Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 4
24. september 2011 LAUGARDAGUR4
Það er einboðið að
ríkisvaldið verði að
gera eitthvað í þessu máli
þegar tölurnar tala skýrt og
æpandi á launamun hjá hinu
opinbera.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
• Stærð: 149 x 110 x 60 cm
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
ÚTSALA
Er frá Þýskalandi
fyrir íslenskar
aðstæður
Frábært grill
FULLT VERÐ
54.900
39.900
Mikil orka 16,5 kw/h
3 kraftmiklir brennarar
Ryðfrítt lok og takkaborð
Emaleraðar grillgrindur
Viðargrind er fáanleg
svört eða viðarlituð
Innbyggð neistakveikja
Skúffa fyrir fitu. Hitamælir
Grillflötur 64 x 49cm
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
GENGIÐ 23.09.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,123
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,98 118,54
181,98 182,86
158,73 159,61
21,322 21,446
20,141 20,259
17,051 17,151
1,5475 1,5565
183,86 184,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
24°
19°
18°
21°
22°
15°
15°
25°
19°
27°
24°
31°
12°
23°
20°
15°
Á MORGUN
5-13 m/s.
MÁNUDAGUR
3-8 m/s.
8
9
7
10
8
8
5
12
13
12
11
8
8
13
7
11
13
12
6
12
5
6
12
11
12
11
8 6 10
11
10
12
VÆTUSAMT Það
dregur smám sam-
an úr vindi og vætu
er líður á daginn
en á morgun verð-
ur yfi rleitt fremur
hæg suðaustanátt
en áfram norð-
austan strekkingur
á Vestfjörðum. Útlit
fyrir fínt veður á
Norður- og Austur-
landi á mánudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
JAFNRÉTTISMÁL „Ég tek þessum
niður stöðum auðvitað mjög alvar-
lega og það er verið að vinna grein-
ingu á þeim hér í ráðuneytinu. Það
er ólíðandi að það ríki kynbundinn
launamunur hjá hinu opinbera sem
á að ganga á undan með góðu for-
dæmi,“ segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra um niður-
stöður nýrrar launakönnunar SFR,
sem sýndi að óútskýrður kynbund-
inn launamunur hefur aukist úr 9,9
prósentum í 13,2 prósent milli ára.
Samkvæmt fyrstu niðurstöðum
greiningar ráðuneytisins má rekja
um 60 prósent af launamuninum
til viðbótargreiðslna ofan á grunn-
laun einstaklinga og um 40 prósent
liggja í laununum sjálfum.
„Karlar fá meira af öllum teg-
undum aukagreiðslna og raunveru-
legra hlunninda sama hvaða nafni
þau nefnast,“ segir Jóhanna. „Við-
bótargreiðslurnar eru þannig til
komnar að þetta er svigrúm sem
forstöðumenn ríkisstofnana hafa
í samræmi við kjarasamninga.
Hluti af heildarlaunagreiðslum er
útfærður í stofnanasamningum og
þar hafa einstaka forstöðumenn
svigrúm til að ráðstafa tilteknum
hluta af því sem semst um í kjara-
samningum og þar virðist vera
pottur brotinn.“
Jóhanna segir að fyrir utan við-
bótargreiðslurnar virðist tvennt
annað hafa gerst varðandi þær
tímabundnu launalækkanir sem
var ráðist í eftir efnahagshrunið.
„Það var talið að þær myndu
bitna meira á körlum en konum, en
lækkanirnar eru nú að einhverju
leyti að ganga til baka. Það virðist
hafa verið vanmetið að lágt laun-
aðir kvennahópar hafi líka mátt
sæta lækkunum á sínum kjörum.
Karlarnir virðast að einhverju
leyti vera að sækja sínar hækkan-
ir til baka en konur með lægri laun
hafa ekki verið að fá neitt eða lítið
til baka,“ segir hún.
Samkvæmt fyrstu niðurstöð-
um ráðuneytisins virðist stærsti
hlutinn af kynbundnum launa-
mun vera milli stofnana frekar en
innan þeirra. Því stærri sem stofn-
anirnar eru og því fleiri konur sem
þar starfa, því meiri er munurinn.
„Ég tel nauðsynlegt að það verði
farið í þetta til þess að vinna á
launamuninum. Þetta verður rætt
í ráðherranefnd um jafnréttismál
sem verður kölluð saman sem
fyrst og þá munum við fara yfir
þetta lið fyrir lið,“ segir Jóhanna.
„Það er ekki hægt að líða þetta
eins og þetta er. Það er einboðið
að ríkisvaldið verði að gera eitt-
hvað í þessu máli þegar tölurnar
tala skýrt og æpandi um launamun
hjá hinu opinbera.“
sunna@frettabladid.is
Ráðherra segir ólíðandi að
ríkið mismuni eftir kyni
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ólíðandi að kynbundinn launamunur hjá hinu opinbera hafi
aukist milli ára. Mun kalla saman ráðherranefnd til að fara yfir stöðuna og setja fram viðbragðsaðgerðir.
FÓLK Íslendingurinn sem vann
fimmtíu milljónir króna í Vík-
ingalottóinu í síðustu viku er
kominn í leitirnar.
Vinningshafinn, glaðbeitt-
ur maður á besta aldri, eins
og honum er lýst í tilkynningu
Íslenskrar getspár, kom á skrif-
stofur fyrirtækisins í gærmorg-
un og framvísaði vinningsmið-
anum. Maðurinn á bæði börn og
barnabörn og sagðist nú sjá fram
á að geta aðstoðað sitt fólk í lífs-
baráttunni. Miðann keypti hann í
söluturninum Jolla í Hafnarfirði.
Á honum var aðeins ein fimmtíu
króna röð. - sh
Vinningshafinn skilaði sér:
Búinn að sækja
50 milljónirnar
Launamunur kynjanna hjá félögum SFR
2007 2008 2009 2010 2011
30
25
20
15
10
5
%
*=100% - laun kvenna/ laun karla*100
** að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma, starfsaldurs. starfsstéttar og menntunar.
*** að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma, starfsaldurs, starfsstéttar, menntunar og vaktaálags 2010.
■ Munur á meðallaunum
■ Kynbundinn launamunur**
■ Kynbundinn launamunur***
FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna Sigurðardóttir segir einboðið að ríkisvaldið verði að
bregðast við launamun kynjanna.
DANMÖRK Vélhjólasamtökin Vítis-
englar og Bandidos í Danmörku
svokallaðir „rokkarar“ hafa kom-
ist að samkomulagi um framleng-
ingu á friðarsáttmála.
Útlit var fyrir að skærur milli
rokkara myndu hefjast á ný eftir
áralangan frið þar sem samtökin
forðuðust að troða hvort öðru um
tær. Nýlega hleyptu Vítisenglar
nokrum fyrrverandi meðlimum
Bandidos inn í sínar raðir og svo
bárust fréttir af því að bæði sam-
tökin hefðu komið upp útibúum í
bænum Esbjerg á Jótlandi.
Málin virðast þó hafa róast
nokkuð því að Politiken segir frá
því að hóparnir hafi lýst því yfir
að friður skuli ríkja áfram.
„Það er rétt að friðarsamningur
er ekki lengur í gildi milli vélhjóla-
klúbbanna Vítisengla og Bandi-
dos,“ segir í sameiginlegri tilkynn-
ingu til fjölmiðla.
„Hins vegar hefur verið kom-
ist að samkomulagi sem tryggir
áframhaldandi frið milli klúbb-
anna tveggja.“
Mikill ófriður geysaði milli
rokkaranna á Norðurlöndunum um
árabil, en friður hefur haldist frá
árinu 1997. - þj
Samkomulag milli vélhjólahópanna Vítisengla og Bandidos í Danmörku:
Rokkaraerjum er afstýrt í bili
„ROKKARAR“ SEMJA FRIÐ Vítisenglar og
Bandidos hafa komist að samkomulagi
um að halda friðinn milli hópanna.
NORDICPHOTOS/GETTY
LANDHELGISGÆSLAN Fulltrúar
Landhelgisgæslu og íslenskra
stjórnvalda fengu varðskipið Þór
afhent formlega í Asmar, skipa-
smíðastöð sjóhersins í Síle í gær.
Smíði skipsins hefur staðið yfir
frá árinu 2007, en kostnaður er
innan áætlunar að því er fram
kemur í tilkynningu frá Gæsl-
unni. Þar segir aukinheldur að
nýja skipið sé tákn um nýja tíma í
öryggismálum sjómanna og vökt-
un á íslensku hafsvæði. Áætlað er
að Þór komi til landsins 27. októ-
ber. - þj
Tímamót hjá Gæslunni:
Þór afhentur
AFHENDING Ragnhildur Hjaltadóttir,
ráðuneytisstjóri í innanríkisráðuneytinu
og Georg Lárusson, forstjóri Gæslunnar,
veittu skipinu formlega móttöku í gær.
BRETLAND, AP Andy Coulson, fyrr-
um ritstjóri breska slúðurblaðs-
ins News of the World, hyggst
leggja fram kæru á hendur News
International, útgáfufélagi Mur-
doch-feðga. Coulson vill meina að
félagið hafi ætlað að greiða lög-
fræðikostnað sinn vegna símhler-
unarhneykslisins sem hefur skek-
ið breska fjölmiðlaheiminn.
News International vildi
ekki tjá sig um það hvort þeir
hafi lofað að greiða umræddan
kostnað Coulsons.
- þj
Hlerunarhneykslið í Bretlandi:
Coulson kærir
Murdoch-feðga