Fréttablaðið - 02.09.2011, Side 48
2. september 2011 FÖSTUDAGUR28 28
menning@frettabladid.is
Verði þér að góðu (Kassinn)
Fös 2.9. Kl. 20:00
Lau 3.9. Kl. 21:30
Sun 4.9. Kl. 21:00
Lau 10.9. Kl. 19:30
Sun 11.9. Kl. 19:30
Listaverkið (Stóra sviðið)
Lau 1.10. Kl. 16:00 2. sýn.
Lau 1.10. Kl. 19:30 3. sýn.
Sun 2.10. Kl. 19:30 4. sýn.
Fös 7.10. Kl. 19:30 5. sýn.
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2.9. Kl. 19:30 16. sýn.
Lau 3.9.Kl. 19:30 17. sýn.
Fös 9.9. Kl. 19:30 18. sýn.
Lau 10.9. Kl. 19:30 19. sýn.
Fös 16.9. Kl. 19:30 20. sýn.
Lau 17.9. Kl. 19:30 21. sýn.
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18.9. Kl. 19:30 2. sýn.
Fös 23.9. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 24.9. Kl. 19:30 4. sýn.
Sun 25.9. Kl. 19:30 5. sýn.
Fös 30.9. Kl. 19:30 6. sýn.
Lau 1.10. Kl. 19:30 7. sýn.
Sun 2.10. Kl. 19:30 8. sýn.
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 28.8. Kl. 14:00 31. sýn.
Sun 4.9. Kl. 14:00 32. sýn.
Sun 11.9. Kl. 14:00 33. sýn.
Sun 18.9. Kl. 14:00 34. sýn.
Sun 25.9. Kl. 14:00 35. sýn.
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 21.10. Kl. 19:30 2. sýn.
Fim 27.10. Kl. 19:30 3. sýn.
Fös 28.10. Kl. 19:30 4. sýn.
Fim 3.11. Kl. 19:30 5. sýn.
Fös 4.11. Kl. 19:30 6. sýn.
Mið 9.11. Kl. 19:30 7. sýn.
Lau 19.11. Kl. 19:30 8. sýn.
Ö
U
Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 3.9. Kl. 22:00
Fös 9.9. Kl. 22:00
Fös 16.9.Kl. 22:00
Fös 23.9. Kl. 22:00
Fös 30.9. Kl. 2:00
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
lÍs en ku
A PARNIR
s
Útivistarjakkar 20% til 60% afsláttur
Útivistarbuxur 20% til 60% afsláttur
og fleira og fleira...
Ekki missa af þessu
akmarkað magn!
Þjóðleikhúskjallarinn geng-
ur í endurnýjun lífdaga
þegar skemmtisýningin
Uppnám verður frumsýnd.
Pörupiltarnir bjóða upp á
heimspekilegt uppistand
og Viggó og Víóletta halda
músíkalskt sjálfshjálpar-
námskeið.
Skemmtisýningin Uppnám verður
frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum
annað kvöld. Sýningin er tvískipt
og hefst á sýningu Pörupiltanna,
Homo Erectus, og lýkur á Sjálfs-
hjálparsöngleik Viggós og Víólettu.
Túlkun Pörupiltanna Dóra Maack,
Nonna Bö og Hermanns Gunnars-
sonar er í höndum leikkvennanna
Alexíu Bjargar Jóhannesdóttur,
Maríu Pálsdóttur og Sólveigar Guð-
mundsdóttur.
„Við bregðum okkur í hlutverk
karlmanna sem kynntust á sjálfs-
styrkingarnámskeiði hjá Vinnu-
málastofnun,“ segir Sólveig. „Þeir
hafa farið á mörg slík námskeið
og hafa því svör á reiðum höndum
varðandi ýmis samfélagsleg vanda-
mál. Þeir ræða einnig samskipti
kynjanna í bland við ljóðalestur og
dans. Sýninguna mætti kalla heim-
spekilegt uppistand.“
Að fyrri sýningu og hléi loknu
stígur á svið tvíeykið glaðlynda
Viggó og Víóletta. Það samanstend-
ur af leik- og söngvurunum Bjarna
Snæbjörnssyni og Sigríði Eyrúnu
Friðriksdóttur, sem saman hafa
glatt gesti ýmissa skemmtana und-
anfarin þrjú ár. Flytja þau Sjálfs-
hjálparsöngleik Viggós og Víólettu,
sem tekur á útlendingahatri, kyn-
þáttafordómum og öllum öðrum
vandamálum heimsins.
„Tvíeykið telur meðvirkni bæta
allt, best sé að sópa öllu undir tepp-
ið og brosa,“ segir Bjarni, sem lofar
áhorfendum magakrampa af hlátri.
Nokkrar endurbætur hafa verið
gerðar á kjallara Þjóðleikhússins í
sumar, sviðið hefur verið stækkað
og áætlað að sýna fleiri verk.
„Við erum mjög spennt að vera
með fyrstu frumsýninguna í nýjum
Þjóðleikhúskjallara,” segir Bjarni.
Söngleikurinn er klukkustundar
langur og er sungið í þrjú korter.
Textar eru samdir við stef úr söng-
leikjum á borð við Rocky Horror
Show, Litlu hryllingsbúðina og söng-
leikinn Legally Blonde. Eitt frum-
samið lag er í sýningunni. Ber það
heitið Aðdáendaher og er farið að
hljóma í útvarpi.
„Þetta er alvöru söngleikjasmell-
ur,“ segir Bjarni. Að frumsýningu
lokinni verður Uppnám sýnt öll
föstudagskvöld í september klukkan
22. Hægt er að nálgast miða á miði.
is og leikhusid.is.
hallfridur@frettabladid.is
SKEMMTUN Í UPPNÁMI
UPPNÁM Skemmtisýningin er tvískipt; fyrir hlé halda Pörupiltar heimspekilegt uppistand en tvíeykið tónelska Viggó og Víóletta
heldur námskeið um gildi þess að sópa öllum vandamálum undir teppið og brosa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sviðslistaþing Leiklistarsam-
band Íslands (LSI) verður hald-
ið í Tjarnarbíói á sunnudag í
tengslum við Lókal-hátíðina. Nor-
ræn sviðsverk verða í forgrunni
á þinginu enda kemur norrænt
samstarf til með að vera áberandi
í starfi LSI á komandi ári.
„Við vildum nota tækifærið og
fjalla um samlegðaráhrif þess
að Norðurlöndin vinni saman til
að koma sér á kortið á alþjóða-
vísu,“ segir Ása Richardsdótt-
ir, forseti LSI. Gestafyrirlesari
á þinginu verður Åsa Edgren,
stjórnandi umboðsskrifstofunn-
ar Loco World. Hún fjallar um
sameiginlegt norrænt verkefni í
Norður-Ameríku, sem ætlað er
að auka sýnileika norræna sviðs-
lista. Verkefnið hefst í ársbyrjun
2012 og stendur til 2016.
Norrænt samstarf hefur færst
í aukana á vettvangi sviðslista
á Íslandi undanfarin misseri,
eins og mátti til dæmis merkja á
Lókal-hátíðinni í fyrra sem og í
ár. Að ári verða síðan haldnir nor-
rænir leiklistardagar hér á landi.
„Það er okkar trú að við fáum
meiru áorkað ef við leggjum
krafta okkar saman,“ segir Ása
Richardsdóttir. „Við höfum líka
komist að því í gegnum þessi nor-
rænu samstarfsverkefni að það
eru mjög merkilegir hlutir að
gerast á Norðurlöndunum.“
Norrænar bókmenntir og kvik-
myndir hafa vakið nokkra athygli
á alþjóðavísu undanfarið og segir
Ása sannarlega dæmi um sviðs-
listamenn sem hafi gert það líka.
„Það er mikið af sterku sviðs-
listafólki á Norðurlöndunum
sem hafa vakið athygli fyrir
utan landsteinana, meðal annars
Vesturport og Erna Ómarsdóttir
svo ég nefni tvö íslenskt dæmi.
En það má auðvitað alltaf gera
enn betur, ekki síst ef við stillum
saman strengi okkar.“
Vonir standa til að Kynningar-
miðstöð íslenskra sviðslista verði
stofnuð um næstu áramót en Ása
segir mikla þörf á slíkri miðstöð.
„Hún myndi virka sem bak-
hjarl sviðslistafólks, jafnt stofn-
ana, hópa sem þegar hafa getið
sér gott orð á alþjóðavettvangi
sem og þeirra sem eru að stíga
sín fyrstu skref.“
Sviðslistaþingið í Tjarnarbíói
hefst klukkan 11 á sunnudags-
morgun.
- bs
Sviðslistaþing í Tjarnarbíói
ÁSA RICHARDSDÓTTIR
Tilnefnt til netverðlauna
Netleikhúsið Herbergi 408 er
tilnefnt til Evrópsku útvarps-
og sjónvarpsverðlaunanna
(Prix Europa) fyrir verkið
Jökla. Þetta er í annað sinn sem
leikhúsið er tilnefnt til verð-
launanna í flokki nýrra miðla
en fyrra skiptið var fyrir verk-
ið Herbergi 408 árið 2010.
Jöklar er gagnvirkt netverk
unnið í smiðju leikskáldsins
Hrafnhildar Hagalín og leiklist-
arkonunnar Steinunnar Knúts-
dóttur, en þær stóðu einnig að
Herbergi 408. Jöklar var flutt
samtímis á fimm stöðum á land-
inu fyrr á þessu ári.
Í tilefni af tilnefningunni
opnar leikhúsið gagnvirka net-
útgáfu af Jöklum á slóðinni her-
bergi408.is klukkan 16 í dag.
Nýjasta verk netleikhúss-
ins Herbergi 408 er School of
Transformation, sem unnið var
í samvinnu við norska netleik-
félagið Mobile Homes, og hefur
verið sýnt undanfarið í Tjarnar-
bíói.
JÖKLAR Steinunn Knútsdóttir,
Hrafnhildur Hagalín og Árni Pétur
Guðjónsson.
SÍÐUSTU FORVÖÐ Í KRÝSUVÍK Síðasti dagur sýningarinnar Huldufólk og talandi steinar í Sveinshúsi
í Krýsuvík verður á sunnudag, frá klukkan 13 til 17.30. Sýningin lýsir myndheimi Sveins Björnssonar sem var
að þróast yfir í fantasíur upp úr 1960 í verkum sem sýnd voru á samsýningum hans og danskra listamanna á
Charlottenborg í Kaupmannahöfn á 7. áratugnum.