Fréttablaðið - 02.09.2011, Síða 30
NAGLALAKK FYRIRSÆTUNAR ER ROAD HOUSE BLUES
OPI INNIHELDUR EKKI DBP, TOLUENE EÐA FORMALDEHYDE
Fæst í öllum helstu snyrtivöruverslunum
og apótekum landsins.
Nánari upplýsingar á artica.is
LITIR HÆGRI TIL VINSTRI: Are We There Yet?,
I Eat Mainely Lobster, My Address is
“Hollywood,” Color to Diner For, Honk If You
Love OPI, Road House Blues, Suzi Takes the
Wheel, French Quarter for Your Thoughts, Uh-
Oh Roll Down the Window, A-taupe the Space
Needle, Get in the Expresso Lane, I Brake for
Manicures
4 föstudagur 2. september
T
ískustraumar tíunda ára-
tugarins hafa sótt í sig
veðrið undanfarin ár og
má nú finna slíkan fatn-
að víða. Grunge-ið kom aftur fram
á sjónarsviðið fyrir nokkru síðan og
nú hafa buxnakjólar, blómamynstur
og Dr. Martens-skór fylgt í kjölfarið.
Grunge-tískan var tengd tón-
listarstefnu að sama nafni
og kom fyrst fram á sjónar-
sviðið á fyrri hluta tíunda
áratugarins. Líkt og tónlistin
var grunge-tískan eins konar
andsvar við tískustraum-
um og stefnum þess tíma.
Ógreitt hár, rifnar gallabux-
ur, köflóttar skyrtur, lagskipt-
ing og strigaskór voru í miklu
uppáhaldi meðal þeirra sem
fylgdu straumum grunge-ins.
Stefnan festi sig þó í sessi og
árið 1993 hannaði Marc Jacobs
sumarlínu fyrir Perry Ellis í anda
grunge-ins. Jacobs var þó rekinn stuttu síðar.
Í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210 má sjá annars konar tísku-
strauma, blómakjóla, smekkbuxur, stutt pils og hvíta sokka við ökkla-
skó. Ljósu gallabuxurnar tröllriðu öllu og stuttermabolir eða magabol-
ir sömuleiðis. - sm
Síðkjóll frá Spútnik
Flott fyrirsæta Fyrirsætan
Kate Moss var að stíga sín
fyrstu skref innan tískubrans-
ans á þessum tíma.
Óskabarn tíunda áratugarins Winona Ryder var óskabarn tíunda áratugarins. Hér
sést hún í ljósum gallabuxum og stuttermabol.
Leður og stuttbuxur Drew Barrymore klæðist galla-
stuttbuxum, en þær hafa verið mjög í tísku síðustu tvö
árin.
Hvítklædd söngkona Írska söngkon-
an Sinéad O’Connor var ein af fyrir-
myndum ungu kynslóðarinnar á tíunda
áratugnum. Hér klæðist hún síðkjól og
hinum vinsælu Dr. Martens-skóm.
NORDICPHOTOS/GETTY
Heklaður topp-
ur frá Top Shop
Vagabond, fást í
Kaupfélaginu
TÍSKA TÍUNDA ÁRATUGARINS SNÚIN AFTUR:
GAMALT
OG GOTT