Fréttablaðið - 02.09.2011, Side 17
FÖSTUDAGUR 2. september 2011 17
Tilboð í nafla alheimsins
Það kemur margt gott frá útlöndum. Ég er til dæmis
þakklátur fyrir að hafa IKEA á
Íslandi, mér finnst leiðinlegt að
McDonald’s hafi farið, ég vona
að Bauhaus opni einn daginn
og mig dreymir um H&M-búð
á ofanverðum Laugaveginum.
Ég myndi fátt vilja frekar en
að hingað kæmu fleiri vondar
erlendar keðjur til að græða á
Íslendingum. Þeir sem verslað
hafa beggja vegna hafsins, og
víðar, vita að þar er oft gaman að
láta græða á sér.
Ekki misskilja mig. Mér finnst
líka gaman að láta innlenda
aðila græða á mér. Um daginn
lét ég smyrja hjólið mitt á hjóla-
verkstæði úti á Granda og nú
hjólar það næstum því sjálft upp
brekkur. Það eru fjölmörg lítil og
metnaðarfull fyrirtæki um land
allt sem yndislegt er að styðja
með viðskiptum. Sum selja pítsu-
sneiðar í miðbænum, önnur
flytja inn hljóðfæri frá fjarlæg-
um heimshlutum og enn önnur
keyra mann heim um miðja nótt.
Mér finnst almennt gaman að
láta taka af mér peninga. Mér
er sama hvort sá sem þá fær er
Íslendingur eða ekki, eða íbúi
hér, svo lengi sem ég verð glaður
með það sem ég fæ. Sama ætl-
ast ég til af þeim sem tekur af
mér peninga: að hann skeyti sem
minnstu um hver og hvaðan ég
er og sem mestu um það hvort ég
verði ánægður með viðskiptin.
„Marxíska“ prófið
Það er til fræg tilvitnun í banda-
rískan grínista, Groucho Marx,
þar sem hann segist ekki vilja
tilheyra neinum þeim klúbbi sem
myndi samþykkja sig sem með-
lim. Þetta getur verið sniðug krí-
tería á fleiri sviðum. Ef maður
kláraði ekki grunnskóla þá ætti
maður til dæmis að efast eilítið
um þann háskóla sem samþykkir
námsumsókn manns fyrirvara-
laust. Svipaðar áhyggjur hef ég
raunar stundum, í fullri hrein-
skilni, af sumum þeirra erlendu
fjárfestinga sem rætt er um hér-
lendis nú um stundir. Ég er ekki
viss um að þeir sem eru á þess-
ari stundu tilbúnir í að fjárfesta
í því hagkerfi sem ríkir á Íslandi
séu þeir sem við helst vildum fá.
Það er dálítill ævintýrabragur á
sumum þeirra.
Mér líður þannig eins og verið
sé að tala niður til okkar þegar
erlendar fjárfestingar eru rök-
studdar með klisjum um græna
orku, og Íslandsáhuga þeirra
sem fjárfesta. Að auki er auðvi-
tað rétt að hafa áhyggjur af því
að sum þeirra sveitarfélaga sem
taka eiga á móti stórum fyrir-
tækjum muni ekki hafa burði til
þess. Getur sveitarfélag veitt
vinnuveitanda fjórðungs íbúa
þess sterka viðspyrnu? Varla.
En þá skiptir litlu máli hvers
lenskur vinnuveitandinn er.
Gæta þarf að lagaumgjörðinni
um fjárfestingar en ekki ætti að
reyna að hindra þær með úrelt-
um þjóðernistólum.
Auðvitað megum við ekki
vera of bláeyg. Jarðakaup eru
eitt. Loforð um uppbyggingu
og hvernig hún eigi að vera eru
annað. Og þótt þau áform sem nú
hafa verið kynnt á Grímsstöðum
hljómi nákvæmlega eins og hið
margtuggða „eitthvað annað“
sem ítrekað var kallað eftir, þá
ættu menn ekki að æsa sig um
of. Ekki þarf að vera að af þeim
áformum verði eða að þau verði
með þeim hætti sem lofað er.
Það skiptir samt ekki öllu máli.
Í grunninn snýst þetta um hvort
banna eigi Íslendingum að selja
útlendingum jarðir.
Þjóðerni er vont skilyrði
Í lok eignarréttarákvæðis
stjórnarskrárinnar segir
„Með lögum má takmarka rétt
erlendra aðila til að eiga fast-
eignaréttindi eða hlut í atvinnu-
fyrirtæki hér á landi“. Það er
tillaga stjórnlagaráðs að þessi
setning fari út. Það er góð hug-
mynd. Ríkisborgararéttur eða
lögheimili á Íslandi í einhvern
tíma er ekki trygging fyrir því
að menn hagi sér skynsamlega.
Þar að auki geta klókir samn-
ingamenn leyst slíkar hindran-
ir. Peningar finna leið.
Við Íslendingar viljum, eðli
málsins samkvæmt, geta keypt
fasteignir í öðrum löndum. Að
sama skapi ættu íslensk lög
ekki að krefja útlendinga um
leyfi til að kaupa fasteignir hér.
Vilji menn stuðla að náttúru-
vernd, stýra auðlindanýtingu og
hafa áhrif á atvinnuuppbygg-
ingu eru flestar aðrar leiðir
skynsamlegri og sanngjarnari
en sú að líta til þjóðernis vænt-
anlegra kaupenda.
Pawel Bartoszek
Stærðfræðingur
Í DAG
Og þótt þau áform sem nú hafa verið
kynnt á Grímsstöðum hljómi nákvæm-
lega eins og hið margtuggða „eitthvað
annað“ sem ítrekað var kallað eftir, þá ættu menn
ekki að æsa sig um of.
AF NETINU
Afhjúpandi
Framsetning Samtaka fjármála-
fyrirtækja vegna afskrifta lána er
athyglisverð – eða kannski má
segja að hún sé afhjúpandi.
Þar segir að lán einstaklinga
hafi verið færð niður um 143,9
milljarða. Þetta eru lán í bönkum
og fjármálafyrirtækjum, hjá
Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum.
En 120 milljarðar eru komnir til
vegna gengistryggðra lána – sem
dómstólar úrskurðuðu að væru
ólögleg. Þá eru ekki eftir nema um
25 milljarðar sem eru raunveruleg
niðurfærsla lána. Það er að megn-
inu vegna hinnar svonefndu 110
prósenta leiðar, en eins og bent
hefur verið á getur ábatinn af henni
horfið fljótt þegar verðbólga er jafn
mikil og nú. Það má svo bera þetta
saman við ýmsar aðrar afskriftir í
kerfinu – auðmenn eru að fá miklu
stærri fjárhæðir en þetta felldar
niður og það sem meira er, þess er
gætt að þeir þurfi ekki að sjá á bak
eignum sínum.
http://silfuregils.eyjan.is
Egill Helgason
Biðlund aumingja
Biðlund Þingeyinga er að bresta,
segir Bergur Elías Ágústsson, bæjar-
stjóri Norðurþings. Eftir lýsingu
hans að dæma bíða Þingeyingar
með hendur í skauti eftir að ríkis-
stjórnin útvegi þeim vinnu. Átakan-
legasta dæmi um pilsfalda-kapítal-
isma, sem ég hef séð. Samkvæmt
bæjarstjóranum gerist ekkert í
Þingeyjarsýslum, nema ríkið útvegi
vinnuna. Helzt við að byggja orku-
ver í Gjástykki og álver á Húsavík.
„Biðin eftir atvinnuuppbyggingu er
orðin býsna lönd, biðlundin er að
verða anzi lítil,“ segir hann. Geta
þessir aumingjar ekki andskotast
upp af rassinum og stofnað sprota-
fyrirtæki eins og aðrir?
http://jonas.is/
Jónas Kristjánsson
Vörslusviptingar
Staðreyndin er sú að langflestir
greiðendur afhenda bifreiðarnar
til fjármálafyrirtækjanna þegar
þeir geta ekki staðið í skilum með
greiðslur. Það eru hins vegar alltaf
einhverjir sem hætta að greiða fyrir
afnotin, neita að afhenda bifreiðina
og nýta hana áfram á ábyrgð
fjármálafyrirtækjanna gagnvart
tjóni þriðja aðila og sköttum og
gjöldum. Slík háttsemi er refsivert
auðgunarbrot.
http://www.pressan.is/pressu-
pennar/Lesa_Brynjar/
Brynjar Níelsson