Fréttablaðið - 02.09.2011, Page 40

Fréttablaðið - 02.09.2011, Page 40
2. september 2011 FÖSTUDAGUR6 Sölustaðir: 10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Aðeins tvö verð á útsöluvörum 1.990 - 2.990 Vegna hruns í bílasölu í kjölfar efnahagshrunsins hefur ekki verið valinn bíll ársins á Íslandi síðustu þrjú ár. Nú verður gerð bragarbót þar á og í dag verður tilkynnt um bíl ársins 2012. Fyrir valinu stendur Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB). Bílunum er skipt í þrjá flokka. Níu bílar komust í úrslit. Í flokki minni fólks- bíla eru það Ford Fiesta, Ford Focus og Audi A1. Í flokki stærri fólksbíla eru BMW 520, Volvo S60 og Kia Sportage. Í flokki hybrid- og metanbíla eru það Lexus CT 200, Volkswagen Passat og Toyota Auris. Dómnefndin tekur tillit til útlits og hönnunar bílanna, aksturseiginleika, afkastagetu, eldsneytisnotkunar og visthæfi, öryggisbúnaðar og endursölu- virðis svo ýmislegt sé nefnt. Veittur verður verðlaunaskjöldur fyrir sigur- vegara í hverjum flokki en stigahæsti bíllinn í heildina hlýtur Stálstýrið og sæmdarheitið Bíll ársins 2012. Nánari upplýsingar eru á www.billarsins.is. Bíll ársins valinn í dag TILKYNNT VERÐUR UM VAL Á BÍL ÁRSINS 2012 Í DAG. NÍU BÍLAR KOMUST Í ÚRSLIT EN VEITT ERU VERÐLAUN FYRIR SIGURVEGARA Í ÞREMUR FLOKKUM. Bílarnir sem komust í úrslit í vali á bíl ársins 2012. Flómarkaður verður haldinn á Eiðistorgi á morgun frá klukkan 11 til 17. Öllum er frjálst að kaupa og selja enda söluplássið ókeypis. Flóa- og kompumarkaðir hafa átt auknu fylgi að fagna undan- farin ár. Flóamarkaðurinn á Eið- istorgi hefur verið haldinn þrisv- ar sinnum síðastliðinn vetur og vor og eftir sumarfrí er nú blásið til leiks á ný. Á morgun geta allir sem vilja komið með kompudótið sitt, föt og annað og boðið það falt gestum og gangandi. Anna Þóra Björnsdóttir setti upp bás á markaðnum fyrstu helgina í júní ásamt tveimur vin- konum sínum. „Við vorum að selja gömul föt og ýmislegt dót, fullt af kiljum sem voru mjög vinsælar og jafnvel gamlar myndavélar,“ segir Anna Þóra. Algengasta verð- ið á markaðnum segir hún vera frá 500 til 1.500 krónur enda séu fæst- ir að leita eftir dýrum munum. Þær vinkonur græddu samt vel. „Við vorum þrjár saman og seld- um fyrir áttatíu þúsund krónur,“ upplýsir hún og segir fólk óhrætt við að prútta sem geri stemn- inguna skemmtilega. „Svo getur maður fundið alls konar gullmola þarna,“ segir hún glettin. Markaðurinn verður opinn frá 11 til 17. Ekki er tekið gjald fyrir plássið heldur getur fólk sett upp bása endurgjaldslaust meðan húsrúm leyfir. Tekið skal fram að fólk verður að koma með eigið borð. Ef vel tekst til er líklegt að markaðurinn verði haldinn fyrsta laugardag í mánuði fram að jólum. Gullmolar til sölu Flóamarkaður verður haldinn á Eiðistorgi á morgun frá 11 til 17. Sýnir á LÓKAL Þremur útskriftarnemum úr Fræði og framkvæmd hefur verið boðið að sýna verk sín á leiklistarhátíðinni LÓKAL um helgina. Þeirra á meðal er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sem sýnir verkið Dagskrá um eldingar í Norðurpólnum í kvöld klukkan 18. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins. MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI? Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Blaðberinn bíður þín

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.