Fréttablaðið - 02.09.2011, Síða 2
2. september 2011 FÖSTUDAGUR2
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
6
7
4
... og rjómi
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
Krónan Bónus Víðir Fjarðar-
kaup
Nettó Samkaup/
Úrval
Hagkaup Nóatún
Matarkarfa 29. ágúst 2011
10
.1
03
10
.1
29
10
.2
82
10
.9
16
11
.1
18
12
.1
36
12
.2
68
12
.9
12
Kamilla, er ekkert bóluefni til
við þessu?
„Dr. Airwaves mælir með 200
hljómsveitarpillum sem teknar eru
yfir fimm daga. Þá ætti fólk að hafa
veturinn af.“
Kamilla Ingibergsdóttir starfar fyrir
Iceland Airwaves. Breska hljómsveitin
The Vaccines, eða Bóluefnin, hefur hætt
við að koma fram á tónlistarhátíðinni
vegna veikinda söngvarans.
FÓLK Útivistartími barna og ung-
linga tók breytingum í gær, 1.
september. Nú mega 12 ára börn
og yngri vera úti til klukkan 20 en
13 til 16 ára unglingar til klukkan
22. Aldur miðast við fæðingarár.
Bregða má út af reglunum fyrir
síðartalda hópinn þegar unglingar
eru á heimleið frá viðurkenndri
skóla-, íþrótta- eða æskulýðssam-
komu.
Útivistarreglurnar eru sam-
kvæmt barnaverndarlögum. Þeim
er meðal annars ætlað að tryggja
nægan svefn.
Breyttur útivistartími:
16 ára mega
vera úti til tíu
DÓMSMÁL Nítján ára síbrotamaður
hefur verið dæmdur í tólf mánaða
fangelsi fyrir ránstilraun og önnur
auðgunarbrot.
Maðurinn ruddist inn í útibú
Arion banka í Hraunbæ í janúar síð-
astliðnum, með andlit sitt hulið og
vopnaður steinhellu. Hann skipaði
gjaldkera að afhenda sér peninga
og henti hellunni í gegnum glerið á
næstu gjaldkerastúku. Hann hvarf
á brott eftir að gjaldkerinn sagðist
enga peninga hafa til að afhenda
honum. Þá er maðurinn einn-
ig dæmdur fyrir að stela hinu og
þessu; bílum, mat úr verslun, síma,
Nítján ára síbrotamaður fær sjöunda dóminn á þremur árum:
Í árs fangelsi fyrir ránstilraun
HEILBRIGÐISMÁL Almenn bólusetn-
ing gegn leghálskrabbameini
hefst hér á landi seinni hluta
þessa mánaðar, að því er segir
í frétt á vef landlæknis. Í vetur
verður stúlkum sem fæddar eru
1998 og 1999 boðin bólusetning
og framvegis verða 12 ára stúlk-
ur bólusettar árlega.
Bólusett verður með bóluefn-
inu Cervarix og felur full bólu-
setning í sér þrjár sprautur sem
gefnar verða á sex til tólf mánaða
tímabili.
Áætlað er að bólusetja stúlk-
urnar í skólum landsins en fram-
kvæmd bólusetningarinnar er í
höndum heilsugæslunnar. - ibs
12 ára stúlkur bólusettar:
Bólusett við
leghálskrabba
Þrátt fyrir að vera aðeins nítján ára hefur maðurinn hlotið sjö dóma frá árinu
2008. Fyrst þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir þjófnað og síðar
sama ár hlaut hann dóm fyrir brot gegn valdstjórninni en var ekki gerð sér-
stök refsing. Hann hlaut eins árs fangelsi árið 2009 fyrir rán, líkamsárás og
fleira og sex mánaða fangelsi í apríl 2010 fyrir líkamsárás, þjófnað, brot gegn
valdstjórninni og fleira til. Þá hefur hann hlotið tvo aðra dóma á þessu ári,
einn tveggja mánaða fyrir fjársvik og annan fyrir þjófnað og nytjastuld án
þess að vera gerð sérstök refsing.
Ungur en með mikinn afbrotaferil
bíllyklum og græjum og greiðslu-
korti annars manns og nota það.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust
og var tekið tillit til þess við ákvörð-
un refsingar, sem og þess hversu
ungur að árum hann er. Manninum
er gert að greiða Arion banka 208
þúsund krónur í bætur. - sh
VESTFIRÐIR Þeim einstaklingum
með lögheimili á Vestfjörðum
sem sóttu menntun á framhalds-
skólastigi á síðasta ári hefur
fækkað sé miðað við árið 2009.
Alls voru 578 nemendur skráðir í
nám á síðasta ári en þeir voru 660
árið 2009. Þetta kemur fram á vef
Bæjarins besta.
Fleiri konur en karlar sækja
nám í framhaldsskóla, en árið
2010 voru 309 konur með lög-
heimili á Vestfjörðum skráðar, 15
ára og eldri. Karlarnir voru 269
talsins. Árið 2009 voru konurnar
357 en karlarnir 303 og árið 2008
voru þær 342 en karlarnir 273. - sv
Færri námsmenn fyrir vestan:
Fleiri konur en
karlar í námi
EVRÓPUSAMBANDIÐ Sautján Nóbels-
verðlaunahafar í hagfræði lýstu því
yfir nýverið að evrusvæðið muni
lifa af skuldakreppu Grikkja og
fleiri nauðstaddra evruríkja.
Fari hins vegar svo, að skipta
þurfi evrusvæðinu upp, þá telja
þeir skynsamlegra að Þýskaland
taki pokann sinn og segi skilið við
myntbandalagið en að Grikkland
verði rekið úr hópnum.
Það var fréttastofan Reuters
sem skýrði frá þessu. Meðal hag-
fræðinganna sautján eru Joseph
Stiglitz, Myron Scholes og Robert
Mundell.
Í viðtali við Reuters segir Stig-
litz að það yrði enginn hægðarleik-
ur að skipta evrusvæðinu niður í
smærri svæði: „Það er mjög erfitt
að afhræra hrærð egg,“ segir hann.
Hann segir hins vegar að hag-
fræðingar séu almennt að komast á
þá skoðun að Þýskaland, sem er vel
stætt efnahagslega, ætti auðveld-
ara með að segja skilið við hópinn
en Grikkland.
Skuldabagginn myndi halda
áfram að sliga Grikkland, sem ætti
afar erfitt með að ná sér á eigin
spýtur. Þjóðverjar myndu hins
vegar spjara sig ágætlega. - gb
Sautján Nóbelsverðlaunahafar segja evruna lífvænlega þrátt fyrir skuldakreppu:
Þjóðverjar fari frekar en Grikkir
PAPANDREÚ OG MERKEL Forsætisráðherra Grikklands og kanslari Þýskalands á
einum fjölmargra funda um skuldavanda evruríkjanna. NORDICPHOTOS/AFP
KÖNNUN Um 34 prósent lands-
manna styðja ríkisstjórnina,
samkvæmt þjóðarpúlsi Capacent
Gallup. Þetta kom fram í fréttum
RÚV í gær.
Samkvæmt þjóðarpúlsinum
nýtur Sjálfstæðisflokkurinn
stuðnings 35,6 prósenta
kjósenda. Um 21,9 prósent styðja
Samfylkinguna, og 16,8 prósent
Framsóknarflokkinn.
Fylgi Vinstri grænna hefur
ekki verið minna í fjögur ár, og
mælist nú 14,3 prósent. Um 2,9
prósent sögðust styðja Hreyf-
inguna í könnuninni.
Alls sögðust 8,6 prósent ætla að
kjósa önnur framboð. - bj
Ný könnun á fylgi flokkanna:
Um þriðjungur
styður stjórnina
Frávísunarkrafa fyrir dóm
Landsdómur mun koma saman
á mánudag, en þá mun fara fram
munnlegur málflutningur um frávís-
unarkröfu Geirs. H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra. Landsdómur
hefur áður hafnað frávísunarkröfu
Geirs, sem byggði á því að Lands-
dómur hafi ekki verið rétt skipaður.
LANDSDÓMUR
ÞÝSKALAND Eftir 98 daga hlaup
um skóga Bæjaralands náðist
að koma böndum á þýsku kúna
Yvonne í gær. Kýrin hafði notið
frelsisins síðan í maí, en er nú
komin undir manna hendur.
Óvíst er hvort Yvonne átti sæld-
arlíf í frelsinu, en hún var hundelt
af veiðimönnum eftir að lögreglan
hafði sett 10 þúsund evrur til höf-
uðs henni. Forsendan var að hún
gæti verið ökumönnum á svæð-
inu hættuleg. Illa gekk þó að ná
Yvonne og virtist henni líka vistin
í Ölpunum betur en á bóndabýl-
inu, hvar hún hafði fram að því
alið manninn, tja eða kúna.
- kóp
Þýsk kýr frjáls í 98 daga:
Yvonne hand-
sömuð á flótta
FRELSIÐ ER YNDISLEGT Þýska flóttakýrin
Yvonne náðist loks í Ölpunum eftir 98
daga flótta. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDUR Allt að 28 prósenta verð-
munur er á matarkörfu ASÍ á milli
Krónunnar, þar sem hún er ódýr-
ust, og Nóatúns, þar sem hún er
dýrust.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð í átta matvöruverslunum síð-
astliðinn mánudag. Matarkarfan í
Krónunni kostaði 10.103 krónur en
12.912 krónur í Nóatúni. Lítill verð-
munur reyndist vera á verði matar-
körfunnar á milli Bónuss, Krón-
unnar og Víðis, en karfan var 26
krónum dýrari í Bónus en í Krón-
unni, og 179 krónum dýrari í Víði.
Dæmi eru um mikinn verðmun í
öllum vöruflokkum. Sem dæmi má
nefna morgunkornið Cheerios, sem
var ódýrast á 804 krónur kílóið hjá
Fjarðarkaupum en dýrast á 1.254
krónur kílóið hjá Nóatúni, sem er
56 prósenta verðmunur.
Matarkarfa ASÍ samanstendur
af 33 almennum neysluvörum til
heimilisins, til dæmis mjólkurvör-
um, morgunkorni, grænmeti, kjöti,
og drykkjarvörum, ásamt ýmsum
pakkavörum, dósamat og fleiru.
Könnunin var gerð á sama tíma
í verslunum Bónuss, Krónunnar,
Nettó, Fjarðarkaupa, Samkaupa
Úrvals, Víðis, Hagkaupa og Nóa-
túns. Kostur Dalvegi neitaði sem
fyrr að taka þátt í könnuninni. For-
svarsmenn verslunarinnar hafa
ítrekað bannað starfsfólki ASÍ að
taka niður verð í versluninni.
Bónus gagnrýnir vinnubrögð ASÍ
varðandi verðkönnunina. Í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu segir að ítrek-
að hafi verið gerðar athugasemdir
við vinnubrögð ASÍ, meðal annars
vegna þess að ekki séu teknir ódýr-
ustu kostir í hverjum vöruflokki
hjá Bónus.
„Dæmi um misræmi í vinnu-
Matarkarfan reynist
ódýrust í Krónunni
Allt að 28 prósenta verðmunur er á matarkörfu ASÍ í Krónunni og Nóatúni.
Krónan, Bónus og Víðir bjóða lægsta verðið. Bónus gagnrýnir könnunina en
ASÍ vísar gagnrýninni á bug. Dæmi eru um 56 prósenta verðmun á vörum.
brögðum ASÍ eru ódýrustu banan-
arnir sem kosta 198 krónur kílóið
í verslunum Bónus, en eru sagðir
kosta 257 krónur,“ segir í tilkynn-
ingunni. Leiðrétting á þessari einu
rangfærslu geri Bónus ódýrustu
verslunina í könnuninni.
ASÍ svara gagnrýninni fullum
hálsi og segir að verðlagseftirlit-
ið vinni eftir ákveðnum verklags-
reglum. Þessi verðkönnun hafi
verið framkvæmd á sama tíma í
öllum verslunum og skráð niður
það verð sem neytendum stóð til
boða á þeim tímapunkti. Það sé
venjan við slíkar kannanir.
„Nokkuð ber á því að afslættir
séu ekki sýnilegir og eru þeir þar
af leiðandi ekki teknir með,“ segir
í yfirlýsingu frá ASÍ.
sunna@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
KRÓNAN Dæmi eru um 56 prósent verðmun á vörum á milli verslana í verðkönnun
ASÍ. Matarkarfan reyndist ódýrust í Krónunni en dýrust í Nóatúni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS