Fréttablaðið - 02.09.2011, Blaðsíða 62
2. september 2011 FÖSTUDAGUR42
í Kirkjuhvoli í Garðabæ
Sprenghlægileg
og smart sýning!
EB, Fbl.
KHH, Ft. Föstud. 2.sept kl.20
Laugard. 3. sept kl.21.30 (In English)
Sunnud. 4.sept kl.21
PARTÝSÝNING ÁRSINS!
Örfáar aukasýningar í september
Miðasölusími: 551 1200
eða á leikhusid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Tvímælalaust lagið Emergency
með Ruede Hagelstein.“
Alexander Briem fjöllistamaður.
„Það geta oft verið mikil læti en
maður tekur ekki eftir því. Það
er kannski einna helst þegar fólk
kemur í heimsókn að einhver
hefur orð á þessu,“ segir Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir, hinn 23
ára gamli fyrirliði Íslandsmeist-
araliðs Stjörnunnar í knattspyrnu.
Stjarnan, með Gunnhildi í
broddi fylkingar, rauf loks ára-
langa einokun og áskrift Vals að
Íslandsmeistaratitlinum í kvenna-
knattspyrnu þegar liðið lagði Aft-
ureldingu á þriðjudaginn. Og
það er kannski engin tilviljun að
Gunnhildur skuli bera fyrirliða-
bandið því heima fyrir þarf hún
að kljást við nánast heilt fótbolta-
lið af systkinum. Þau eru allt í allt
átta; einn eldri bróðir, fjórar yngri
systur og tveir litlir bræður. „Það
hefur aldrei vantað barnapíur á
heimilið og við höfum yfirleitt
hjálpast að. Við höfum samt allt-
af verið mjög sjálfstæð og getað
bjargað okkur sjálf.“
Og fjölskyldan í Garðabænum
er eins ólík og meðlimirnir eru
margir, knattspyrnugenið hefur til
að mynda ekki ratað í alla. „Urður,
sem er nítján, hefur aldrei haft
neinn áhuga á íþróttum en bæði
Ilmur, fimmtán ára, og Þórunn,
fjórtán ára, æfa. Yngri bræður
mínir, Sæmundur og Sigurður
Tumi, eru hins vegar ekkert fyrir
fótbolta, þeir elska að lesa og læra.
Þeir eru samt stoltir af stóru syst-
ur sinni.“
Það vantaði hins vegar ekkert
upp á mætinguna á þriðjudaginn
þegar öll fjölskyldan mætti til
að hvetja lið Stjörnunnar áfram
og Gunnhildur viðurkennir að
það hafi verið frábær stund. „Ég
hef æft síðan ég var átta ára og
það var frábært að upplifa það að
Stjarnan skyldi vera orðin eitt af
bestu liðum landsins.“ Gunnhild-
ur, sem á kærastann Ólaf Arnar,
efast hins vegar um að hún eigi
sjálf eftir að eignast jafn mörg
börn og foreldrar sínir. „Nei, ég
held að besta forvörnin gegn því
að eignast mörg börn sé að eiga
mörg systkini,“ segir hún og hlær.
freyrgigja@frettabladid.is
GUNNHILDUR YRSA: MEÐ HEILT KLAPPLIÐ FYRIR SIG
Enginn skortur á stuðningi
hjá fyrirliða Stjörnunnar
SAMHELDIN SYSTKINI Frá vinstri séð: Urður (19) sem heldur á Sigurði Tuma (8) og
Gunnhildur (23) situr fyrir miðju með Elfi Fríðu (3). Ilmur (15) heldur á Sæmundi
Tóka (6) og loks situr Þórunn á gólfinu fyrir framan. Á myndina vantar elsta bróður-
inn, Tind. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það hefur greinilega jákvæð áhrif á okkur að vera
innan um þessar frjálsu ástir í leikritinu,“ segir Erna
Hrönn Ólafsdóttir, söng- og leikkona, en það vill svo
skemmtilega til að Erna er þriðji meðlimur leikhóps-
ins í Hárinu sem á von á barni.
Magni Ásgeirsson á von á sínu öðru barni í desem-
ber og Eyþór Ingi Gunnlaugsson á von á barni í
nóvember. Jóhannes Haukur Jóhannesson eignaðist
síðan son fyrir stuttu, svo í raun verða þau fjögur
með barnavagna á næsta ári.
„Þetta er skemmileg tilviljun og við höfum örugg-
lega öll smitast af kynorkunni í leikritinu. Spurning
hvort við stofnum svona foreldra-Hár-hóp okkar á
milli á næsta ári?“
Erna á von á sér á sjálfan Valentínusardaginn, 14.
febrúar, en barnið fæðist inn í stóran systkinahóp því
fimm börn eru fyrir á heimili Ernu.
„Já, það verður nóg að gera. Ég á tvö börn fyrir
og maðurinn minn á þrjú en barnið er okkar fyrsta
saman. Það verða því sex börn á heimilinu á næsta ári
og væntanlega mikið fjör,“ segir Erna, hvergi bangin
við barnaskarann. „Yngsta barnið er sex ára svo það
verður bara eitt bleyjubarn. Mitt yngsta er átta ára
svo það er orðið frekar langt síðan ég gekk í gegnum
meðgöngu síðast en mér líður prýðilega.“
Erna er þessa dagana að koma sér fyrir í útvarpi,
þar sem hún kemur inn í þáttinn Fjögur sex á FM957
ásamt Brynjari Má Valdimarssyni. „Það er alveg frá-
bært. Ég hef verið FM957-röddin undanfarið ár og
þetta er því ákveðið framhald á því.“ - áp
Frjálsar ástir hafa jákvæð áhrif
FJÖLGUN Það verður nóg að gera hjá Ernu Hrönn Ólafsdóttur á
næsta ári þegar hún bætir sjötta barninu við fjölskylduna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta er ekkert yfirskin hjá lagahöfundum sem
eru að fara saman í detox,“ segir Jón Ólafsson,
framkvæmdastjóri FTT, Félags íslenskra tón-
skálda og textahöfunda.
Dagana 5.-9. september fer fram söngvasmiðja
á vegum félagsins á Heilsuhótelinu Ásbrú í
Reykjanesbæ. Hótelið hefur einna helst verið
þekkt fyrir detox-meðferðir sínar og þar ræður
ríkjum engin önnur en Jónína Ben. Jón segir
staðsetninguna fyrst og fremst hagkvæma, þeir
taki hótelið á leigu og engin önnur starfsemi
verði í gangi á meðan. „Ég fór út á land og skoð-
aði gistiaðstöður en fann aldrei neitt nógu stórt
og ódýrt, þetta heilsuhótel er á gamla varnar-
svæðinu og allt hjá Kananum er svo stórt.“
Samkomuna heiðrar góður gestur, lagahöf-
undur að nafni Paul Simm, en hann hefur unnið
með listamönnum á borð við Amy Winehouse,
Sugababes, All Saints og Neneh Cherry. Jón
segir hann vera mikinn hvalreka fyrir íslenska
lagahöfunda. Og af þeim verður nóg á
heilsuhótelinu. Meðal þeirra sem boðað
hafa komu sína eru Jónas Sigurðs-
son, Hafdís Huld, Örlygur Smári og
Jens Hansson auk nokkurra efnilegra
lagahöfunda frá Írlandi, Danmörku
og Svíþjóð. - fgg
EKKERT DETOX Jens Hansson, Jónas Sigurðsson
og Hafdís Huld eru meðal þeirra sem ætla að
mæta í söngvasmiðju FTT á Heilsuhótelinu Ásbrú
í Reykjanesbæ. Meðal annarra gesta má nefna
Paul Simm sem vann með Amy Winehouse og
Sugababes.
Lagahöfundar leggja undir sig heilsuhótel