Fréttablaðið - 02.09.2011, Qupperneq 59
FÖSTUDAGUR 2. september 2011 39
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 www. tengi.is
Mora FMM handlaugartæki
Tilboð kr. 11.500,-
Almar Emotion
Tilboð kr. 2.800,-
Adria sturtuhorn 80 án botns
Tilboð kr. 44.200,-
Einnig fáanlegt 90 cm
Stálvaskar
Verð frá kr. 13.900,-
Mora FMM eldhústæki
Tilboð kr. 11.500,-
Sphinx salerni, GEBERIT kassi
seta og þrýstispjald
Tilboð kr. 49.900-
FMM 9000E baðtæki.
Tilboð kr. 28.500,-
Hannaðu heimilið með Tengi
50% - af
slætti.
20% afsláttur af öllum vörum*
*nema af sérverðum og heitum pottum
*Sértilboð *Sértilboð*Sértilboð
*Sértilboð *Sértilboð *Sértilboð
*Sértilboð
FÓTBOLTI Húsvíkingurinn Hallgrím-
ur Jónasson var valinn í íslenska
landsliðið fyrir leikina gegn Nor-
egi og Kýpur en Ísland mætir fyrr-
nefnda liðinu ytra í dag. Hann segist
ánægður með að hafa fengið kallið en
Fréttablaðið hitti á Hallgrím á hóteli
íslenska liðsins í Osló.
„Ég er alltaf ánægður með að vera
valinn í íslenska landsliðið. Ég hef
nokkrum sinnum verið valinn og
spilað einn leik - gegn Færeyjum í
Kórnum,“ sagði Hallgrímur en hann
hóf atvinnumannaferilinn árið 2009
þegar hann fór til GAIS í Svíþjóð frá
Keflavík. Hann var lánaður fyrir
núverandi tímabil til SönderjyskE í
Danmörku þar sem hann hefur staðið
sig vel í upphafi tímabilsins.
„Það eru sjö leikir búnir og við
erum í þriðja sæti. Menn eru því
jákvæðir á þeim bænum eins og er,“
sagði Hallgrímur sem segist hafa
fagnað tækifærinu á að komast til
Danmerkur. „Ég var ekki að fá þau
tækifæri hjá GAIS sem ég taldi að ég
ætti skilið og ég hef þar að auki alltaf
haft áhuga á að spila í Danmörku.
Þetta voru því bara góð skipti fyrir
mig.“
Samningurinn rennur út um
áramótin og er óvíst hvað tekur
við þá. „Það hafa verið einhverjar
þreifingar á milli félaganna en ég veit
ekki hvernig þau mál standa. Það eina
sem ég get gert er að spila þessa leiki
og reyna að gera mitt besta.“
Hann er ánægður með þann
tíma sem hann hefur verið í
atvinnumennskunni. „Ég er mjög
ánægður. Ég hef lært mjög mikið
og tekið út mikinn þroska. Reyndar
byrjaði ég á því að fara í aðgerð og
spilaði því ekki mikið í upphafi. En
síðan þá hefur mér gengið vel og ég
hef ekkert nema gott um dvölina að
segja.“
Spurður um framtíðaráætlanir
segir hann stefnuna vera að spila
í sterkari deild. „Ég hef lengi
sagt að draumurinn sé að kom-
ast til Hollands. Ég var þar
þegar ég var ungur og
það er eitthvað sem
heillar mig við
hollenska bolt-
ann. Ef ég held
áfram að gera
mitt besta þá
vona ég að
sá draumur
geti ræst
einn dag-
inn.“ - esá
Hallgrímur Jónasson, leikmaður SönderjyskE og íslenska landsliðsins, vill færa sig sunnar í Evrópu:
Vil taka næsta skref á ferlinum í Hollandi
1. deild karla
HK - Haukar 0-2
0-1 Björgvin Stefánsson (11.), 0-2 Hilmar Trausti
Arnarsson (82.). HK er fallið í 2. deild.
Þróttur R. - ÍR 1-3
1-0 Sveinbjörn Jónasson (34.), 1-1 Árni Freyr
Guðnason (45.), 1-2 Jón Gísli Ström (55.), 1-3
Árni Freyr Guðnason (65.)
Leiknir R. - Fjölnir 3-0
1-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson (22.), 2-0 Ólafur
Hrannar (35.), 3-0 Ólafur Hrannar (90.+3)
STAÐAN Í DEILDINNI
ÍA 19 14 3 2 45-12 45
Selfoss 19 12 2 5 34-16 38
Haukar 20 10 5 5 28-17 35
Fjölnir 20 8 7 5 30-29 31
BÍ/Bolungarvík 19 9 4 6 24-29 31
Víkingur Ó. 19 8 4 7 28-21 28
Þróttur R. 20 8 2 10 24-40 26
KA 19 7 2 10 25-32 23
ÍR 20 6 4 10 25-36 22
Grótta 19 4 7 8 14-25 19
Leiknir R. 20 4 4 12 26-30 16
HK 20 2 6 12 20-36 12
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOTLI Björn Bergmann Sigurð-
arson var hetja íslenska 21 árs
landsliðsins í 2-1 sigri á Belgum
á Vodafonevellinum í gærkvöldi
en þetta var fyrsti leikur íslenska
liðsins í undankeppni EM 2013.
Björn Bergmann skoraði bæði
mörkin þar af sigurmarkið þrem-
ur mínútum fyrir leikslok.
„Það er alveg bókað að við
ætlum í annað ævintýri í þessari
keppni. Þetta eru frábærir strák-
ar og þeir eru ekkert síðri heldur
en hinn hópurinn. Við reynum að
fara alla leið,“ sagði Björn Berg-
mann og hann var ánægður með
mörkin sín. Björn Bergmann var
aðeins einn af þremur leikmönn-
um í 21 árs liðinu í dag sem var
með í úrslitakeppni EM í Dan-
mörku í sumar
„Ég er ekki búinn að vera að
skora mikið með félagsliðinu
mínu og var ekki búinn að skora
í síðustu fimm leikjum. Það
komu tvö núna og það er alveg
geðveikt,“ sagði Björn Bergmann
sem hefur þó lagt upp ófá mörkin
fyrir félaga sína í Lilleström í
sumar. „Það telur líka en það er
miklu skemmtilegra að skora
sjálfur,“ sagði Björn Bergmann
léttur að lokum. - óój
Björn Bergmann kláraði Belga:
Ætla að fara
aftur alla leið
BJÖRN BERGMANN SIGURÐARSON Átti
mjög flottan leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM