reykholtsdal,
Hrafnhólum 4, Reykjavík,
verður jarðsett frá Akraneskirkju
mánudaginn 29. ágúst kl. 14.
Hannes Hákonarson Margrét Guðlaugsdóttir
Kristmundur Hákonarson Helga Erlingsdóttir
Ólafur Hákonarson
Kristinn Hákonarson Birna Kristjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Finnur Jónsson
verkfræðingur,
Heiðarlundi 8, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn
25. ágúst. Útför verður auglýst síðar.
Þórunn Sigurðardóttir
Sigurður Finnsson Lisa Finnsson
Ólöf Finnsdóttir Helgi Sigurðsson
Guðrún Finnsdóttir Orri Þór Ormarsson
Hulda Björk Finnsdóttir Kristbjörn Búason
og barnabörn