Fréttablaðið - 27.08.2011, Blaðsíða 40
27. ÁGÚST 2011 LAUGARDAGUR2 ● fréttablaðið ● bylgjan 25 ára
„Við viljum vita hvað hlustendur vilja heyra og hlusta á.” MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
AFMÆLISKVEÐJUR
Góðan daginn Heimir!
● HAMINGJUÓSKIR FRÁ HÖNNU SIGGU Kæra Bylgja! Ég vil nú
byrja á að óska ykkur til hamingju með árin 25! Ég hef hlustað á ykkur frá
fyrsta degi og geri enn. Ég man fyrstu vikurnar sem Bylgjan sendi út og við
ungu konurnar vorum að hittast og spjalla saman. Við leyfðum börnunum
að leika sér, sátum bara og hlustuðum! Hahaha, já, skemmtilegt var það,
þvílík bylting í útvarpi og Bylgjan var með öll nýju og líka gömlu lögin.
Ég vil þakka fyrir mig í þessi 25 ár sem Bylgjan hefur skemmt mér og
okkur öllum. Takk, takk, fyrir mig og innilega til hamingju með afmælið!
Hanna Sigga, Garðavegi 26, Hvammstanga
● SPENNINGUR, STEMN
ING! „Ég man nákvæmlega
hvar ég var staddur helgina sem
Bylgjan fór í loftið í lok ágúst
1986. Ég var í sumarhúsi í Mun-
aðarnesi með foreldrum mínum,
sjö ára gamall. Ég man
vel hvað var mik-
ill spenningur og
stemning í kring-
um hana þegar
hún fór í loftið.
Það voru allir að
hlusta – og eru
víst enn.“
Jóhannes
Ásbjörnsson
„Mér finnst svo heillandi hvað
útvarpið er sveigjanlegur fjöl-
miðill. Það er mjög auðvelt að
breyta dagskránni fyrirvara-
laust ef sjóðheitar fréttir koma
í hús eða málefni sem brennur á
fólki. Svo er nálægðin við hlust-
andann mjög mikill kostur. Fólk
hringir inn og getur sagt sína
skoðun í beinni útsendingu. Mér
virðist það líka vera auðveld-
ara fyrir við mælendur að koma
fram í útvarpi. Fólk er afslapp-
aðra og eðlilegra hjá okkur en í
sjónvarpi.“
Sambandið við hlustendur, af
hverju leggið þið svona mikið
upp úr því?
„Af því að það er mjög mikil-
vægt. Við viljum vita hvað hlust-
endur vilja heyra og hlusta á. Það
er lykilatriði að spyrja spurn-
inga sem hlustendur vilja fá svör
við. Í hvert skipti sem við tökum
stjórnmálamenn í viðtal spyrjum
við spurninga sem við teljum að
almenningur vilji fyrst og fremst
fá svör við. Þess vegna göngum
við hart á eftir svörum og reyn-
um eftir megni að láta menn ekki
komast hjá því að svara.“
Óskalag allra tíma, Heimir?
Ef þú hringdir inn á Bylgjuna
og bæðir um óskalag, hvaða lag
væri það? Eitthvað frá „Sítt að
aftan tímabilinu“ eða hlustar þú
á eitthvað nýrra?
„Nei! Í stuttu máli þá er hljóm-
sveitin Steely Dan í langmestu
uppáhaldi hjá mér enda þar á
ferð sennilega mestu tónlistar-
snillingar samtímans. Það er lag
á plötunni Aja sem heitir I Got
the News. Það er alveg rosalega
flott! Þar færðu allt í senn, fönk,
popp, blús og diskó. Hefur senni-
lega aldrei heyrst í íslensku út-
varpi en það er kominn tími til :)“
ÓSKALAGIÐ
● „WHEN YOUR HEART
IS WEAK!“ „Ef ég ætti að velja
Bylgjulag allra tíma þá er það
klárlega „When Your Heart Is
Weak“ með Cock Robin,“ segir
Valdís Gunnarsdóttir útvarps-
kona. „Það
lag er
eigin lega
litrófið
þegar ég
lít til baka
yfir 25
ára sögu
Bylgjunn-
ar. Þorsteinn Ásgeirsson, Doddi
tæknitröll, klippti hrikalega vel
heppnað stef fyrir mig á sínum
tíma af 12 tommu útgáfu þessa
lags og þetta er fyrsta lagið sem
kom upp í hugann.
Svo skemmtilega vildi líka til
að árið 1991 minnir mig var mér
boðið á heimili Peters Kingsbury
„aðal“ í gegnum sameiginlegan
vin á Hermosa Beach í Los
Angeles. Nema hvað, hann
settist niður við svartan flygil og
spilaði og söng þetta lag bara
fyrir mig; hvítar gólfsíðar gard-
ínur blöktu í golunni
og stundin varð
ógleymanleg.
Ég fór með
upptöku til
hans sem
Doddi gerði
og hann
varð
yfir sig
hrifinn …
Afmælis-
kveðjur til
Bylgj-
unnar!“
Hér eru nokkrar meginreglur Íslands í bítið:
Morgunþátturinn Ísland í bítið þarf helst að vera allt í senn: Fréttatengdur -
Fræðandi - Léttur - Mannlegur - Auðmjúkur - Í sambandi.
● Fréttatengdur Það sem efst er á baugi hverju sinni, viðtöl við stjórn-
málamenn og aðra þá sem málefni líðandi stundar varðar.
● Fræðandi Gefa hlustendum innsýn í heim ýmissa vísindagreina, eins
og jarðvísinda, geimvísinda og læknavísinda.
● Léttur Heyra í forvitnilegum og skemmtilegum einstaklingum, tón-
listarmönnum, leikurum og öðrum sem hafa skemmtilega sögu að
segja.
● Mannlegur Sinna málefnum sem snerta okkur öll með einum eða
öðrum hætti en eru ekki í umræðunni á hverjum degi.
● Auðmjúkur Þar sem þáttastjórnendur og reglulegir gestir taka sig
ekki of hátíðlega.
● Í sambandi Gefa hlustendum reglulega tækifæri til að hringja inn í
þáttinn og láta skoðanir sínar á öllum mögulegum hlutum í ljós.
NOKKUR ORÐ UM BYLGJUNA „Þegar ég var 19 ára setti ég mér
það markmið að einhvern tímann væri það ég sem myndi bjóða íslend-
ingum góðan daginn. En þá var ég að vinna á nóttunni í Bakaríi KHB á
Egils stöðum og þoldi ekki að heyra Þorgeir Ástvaldsson bjóða mér góðan
dag, eftir að hafa verið á vaktinni í fimm tíma. En allt sem hann færði
mér eftir að hafa boðið mér góðan daginn var til þess að gera vinnuna
skemmtilegri.
Á þessum tíma var Kristófer Helgason með Lukkustigann á kvöldin og
Ívar Guðmundsson kynnti Íslenska listann. (Bylgjan spilar hann, DV birtir
hann og Coke gefur tóninn!)
Ekki grunaði mig að ég myndi ná markmiði mínu og það árið 2007.
En við Jói tókum við Laugardagsmorgnum af Gulla Helga, sem var mikill
heiður. Enda er Gulli Helga einn af vinsælustu útvarpsmönnum landsins.
Útvarpið er skemmtilegasti miðillinn að vinna í, því útvarp er
landamæra laus fjölmiðill. Það er hægt að skapa allt í útvarpi og það er
hægt að skapa það á staðnum. Útvarp er lifandi, skapandi og umfram allt
snöggur miðill.
Bylgjan er án nokkurs vafa útvarpsstöð Íslendinga, enda væri hún ekk-
ert ef hlustendur væru ekki að hlusta. Bylgjan er háð hlustendum sínum
og þeirra mati. Á endanum ráða hlustendur alltaf ferðinni á Bylgjunni.
Ég er stoltur yfir því að eiga dálítinn þátt í 25 ára sögu Bylgjunnar. Til
hamingju Bylgjan og takk fyrir mig!“ Simmi V.
„Ég leyfi mér að fullyrða að
það eru fáir vinnustaðir eins
skemmtilegir og Bylgjan. Innan
veggja hennar ríkir gleði, jafn-
ingastemning og samstaða.
Á Bylgjunni er leitast við að
snerta þjóðarsálina daglega og
finna allt þetta skemmtilega og
áhugaverða í dagsins önn. Ekki
veitir af!
Sjálfur hef ég verið hlustandi
og unnandi Bylgjunnar í 25 ár
þrátt fyrir að vera aðeins rúmum
áratug eldri en hún.
Ég hef oft gert grín að því
þegar ég hóf mín fyrstu spor fyrir
Bylgjuna á næturvöktum. Ég var
rétt kominn úr mútum og iðulega
búið að hringja fyrst í alla aðra
útvarpsmenn, áður en leitað var
til mín.
En mér tókst að brjóta mér
leið og láta draum minn rætast;
að verða dagskrárgerðarmaður á
Bylgjunni, og fyrir það tækifæri
og þá reynslu verð ég alltaf þakk-
látur.
Bylgjan væri ekki svipur hjá
sjón ef tónlistarfólk gæfi ekki
heimild fyrir því að spila tónlist
og tónverk þeirra.
Íslensk tónlist er í stóru hlut-
verki á Bylgjunni og við erum
listafólki mjög þakklát fyrir
ómetanlegt framlag þess við að
skemmta hlustendum Bylgjunnar.
Afmælisbarnið Bylgjan mun
fylgja þjóðinni um ókomna tíð og
við gleðjumst á aldarfjórðungs af-
mæli. Til hamingju Bylgjan.“
Byrjaði á næturvöktum
Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365
FRÁ HLUSTANDA