Fréttablaðið - 02.09.2011, Qupperneq 32
6 föstudagur 2. september
Grensásvegur 16, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18
laugd 12–17
ÚTSÖLULOK
VERÐSPRENGJA
5 VERÐ:
1000 - 1500 - 2000
2500 - 3000
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Ingibjörg Gréta
Gísladóttir vakti
athygli fyrir vasklega
framgöngu sína með
fatahönnunarkeppnina
Reykjavík Runway. Ingi-
björg hefur komið víða
við á lífsleiðinni en hún
er menntuð leikkona
og viðskiptafræðingur
með brennandi áhuga á
fótbolta.
Mynd: Anton
Orð: Álfrún Pálsdóttir
Förðun: Harpa Kára/MAC
H
önnun breytir heim-
inum,“ seg ir Ing i-
björg Gréta Gísladótt-
ir, framkvæmdastjóri
Reykjavík Runway.
„Ég er þakklát öllum þeim sem
komu að þessu verkefni og gerðu
það að veruleika með því að vinna
með hjartanu,“ segir Ingibjörg,
sem er þessa dagana að gera upp
keppnina og sjá hvað má betur
fara fyrir næsta ár. Hún er nefni-
lega hvergi hætt og stefnir á að
halda næstu keppni í nóvem-
ber 2012. „Ég er ennþá að vinna
í þessu en maðurinn minn er
reyndar búinn að láta mig vita að
hann vilji fara að sjá meira af mér
heima fyrir.“
LEIKKONAN SEM LAUG SIG
TIL SPÁNAR
Ingibjörg býr í smáíbúðahverfinu
ásamt börnum sínum tveimur,
manni og hundi. Hún útskrifað-
ist árið 1991 úr Leiklistarskólan-
um og vann við leiklistina í nokk-
ur ár eftir útskrift.
„Ég útskrifaðist sem leikkona á
síðustu öld en í dag nýt ég leiklist-
arinnar í stað þess að skapa hana
sjálf. Leiklistin er stór partur af
mér og mér finnst gott að koma
í leikhúsið og verða fyrir áhrif-
um,“ segir Ingibjörg og fullyrðir að
leikkonudraumurinn sé ennþá til
staðar og hún geti hugsað sér að
vinna við leiklistina aftur í fram-
tíðinni.
Eftir að hafa lifað í leiklistinni í
nokkur ár stóð Ingibjörg á kross-
götum, vildi söðla um og sótti um
stöðu fararstjóra á Spáni. „Það má
eiginlega segja að ég hafi logið
mig til Spánar. Ég fékk starfið
á þeim forsendum að ég kynni
spænsku, sem ég gerði alls ekki.
Ég sagði að ég hefði lært spænsku
en að ég þyrfti bara að rifja hana
upp,“ segir Ingibjörg og brosir
á meðan hún rifjar upp þennan
tíma. „Ég hafði engar áhyggjur af
því heldur tók ég bara eitt nám-
skeið áður en ég flutti út og treysti
á að þetta mundi koma með tím-
anum. Fyrsta veturinn úti komst
ég ansi langt, enda neitaði ég að
tala annað en spænsku. “
HAGSÝNA HÚSMÓÐIRIN
Tíminn á Spáni lengdist í sjö ár
og eignaðist hún tvo börn með
spænskum barnsföður sínum.
Þegar hún loks flutti heim var
hún einstæð tveggja barna móðir
og þá tók hin hagsýna húsmóð-
ir völdin.
„Ég var ekki tilbúin aftur í hark-
ið sem fylgir leiklistinni, ætlaði
nú aldeilis að gera eitthvað meira
praktískt og skellti mér í við-
skiptafræðinám á Bifröst. Það var
frábær tími en ég neita því ekki að
hann var líka erfiður, sérstaklega
þar sem dóttirin svaf varla heila
nótt allan tímann, en þetta tókst
nú allt á endanum,“ segir Ingi-
björg, sem sérhæfði sig í nýsköp-
Ég hef tískuna kannski ekki í puttunum,
enda ekki hönnuður sjálf en ég nýt
hennar fram í fingurgóma.”
Dreymir um íslenskt tískuhús Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Runway, trúir því að hönnun breyti heiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BAK VIÐ TJÖLDIN
Í TÍSKUHEIMINUM