Fréttablaðið - 02.09.2011, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
EINN SEM ÞÚ VERÐUR AÐ PRÓFA
BORGARI
RISA
Hann er svo stór að hann
dugar fyrir heila fjölskyldu
STÆRSTI
HAMBORGARI
Á ÍSLANDI
Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000,
grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is
460 g af hreinu ungnautakjöti
í risa hamborgarabrauði, ostur,
salat, tómatar, icebergsalat,
beikon, ljúffeng grillsósa
og fullt af frönskum. 4.490 kr.
GRILLHÚSSINS
S
álfræðineminn Ása María
Reginsdóttir hefur lengi
haft gaman af því að elda
og er sannkallaður lista-
kokkur. „Áhuginn kviknaði í raun
þannig að mér fannst gaman að
gera fallegan mat og í dag legg
ég upp úr því að elda góðan mat
sem jafnframt gleður augað. Það
á bæði við þegar ég býð fólki í mat
eða elda fyrir mig og unnustann,“
segir Ása María og heldur áfram:
„Mér finnst til dæmis sérstaklega
gaman að gera salöt og leik mér
þá með litina og reyni að gera þau
sem fallegust, en þannig finnst
mér maturinn verða lystugri og
betri.“
En ertu listræn að öðru leyti?
„Ég veit það nú ekki en okkur
finnst gaman að hafa fallegt í
kringum okkur og finnst skipta
máli hvernig maturinn lítur út og
er borinn fram,“ segir Ása María
sem býr með fótboltamanninum
Emil Hallfreðssyni í Verona á
Ítalíu þar sem hann leikur með
Hellas Verona. Þar drekkur hún
í sig ítalska matargerðarlist og
hefur jafnvel fengið að kíkja í
pottana á veitingastöðum. „Við
höfum komið okkur vel á meðal
heimamanna og ég fæ stundum
að kíkja inn í eldhús og hjálpa til.“
Er draumurinn þá að opna eigin
veitingastað? „Já, hver veit,“ segir
Ása María og deilir uppskrift í
uppáhaldi.
„Þetta er í grunninn kjúklinga-
súpa frá vinkonu systur minnar
sem hefur tekið nokkrum breyt-
ingum í gegnum árin. Hún er til-
valin í veislur og fer vel í unga
sem aldna. Það er hægt að bera
hana fram með nachos en okkur
finnst gott að setja ost, kóríander
og sólblómafræ út á.“
vera@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJÚKLINGASÚPA
með kóríander og sólblómafræjum FYRIR 4-6
Matreiðsluáhugi Ásu Maríu Reginsdóttur kviknaði þannig að henni fannst gaman að gera fallega rétti.
Leggur upp úr
fallegum mat
1 risastór laukur
fullt af íslensku smjöri
3-4 msk. sterkt karrí
2 kjúklingateningar
4 hvítlauksrif
3 dósir Hunts tómatar
með basil, oregano &
hvítlauk
1 stór dós niðursoðnar
ferskjur
1 grillaður kjúklingur
1/2 l matreiðslurjómi
1/2 l rjómi
svartur pipar
Meðlæti
rifinn ostur
kóríander
sólblómafræ
Aðferð
Skerið laukinn gróft.
Steikið ásamt hvítlauk,
smjöri og karrí. Bætið
tómötunum og smá-
vegis af vatni við. Leysið
teningana upp í örlitlu
heitu vatni og blandið
saman við. Opnið
ferskjudósina og hellið
vökvanum í pottinn.
Kryddið með svörtum
pipar og látið malla í
nokkrar mínútur. Skerið
ferskjurnar í smáa bita.
Rífið kjúklinginn niður í
góða munnbita. Blandið
rjómanum við rétt áður
en súpan er borin fram.
Dreifið osti, kóríander
og sólblómafræjum yfir
hverja skál.
Fjölskyldudagur verður haldinn á Laugarvatni um
helgina. Þar verður boðið upp á gönguferðir með
Müllersæfingum, stafagöngu, íþróttir og næringarráð-
gjöf svo dæmi séu nefnd. Háskólalestin verður á
staðnum með eldorgel, undraspegla, teiknirólu og
snúningshjól.