Fréttablaðið - 02.09.2011, Side 34
8 föstudagur 2. september
©
20
11
E
liz
ab
et
h
A
rd
en
,
In
c.
Kynlíf foreldra og áhugaleysi
?Maki minn hefur næstum því algerlega misst áhugann á kynlífi. Er svona áhugaleysi tímabundið eða varanlegt? Henni þykir líkamsvessi minn
tengdur kynlífi ógeðslegur og það hefur aukist með árunum. Er eðlilegt að
konum þyki slíkt ógeðslegt? Hvað veldur?
SVAR: Það er ómögulegt að segja hvort áhugaleysi makans er varanlegt eða
tímabundið þar sem margir þættir geta spilað inn í. Það væri ráðlagt að leita
ráðgjafar hjá kynfræðingi sem gæti aðstoðað ykkur við vandann og hvern-
ig mætti leysa úr honum. Sama á við um líkamsvessann, mig grunar að það
gæti tengst áhugaleysi makans á kynlífinu. Vessarnir eru hluti af kynlífi og ef
henni þykja þeir ógeðfelldir er sennilegt að áhugi hennar til kynlífs minnki.
Þetta þarf að skoða nánar með aðstoð kynfræðings.
? Er foreldrum óhætt að stunda kynlíf í sama herbergi og ungbarn ef þau deila herberginu? Hvenær fara smábörn að taka eftir slíkri hegðun og
muna eftir henni?
SVAR: Minnið er flókið fyrirbæri og rannsóknir hafa sýnt að
ungbörn muni og geti hermt eftir því sem þau læra nokkrum
dögum seinna. Hvað varðar kynlíf, þá er skilningur þeirra
á fyrirbærinu oftast ekki til staðar. Þrátt fyrir að barn um
eins árs aldur sjái ykkur stunda kynlíf er ólíklegt að það
hafi merkingu í huga þess. Hvað ungbarn varðar þá ættu
þið ekki að hafa áhyggjur af því að stunda kynlíf með
það inni í herberginu. Foreldrahandbækur mæla með að
kynlíf sé stundað þegar barnið sefur, svo þið getið notið
ykkar áhyggjulaust. Barnið ætti þá að gista í sínu eigin
rúmi, bæði ykkar vegna og vegna öryggi barnsins. Hávaði
er svo annað. Ef barnið vaknar auðveldlega við læti þarf
að taka tillit til þess. Börn þroskast á mismunandi hraða
og mörg eru farin að mynda þriggja orða setningar og
spyrja spurninga um tveggja ára gömul, en eru farin að
veita hlutum athygli mun fyrr. Þetta er því í raun spurn-
ing um hvernig þið ætlið að nálgast umræðu um kyn-
ferðisleg málefni við barnið ykkar. Ef barnið sér ykkur
stunda kynlíf, ætlið þið að útskýra athöfnina sem eðlilega
hegðun, eða nálgast þetta með skömm og neita að tala
um það? Nú er ég ekki að leggja til að þið stundið kyn-
líf markvisst fyrir framan barnið, alls ekki, en kynlíf og
samfarir eru eðlilegur hluti af lífi fullorðins fólks. Börn
vilja fá kynfræðslu frá foreldrum sínum og hún þarf að
byrja snemma. Opin umræða um kynferðisleg málefni
leiðir af sér jákvæðari sýn á kynlíf og þau börn byrja
seinna að stunda kynlíf og nota frekar getnaðarvarnir.
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um
umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Patti Smith er ekki síður þekkt sem tískufyrirmynd
en tónlistarmaður, en látlaus og tilgerðarlaus fata-
stíll hennar hefur verið mörgum konum innblástur í
gegnum árin. Smith var hluti af pönkhreyfingunni í
New York á áttunda áratugnum og er tónlist hennar
blanda af rokktónlist og ljóðagerð. Smith hefur
gjarnan verið nefnd „amma pönksins“ enda hefur
hún enst lengur en margur annar í tónlistarbrans-
anum.
Fimm hlutir sem þú vissir ekki um Patti Smith:
AMMA
PÖNKSINS
Fögur Patti Smith situr fyrir hjá ljósmynd-
ara í Los Angeles árið 1974.
NORDICPHOTOS/GETTY
Flott Smith stödd baksviðs á barnum
CBGB’s árið 1977. Hún hefur alltaf þótt
flott tískufyrirmynd.
Á sviðinu Patti Smith mynduð á sviði
árið 1978.
★Foreldrar Smith ólu hana upp
sem Vott Jehóva og hlaut hún
strangt trúarlegt uppeldi. Hún
sagði þó skilið við söfnuðinn
á unglingsaldri og snerist til
búddatrúar.
★Smith hætti í skóla árið 1964
og hóf störf í verksmiðju nærri
heimili sínu. Hún eignaðist
dóttur árið 1967 en gaf hana til
ættleiðingar.
★Smith og systir hennar fluttu
til Parísar árið 1969 og unnu
fyrir sér með því að leika tón-
list á götum úti. Þegar Smith
sneri aftur til New York flutti
hún inn á Chelsea-hótelið,
sem hefur verið heimili margra
kunnra tónlistarmanna.
★Smith giftist tónlistarmann-
inum Fred Smith og göntuð-
ust vinir hennar með það að
hún hefði aðeins gifst honum
því hann bæri sama eftirnafn
og hún. Með Fred, sem lést árið
1994, átti hún tvö börn, Jack-
son og Jesse, en Jackson er
kvæntur Meg White, trommara
hljómsveitarinnar The White
Stripes.
★Smith vinnur um þessar
mundir að sinni fyrstu glæpa-
sögu. Hún er mikill aðdáandi
glæpasagna og voru bækurn-
ar um Sherlock Holmes í miklu
uppáhaldi hjá henni er hún
var barn.
Ávallt töff Smith í Los
Angeles árið 2001. Hún
er engu minna flott í
dag en hún var fyrir
fjörutíu árum.