Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.09.2011, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 24.09.2011, Qupperneq 16
16 24. september 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ítrekaði í vikunni það sem hún hefur áður réttilega sagt um ESB-aðildarviðræðurnar að hæpið sé að núverandi ríkisstjórn geti lokið þeim vegna ágreinings um markmið. Annar flokkurinn vill gera samning til að fella en hinn til að samþykkja. Samkomulag flokk- anna gat aðeins komið viðræðum áleiðis. Á þetta hefur oft verið bent á þessum vettvangi. En nú blasir einnig við sú nýja staða að áform- in um að ljúka málinu á þessu kjör- tímabili eru úr sögunni. Eftir fund með kanslara Þýska- lands fyrir nokkrum vikum árétt- aði forsætisráðherra þá tímaáætl- un að ljúka samningum á næsta ári og hafa þjóðaratkvæði fyrir kosn- ingar. Ástæðan fyrir því að þetta er ekki leng- ur mögulegt er fyrst og fremst sú að VG hefur lagt stein í götu efnislegra við- ræðna. Utanríkis- ráðherra hefur stýrt viðræðun- um einarðlega af sinni hálfu. Í maí setti VG hins vegar skilyrði sem stöðvuðu frekari vinnu að samn- ingsmarkmiðum í landbúnaðarmál- um og í reynd á fleiri sviðum. Eftir það var ljóst að lokasamningsgerð- in yrði verkefni næsta kjörtímabils. Þetta gjörbreytir aðstæðum og kall- ar á nýja og lengri tímaáætlun um viðræðuferilinn. Fyrir vikið verða Evrópumálin lykilmál í næstu kosningum og munu ráða miklu um möguleika á stjórnarmyndun nema svo ólíklega fari að allir flokkar nái saman um hvernig skuli koma því á milli kjörtímabila. Til að komast hjá því að láta á það reyna hvort aðildarmálið er stjórnarslitamál er trúlegast að stjórnarflokkarnir sameinist um þá skýringu að hin alvarlega kreppa í heimsfjármálunum hafi breytt áformunum. Þó að hyggilegt sé að taka tillit til þeirra aðstæðna og haga viðræðunum eftir því liggur vandinn þó í ágreiningi stjórnar- flokkanna eins og Ingibjörg Sólrún hefur bent á. SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ný staða kallar á nýtt tímaplan Afstaða allra flokka hefur einkum tekið mið af því að ljúka ætti málinu á þessu kjörtímabili. Fróð- legt verður að sjá hvernig þeir bregðast við nýrri stöðu; ekki síst í ljósi þess að kannanir benda til að mikill meirihluti þjóðarinn- ar vilji ljúka viðræðunum. Evr- ópusinnar í öllum flokkum hljóta einnig að bregðast við gildum athugasemdum Ingibjargar Sól- rúnar. Þær kalla á svör og endur- skipulagningu. VG hefur aldrei upplýst hvort málamiðlunin um að standa að umsókn er bundin við þetta kjör- tímabil eða hvort hún stendur þar til lyktir fást. Þetta er grundvall- arspurning sem VG þarf nú að svara. Ef málamiðlunin er bund- in við kjörtímabilið hljóta viðræð- urnar að stöðvast. Standi hún yfir á næsta kjörtímabil liggur kosn- ingastefna VG í málinu þegar fyrir. Á hvorn veg sem svarið verður mun það hafa afgerandi áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið hörðustu afstöðuna með kröfu um tafarlaus slit á viðræð- unum sem stjórnarþátttökuskil- yrði. Mun flokkurinn þrengja stöðu sína með sama hætti á nýju kjörtímabili? Framsóknarflokkur- inn gætti sín á að hafa hæfilega loðið orðalag á afstöðu sinni um tímabundið hlé á viðræðum. Mun það halda? Taki bæði Framsóknarflokkur- inn og VG sömu afstöðu og Sjálf- stæðisflokkurinn í kosningum ein- angrast Samfylkingin með málið að því gefnu að ekkert annað ger- ist. Hvernig bregst hún við því? Hver verður kosningastefnan? Fari svo að Samfylkingin standi ein með Evrópu-málin eftir kosningar á hún þrjá kosti: Sá fyrsti er að standa við stóru orðin og láta hina flokkana um landsstjórnina. Athyglisvert er að hún skuli ekki þegar hafa gert það. Annar er að gefast upp fyrir VG og halda því samstarfi áfram með Framsókn- arflokknum. Þriðji kosturinn er að snúa sér að Sjálfstæðisflokkn- um. Eftir stendur að Evrópumálin hafa myndað tómarúm á miðju og hægri væng stjórnmálanna. Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn hafa sýnt áhuga á að nýta sér það. Fram til þessa hafa engin merki verið um ný framboð sem lík- leg væru til að fylla tómarúm- ið. Framboð Guðmundar Stein- grímssonar og Besta flokksins gæti hins vegar sett strik í reikn- inginn. Pönkframboðið heppnað- ist í borgarstjórn. Það er á hinn bóginn óskrifað blað hvort blanda af pönki og hefðbundinni pólitík gengur upp. Mun slíkt framboð hafa stefnu í Evrópumálum sem mark er takandi á? Munu Evrópusinnar í atvinnu- lífinu og verkalýðshreyfingunni sitja aðgerðarlausir og treysta á að Besti flokkinn komi í veg fyrir að Evrópumálin verði slegin út af borðinu í kosningum? Eða munu þeir eða aðrir beita sér fyrir því að tryggja framhald viðræðnanna yfir á nýtt kjörtímabil með öðrum hætti? Héðan af munu samningar taka lengri tíma en ætlað var. Ný staða gefur öllum tækifæri til að hugsa aðferðafræðina upp á nýtt. Hvernig fyllist tómarúmið? L aunamunur kynjanna er enn og aftur til umræðu. Tvær kannanir, annars vegar á vegum félaga starfsmanna hins opinbera, SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, og hins vegar stærsta stéttarfélags einkageirans, VR, sýna fram á að hann fer vaxandi á ný. Þar við bætist að munurinn er mestur hjá ríkisstarfsmönnunum í SFR. Þó heyra þeir beint undir ráðherrana, sem lofa hátíðlega í stjórnarsáttmálanum að útrýma launamuninum og ekki er launa- leyndinni fyrir að fara, sem stundum er talin ein undirrót kyn- bundins launamunar. Þetta eru sláandi niðurstöður. Að borga konu lægri laun en karli fyrir jafnverðmætt starf er brot á íslenzkum lögum og almennum mannréttindum. Og gengur furðuhægt að uppræta þau kerfisbundnu brot, sem eng- inn vill þó kannast við fyrr en launakannanirnar birtast. VR á heiður skilinn fyrir að vekja athygli á málinu með auglýs- ingaherferð. Sá hluti herferðarinnar sem gengur út á að fyrirtæki veiti konum 10 prósenta afslátt af vörum og þjónustu í einn dag til að vekja athygli á launamuninum er þó fremur misheppnaður. Þetta er alveg sérstaklega ódýr leið fyrir fyrirtæki til að skrifa upp á málstaðinn í orði og gera síðan nákvæmlega ekkert í verki til að lagfæra hið raunverulega vandamál. Eða vitum við eitthvað um það hvort fyrirtækin sem taka þátt í átakinu greiða körlum og konum sömu laun fyrir sömu vinnu? Í þessu sambandi er ástæða til að rifja upp hugmynd sem ekkert hefur verið rædd að ráði undanfarin ár, en það er að komið verði á fót svokallaðri jafnlaunavottun. Óháður aðili yrði þá fenginn til að taka út launabókhald fyrirtækja með samræmdum, viðurkenndum aðferðum og gefa fyrirtækjum sem sannanlega gerðu ekki upp á milli kynjanna opinbera vottun þar um. Þetta er hugmynd sem Árni Magnússon setti fram þegar hann var félagsmálaráðherra og unnið var að af töluverðum krafti á árunum 2005-2008. Síðan hefur minna farið fyrir verkefninu í opinberri umræðu, en á vegum Staðlaráðs hefur verið unnið að því að smíða jafnlaunastaðal sem hægt sé að miða við. Það snjalla við jafnlaunavottunina er að með þeirri aðferð er ábyrgðin á launamuninum – og að uppræta hann – sett beint í fangið á vinnuveitendum, en þar á hún að sjálfsögðu heima. Það ætti ekki að þurfa að skylda fyrirtæki eða opinberar stofnanir til að sækja sér slíka vottun, væri hún fyrir hendi. Góð fyrirtæki myndu að sjálfsögðu sjá sér hag í því að láta taka út hjá sér launakerfið því að þau ættu þá auðveldara með að sækja sér bezta starfsfólkið og nytu að auki velvildar neytenda. Þau sem ekki stæðust kröfur eða sæktust ekki eftir vottuninni myndu væntanlega með sama hætti gjalda þess, til dæmis í auglýsingaherferðum stéttarfélaga. Það er full ástæða til að dusta rykið af þessari hugmynd og hrinda henni í framkvæmd. Hún gæti orðið eitt skilvirkasta vopnið gegn kynbundnum launamun. Launamunur kynjanna fer vaxandi. Hvar er jafnlauna- vottunin? Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Það skiptir máli hvaða blað fólk gefur sér tíma til að lesa. Ný Prentmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir að lesendur á aldrinum 12-59 ára gefa sér lengri tíma til að lesa Fréttablaðið en Morgunblaðið. Við hlökkum til að færa ykkur fleiri góðar stundir í framtíðinni. Lesendur gefa sér góðan tíma í Fréttablaðið Allt sem þú þarft... 20 mín 15 mín 10 mín 5 mín 0 mín 12-14 ára 15-19 ára 20-24 ára 25-29 ára 30-34 ára 35-39 ára 40-44 ára 45-49 ára 50-54 ára 55-59 ára MBL FBL Meðal lestími í mínútum á hvert eintak* *Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Mældur er tími sem fer í lestur hvers eintaks Morgunblaðsins og Fréttablaðsins hjá lesendum á aldrinum 12-59 ára á öllu landinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.