Fréttablaðið - 02.09.2011, Side 40
2. september 2011 FÖSTUDAGUR6
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
FULL BÚÐ
AF NÝJUM
VÖRUM
Aðeins tvö verð á
útsöluvörum 1.990 - 2.990
Vegna hruns í bílasölu í kjölfar efnahagshrunsins hefur ekki verið valinn
bíll ársins á Íslandi síðustu þrjú ár. Nú verður gerð bragarbót þar á og í dag
verður tilkynnt um bíl ársins 2012. Fyrir valinu stendur Bandalag íslenskra
bílablaðamanna (BÍBB).
Bílunum er skipt í þrjá flokka. Níu bílar komust í úrslit. Í flokki minni fólks-
bíla eru það Ford Fiesta, Ford Focus og Audi A1. Í flokki stærri fólksbíla eru
BMW 520, Volvo S60 og Kia Sportage. Í flokki hybrid- og metanbíla eru það
Lexus CT 200, Volkswagen Passat og Toyota Auris.
Dómnefndin tekur tillit til útlits og hönnunar bílanna, aksturseiginleika,
afkastagetu, eldsneytisnotkunar og visthæfi, öryggisbúnaðar og endursölu-
virðis svo ýmislegt sé nefnt. Veittur verður verðlaunaskjöldur fyrir sigur-
vegara í hverjum flokki en stigahæsti bíllinn í heildina hlýtur Stálstýrið og
sæmdarheitið Bíll ársins 2012. Nánari upplýsingar eru á www.billarsins.is.
Bíll ársins valinn í dag
TILKYNNT VERÐUR UM VAL Á BÍL ÁRSINS 2012 Í DAG. NÍU BÍLAR KOMUST Í
ÚRSLIT EN VEITT ERU VERÐLAUN FYRIR SIGURVEGARA Í ÞREMUR FLOKKUM.
Bílarnir sem komust í úrslit í vali á bíl ársins 2012.
Flómarkaður verður haldinn á
Eiðistorgi á morgun frá klukkan
11 til 17. Öllum er frjálst að
kaupa og selja enda söluplássið
ókeypis.
Flóa- og kompumarkaðir hafa
átt auknu fylgi að fagna undan-
farin ár. Flóamarkaðurinn á Eið-
istorgi hefur verið haldinn þrisv-
ar sinnum síðastliðinn vetur og
vor og eftir sumarfrí er nú blásið
til leiks á ný. Á morgun geta allir
sem vilja komið með kompudótið
sitt, föt og annað og boðið það falt
gestum og gangandi.
Anna Þóra Björnsdóttir setti
upp bás á markaðnum fyrstu
helgina í júní ásamt tveimur vin-
konum sínum. „Við vorum að selja
gömul föt og ýmislegt dót, fullt af
kiljum sem voru mjög vinsælar
og jafnvel gamlar myndavélar,“
segir Anna Þóra. Algengasta verð-
ið á markaðnum segir hún vera frá
500 til 1.500 krónur enda séu fæst-
ir að leita eftir dýrum munum.
Þær vinkonur græddu samt vel.
„Við vorum þrjár saman og seld-
um fyrir áttatíu þúsund krónur,“
upplýsir hún og segir fólk óhrætt
við að prútta sem geri stemn-
inguna skemmtilega. „Svo getur
maður fundið alls konar gullmola
þarna,“ segir hún glettin.
Markaðurinn verður opinn frá
11 til 17. Ekki er tekið gjald fyrir
plássið heldur getur fólk sett upp
bása endurgjaldslaust meðan
húsrúm leyfir. Tekið skal fram
að fólk verður að koma með eigið
borð. Ef vel tekst til er líklegt
að markaðurinn verði haldinn
fyrsta laugardag í mánuði fram
að jólum.
Gullmolar til sölu
Flóamarkaður verður haldinn á Eiðistorgi á morgun frá 11 til 17.
Sýnir á LÓKAL Þremur útskriftarnemum úr Fræði og framkvæmd hefur
verið boðið að sýna verk sín á leiklistarhátíðinni LÓKAL um helgina. Þeirra á
meðal er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sem sýnir verkið Dagskrá um eldingar
í Norðurpólnum í kvöld klukkan 18.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín