Fréttablaðið - 24.09.2011, Qupperneq 2
24. september 2011 LAUGARDAGUR2
Borgartún 25
Til leigu atvinnuhúsnæði
að Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Áhugasamir sendi fyrirspurn á leiga@almc.is
DÝRAHALD Lausaganga katta á
Egilsstöðum þykir nú orðið svo
mikið vandamál að bæjarstjórnin
hyggst grípa til sérstakra mótvæg-
isaðgerða.
Fljótsdalshérað fékk á dögun-
um til sín undirskriftalista með
nöfnum 26 einstaklinga sem krefj-
ast þess „að sveitarfélagið taki á
katta plágu sem herjar á íbúa“.
Þórhallur Þorsteins, sem gekkst
fyrir undirskriftasöfnuninni, segir
mælinn fullan hjá bæjarbúum
enda hafi tekið innan við klukku-
stund að safna undirskriftunum
meðal íbúa í öllu hverfum bæjar-
ins.
„Það er ekki hægt að tala um
neitt annað en plágu. Þetta á bæði
við um flækingsketti og ekki síst
heimilisketti. Þeir virða engin
lóðamörk,“ segir Þórhallur sem
kveður óþrifnaðinn vera
gersamlega óviðunandi.
„Barnabörnin geta
varla verið úti suma daga
út af kattaskít hér út um
allt. Það verður að loka
sandkössum og girða af
blómabeð og matjurta-
garða. Það er ekkert sér-
staklega skemmtilegt að
fara út og taka upp kál
eða salat þegar allt er
upprótað af köttum sem
eru búnir að gera þarfir
sínar,“ segir Þórhallur.
Bæjarstjórnin hefur
nú samþykkt að und-
irbúa aðgerðir til að
fækka óskráðum kött-
um. „Stefnt er á að átak-
ið hefjist eigi síðar en
fyrsta vetrardag,“ segir
bæjarstjórnin sem að sögn
Þórhalls lofaði reyndar
líka aðgerðum í fyrravetur
en gerði ekki neitt í málinu.
Páll Sigvaldason bæjar-
fulltrúi segir kattavand-
ann á Egilsstöðum ekki
meiri en annars staðar.
Hins vegar verði látið til
skarar skríða gegn villi-
köttum seinna í haust.
„Kettirnir verða veidd-
ir í gildru. Áður verð-
ur fólki með
heimilis-
ketti gert
viðvart
svo
það haldi sínum köttum inni á
meðan,“ segir bæjarfulltrúinn.
„Ég vil taka fram að ég hef ekk-
ert á móti því að fólk eigi ketti en
það þarf að vera skilyrði að þeir
séu á viðkomandi lóð. Sá sem gefur
leyfið fyrir kattahaldinu verður að
ganga þannig frá því að það gangi
ekki á rétt annarra,“ segir Þórhall-
ur sem í ljósi fyrri reynslu kveðst
vantrúaður á að bæjaryfirvöld
finni lausn á málinu.
„Það getur ekki endað með öðru
en að einstaklingarnir grípi bara
til eigin ráða,“ segir Þórhallur sem
ekki vill útskýra nánar í hverju
það geti fólgist. „Það er ekki nema
nokkurra daga verk að útrýma
þessu,“ bætir hann þó við.
gar@frettabladid.is
„Fárra daga verk að
útrýma köttunum“
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs boðar átak gegn kattaplágu sem sögð er geisa á Eg-
ilsstöðum. Forvígismaður undirskriftarsöfnunar segir bæjaryfirvöld áður hafa
svikið loforð um aðgerðir. Fólk „grípi til eigin ráða“ leysi bærinn ekki málið.
EGILSSTAÐIR Forvígismaður undirskriftasöfnunar vegna „kattaplágu“ á Egils-
stöðum segir eigendur þeirra og bæjaryfirvöld verða að tryggja að dýrin valdi
ekki óþrifnaði hjá öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NÁTTÚRA Kötlu hefur verið bætt
á lista Sameinuðu þjóðanna yfir
framúrskarandi jarðvanga í heim-
inum.
UNESCO, Mennta-, menning-
ar- og vísindastofnun Sameinuðu
þjóðanna, barst sextán umsóknir
um sæti á listanum og samþykkti
níu þeirra. Nú eru 87 staðir í 27
löndum á listanum.
Í frétt um málið á heimasíðu
Sameinuðu þjóðanna segir að
jarðvangurinn Katla hýsi hinn
víðfræga Eyjafjallajökul, sem
hafi sett flugumferð á annan end-
ann í fyrra. Kötlusvæðið er sagt
einkennast af jökulsorfnu lands-
lagi og eldvirkni sem hafi áhrif á
búsetu og þar gegni vistvæn ferða-
mennska lykilhlutverki.
Staðir sem veljast á listann eru
taldir búa yfir einstöku mikilvægi
í mennta- og vísindalegu tilliti, eru
einstakir í sinni röð eða búa yfir
sérstakri náttúrufegurð.
Hinir átta staðirnir sem komust
á listann í þetta sinn voru Muroto-
jarðvangurinn í Japan, Burren og
Moher-klettar á Írlandi, Bauges-
garðurinn í frönsku Ölpunum,
Apuen-svæðið í ítölsku Ölpunum,
þjóðgarðurinn Sierra Norte di
Sevilla í Andalúsíu og jarðvang-
urinn Villuercas Ibores Jara á
Spáni og kínversku jarðvangarnir
í Tianzhushan og Hong Kong.
- sh
Sameinuðu þjóðirnar bæta níu stöðum á lista sinn yfir einstaka náttúru:
Katla er framúrskarandi jarðvangur
EIN ÚTVALINNA Jarðvangurinn Katla tekur til sveitarfélaganna þriggja: Rangárþings
eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VÍSINDI Gullfiskar verða pirr-
aðir og árásargjarnir ef þeir
eru í of litlum fiskabúrum, eða í
fiskabúrum þar sem þeir fá ekki
næga örvun. Þetta er niðurstaða
vísindamanna við Case Western
Reserve-háskólann í Ohio í
Bandaríkjunum.
Það virtist mjög mikilvægt
fyrir fiskana að hafa steina,
plöntur og annað í fiskabúrinu
til að draga úr árásargirni og
almennum pirringi. Hafi fisk-
arnir skraut í búrinu til að kanna
sýna þeir mun eðlilegri hegðun,
sem er að auki mun áhugaverðari
fyrir eigendurna. - bj
Rannsakar hegðun gullfiska:
Verða pirraðir í
litlum búrum
ÁNÆGÐIR Fiskar sem hafa fjölbreytt
landslag að rannsaka í fiskabúrunum
eru ánægðari en þeir sem hafa minna
við að vera. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þórhildur, er ekki upplagt að
Ástralarnir byrji í Landeyja-
höfn?
„Jú, svo geta þeir kannski fundið
gullskipið líka þegar þeir eru komnir
í gang.“
Þórhildur Hlín Elínardóttir er upplýs-
ingafulltrúi Siglingamálastofnunar sem
átt hefur í vanda með sandburðinn í
Landeyjahöfn. Ástralskt fyrirtæki hefur nú
óskað eftir leyfi til að sjúga upp gríðarlegt
magn af sandi af hafsbotni við Suðurland
í leit að seguljárni.
KJARAMÁL Megn óánægja er í stétt lögreglu-
manna eftir úrskurð gerðardóms í gær. Dóm-
urinn komst að þeirri niðurstöðu að laun lög-
reglumanna skyldu hækka að sama marki
og samningar á almennum vinnumarkaði,
auk þrettán þúsund króna hækkunar á álags-
greiðslum. Það er talsvert undir kröfum lög-
reglumanna.
Úrskurður gerðardóms er endanleg niður-
staða í málinu og gildir ný launatafla til vors
2014.
„Við erum engan veginn sátt,“ segir Snorri
Magnússon, formaður Landssambands lögreglu-
manna, í samtali við Fréttablaðið.
„Við teljum okkur hafa átt meira inni. Það er
meira að segja viðurkennt að hluta til í dómsorð-
inu að launin okkar hafa dregist aftur úr.“
Grunnlaun lögreglumanna eftir nám í Lög-
regluskólanum voru rúmlega 211 þúsund á mán-
uði, en kröfur þeirra hljóðuðu upp á 325 þúsund.
„211 þúsund á mánuði, eftir skatta eru rétt
yfir atvinnuleysisbótum. Þessi hækkun núna er
ekki meiri en svo að nú um næstu mánaðamót
sýnist mér að meginþorri stéttarinnar muni fá
þessa lágmarks krónutöluhækkun upp á tólf þús-
und. Það sýnir bara hversu arfaslök launin eru.“
Snorri segir að útlit sé fyrir flótta úr stétt-
inni þegar tekur að ára betur í þjóðfélaginu, en
forvígismenn lögreglumanna munu funda um
ástandið og næstu skref á þriðjudag. - þj
Gerðardómur úrskurðar í launadeilu lögreglumanna við ríkið:
Lögreglumenn afar ósáttir við kjaraúrskurð
MÓTMÆLA KJARAÚRSKURÐI Um 200 lögreglumenn
komu saman fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara
í gær til að sýna samstöðu stéttarinnar. Megn
óánægja er meðal lögreglumanna með niðurstöðu
dómsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÖGREGLUMÁL Kona á sextugsaldri
var í gær úrskurðuð í Héraðs-
dómi Reykjaness í vikulangt
gæsluvarðhald, grunuð um að
hafa stungið sambýlismann sinn
á sjötugsaldri með hnífi í fyrra-
dag.
Atvikið átti sér stað síðdegis í
fyrradag í Kópavogi. Maðurinn
var stunginn nokkrum sinnum í
kvið og í hendi. Hann var fluttur
á sjúkrahús þar sem hann gekkst
undir aðgerð. Ekki var ljóst í gær
hver tildrög þessa verknaðar
voru, en konan var í annarlegu
ástandi þegar hún var flutt á lög-
reglustöð. - jss
Í vikulangt gæsluvarðhald:
Stakk sambýlis-
mann með hníf
Ráðið í kynjaða hagstjórn
Borgarráð samþykkti á fimmtudag
tillögu fulltrúa Vinstri grænna um að
ráða í stöðu sérfræðings í kynjaðri
hagstjórn og fjárhagsáætlunargerð.
Staðan verður til sex mánaða til að
byrja með.
REYKJAVÍKURBORG
VÍSINDI Vísindamönnum tókst
nýverið að búa til hreyfimyndir
með því að fylgjast með heila-
starfsemi fólks. Tæknin gæti í
framtíðinni gert fólki mögulegt
að fylgjast með hugsunum sjúk-
linga í dái, eða hlaða draumum
sínum á netið í formi kvikmynda.
Vísindamenn við Berkeley-
háskóla í Kaliforníu náðu undra-
verðum árangri þegar þeir fylgd-
ust með heilastarfsemi fólks sem
fylgdist með kvikmyndum. Þeim
tókst að búa til hreyfimyndir sem
sýndu í grófum dráttum það sem
fólkið var að horfa á.
„Við erum að opna glugga inn
í myndirnar í hausunum á fólki,“
segir Jack Gallant, prófessor við
háskólann. - bj
Framfarir í læknavísindunum:
Gera myndir
eftir hugsunum
VIÐSKIPTI Hlutabréfavísitölur
í helstu kauphöllum heimsins
hækkuðu lítillega í gær eftir
sleitulítið verðfall í vikunni.
Fallið skýrðist af ótta fjárfesta
við aðra efnahagskreppu vegna
skuldavanda verst settu evruríkj-
anna, ekki síst Grikklands. Þá
dró bandaríski seðlabankinn ekki
úr ótta þeirra er hann varaði við
veikri stöðu efnahagslífsins. Þetta
leiddi til þess að fjárfestar seldu
hlutabréf sín í stórum stíl með til-
heyrandi verðfalli. Annað eins
hefur ekki sést frá 2008, að sögn
fréttastofu Reuters. - jab
Léttir í helstu kauphöllunum:
Vikan endaði í
smávegis plús
SPURNING DAGSINS