Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 18

Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 18
18 24. september 2011 LAUGARDAGUR Nú er komið haust og umræð-an um hvort banna skuli eða leyfa rjúpnaveiðar hafin að nýju. Nýjasta kenning Náttúrufræði- stofnunar er að umferð veiði- manna á veiðislóð hafi áhrif á afkomu rjúpnastofnsins. Þetta er mjög undarleg kenning í ljósi þess að suðvesturhorn landsins hefur verið friðað fyrir rjúpnaveiðum í allmörg ár og þar með ágangi veiðimanna. Hver eru rökin fyrir því að þar fjölgar ekki rjúpu umfram þau svæði þar sem veiði- álag er mest? Svæðið frá Hval- fjarðargöngum að Ölfusárósum hefur verið friðað í allmörg ár. Náttúrufræðistofnun ætti að birta okkur veiðimönnum samanburð á rjúpnafjölda á því friðaða svæði og ýmsum öðrum svæðum á land- inu þar sem veiði er leyfð. Það ætti ekki að vera hægt að þver- fóta fyrir rjúpu á þessu svæði. Er hugsanlegt að friðun komi varg- inum einum til góða? Með friðun rjúpu á suðvestur- horni landsins voru veiðimenn, sem til margra ára gengu ein- ungis til rjúpna í þeim lands- hluta, neyddir til þess að leita á ný mið. Í stað þess að rölta í landi sem ekki telst til kjörlendis rjúpu og eiga von á að rekast á einn og einn fugl, leggja sömu menn nú í langferðir sem taka marga daga. Miklu er kostað til og því sjálfsagt að leita á svæði þar sem rjúpna- von er sem mest. Það er því aug- ljóst að þessir veiðimenn veiða nú fleiri rjúpur en þeir gerðu fyrir friðun Suðvesturlands. Fyrir bragðið hefur veiðiálagið aukist verulega á tilteknum svæðum þar sem rjúpnavon er meiri en á suðvesturhorninu. Með tillög- um Náttúrufræðistofnunar um umrædda friðun á sínum tíma var stuðlað að verulega auknu álagi á gjöfulum veiðistöðum. Ef sú vafasama kenning reynist rétt að áreitið eitt hafi áhrif á stofn- stærð rjúpunnar getur Náttúru- fræðistofnun kennt sjálfri sér um. Ég hef hlustað á erindi all- margra sérfræðinga, íslenskra og erlendra, sem allir hafa verið sammála um að því fyrr sem við hefjum og ljúkum veiðum að hausti því minni áhrif hafi veið- arnar á rjúpnastofninn. Hvers vegna hefur Náttúrufræðistofn- un ekki lagt til að veiðitímanum verði breytt? Annars staðar á Norðurlöndum er víða byrjað að veiða rjúpu 20. ágúst en ekki fyrr en 1. nóvember hér á landi. Mikil náttúruleg afföll hafa orðið frá varpi til 1. nóvember. Rjúpan hefur hópað sig, orðin hvít, sýnileg í landinu og því auð- veldur fengur. Þessu er öfugt farið í byrjun september. Þá er rjúpan enn í sumarbúningi, dreifð um móann og því er mjög erfitt að koma auga á hana. Veiðar á rjúpu eins og annarri íslenskri veiði- bráð frá byrjun september og fram í miðjan október væru krefj- andi og gefandi fyrir veiðimann- inn, til góðs fyrir rjúpnastofninn og nokkuð líklegt að kjötbragðið sé hið sama. Það geta varla talist vísindaleg rök hjá sérfræðingum Náttúru- fræðistofnunar að vísa til gamalla hefða þegar þeir eru inntir eftir því hvers vegna þeir mæli ekki með breytingu á veiðitímanum. Það að rjúpa sé orðin hvít til þess að hún sjáist betur og hóparnir hafi þétt sig þannig að veiðivon sé sem mest er arfleifð frá því að hér voru stundaðar nytjaveiðar og stóreflis útflutningur á rjúpu og á ekki að líðast nú á tímum. Ég skora á á Náttúrufræðistofn- un að gera tillögur byggðar á vís- indalegum rökum sem taka ekki mið af gömlum úreltum hefðum. Það er hlutverk pólitíkusa en ekki vísindamanna. Ef menn fallast ekki á rök um breyttan veiðitíma en vilja rjúpna stofninum og veiðimönn- um vel væri ráð að friða Norður- Þingeyjarsýslu fyrir rjúpnaveið- um þar sem mest er af rjúpu og opna þess í stað á friðuðu svæðin á Suðvesturlandi. Þá má ætla að dauðum rjúpum fækki en gengn- um skrefum veiðimanna fjölgi þeim til heilsubótar svo að ekki sé minnst á færri ekna kílómetra í misjöfnum veðrum að vetrarlagi. En ekki megum við virða örfáum Þingeyingum til vorkunnar, frek- ar en höfuðborgarbúum, að aka út fyrir sýslumörkin til veiða. Rjúpnaveiðar á villigötum AF NETINU Kröfur um sjálfstætt líf Kröfur ENIL (Evrópusamtök um sjálfstætt líf) eru skýrar. Við erum evrópskir borgarar sem þykir sjálfsagt að vera tekið fagnandi, talin jöfn og eðlilegur partur af samfélaginu. Í gær, í frelsisgöngu fatlaðs fólks, var sagt að við værum ekki hingað komin til að vera falleg. Við erum hingað komin því okkur er mismunað – meira að segja með lögum. Við erum hingað komin því á okkur er brotið með formgerð samfélagsins sem finnst það eðlilegt og hversdagslegt að brjóta mannréttindi okkar. Við erum hingað komin því við erum álitin viðfangsefni velferðar, umönnunar og góðgerðastarfs. Við erum hingað komin vegna þess að okkur er sagt að tilvist okkar sé of kostnaðarmikil. Við erum hingað komin vegna þess að áralöng barátta og vinna fatlaðs baráttufólks fyrir að breyta þessari samfélagsgerð, fyrirmynda okkar, er nú í hættu þar sem fjármagni var eytt óskynsamlega af ákveðnum aðilum, t.d. íslenskum bankamönnum. http://www.pressan.is/pressupennar Freyja Haraldsdóttir Leiktjöld Á nokkrum stöðum á Íslandi hafa risið hús sem eru í anda þess sem menn hafa ímyndað sér að byggingar til forna hafi litið út. Yfirleitt er þetta gert af ágætum vilja, en bætir svo sem ekki sérstaklega miklu við menningarhefð okkar. Byggingasaga Íslands er týnd og tröllum gefin – af þeirri einföldu ástæðu að það var byggt úr mjög forgengilegum efnum. Bæir úr torfi og grjóti hurfu aftur til jarðarinnar. Við Íslendingar eigum ekki fornar kirkjur eða klaustur. http://silfuregils.eyjan.is Egill Helgason Rjúpnaveiðar Ferdinand Hansen áhugamaður um varanlegar rjúpnaveiðar Seint vakna Sjálfstæðismenn og Jóhanna Nú hefur það gerst á Alþingi að þingmenn Sjálfstæðis- flokksins eru að vakna til vit- undar um þann mikla skaða sem nánast vopnuð árás Bret- lands hafði á mannorð og hags- muni Íslands í víðri veröld hinn 8. október 2008. Hryðjuverka- árásin svonefnda sem var sett á ríkisstjórn Íslands, Seðlabanka Íslands og hékk uppi í öllum pen- ingastofnunum heimsins um að á Íslandi byggi óþjóða- og glæpalýður, hryðjuverkafólk. Ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur brást í engu við þessari árás. Ekki heldur sú ríkisstjórn sem tók við í kjölfarið, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Reyndar ákvað fyrri stjórnin að höfða ekki mál í janúar 2009, eftir að hafa látið lögmenn óvinaþjóðarinn- ar ráðleggja sér, sem sé breska lögmenn. Hafnað var aðstoð bandarískra lögmanna sem buðu fram án endurgjalds alla aðstoð í hryðjuverkamálinu. Betra er seint en aldrei að vakna og loks- ins segist Jóhanna forsætisráð- herra tilbúin í slaginn, Þyrni- rósarsvefninn í þrjú ár er þó rannsóknarefni. Það kann að vera rétt bæði hjá Bjarna Bene- diktssyni og Guðlaugi Þór Þórð- arsyni að enn sé hægt að sækja málið fyrir dómstólum og ýmis- legt hafi gerst síðan sem kalli á slíka dómstólaleið. Forsetinn gerðist stjórnmálamaður Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér alls ófullkomna úttekt og talar um smánarupphæð á skaða Íslands við hryðjuverkaárásina og yfirlýsingu Gordons Brown í kjölfarið um að Ísland væri gjaldþrota land. Já, gjaldþrota land hvorki meira né minna. Þrjú ár eru liðin frá því að annar valdamesti maður heims lýsti þessu yfir, og viðbrögðin til varnar voru þá sama og engin. Ráðherrar Íslands glúpnuðu og það var ekki fyrr en í átökunum um Icesave að Evrópusambands- þjóðir áttuðu sig á alvöru máls- ins og því rothöggi sem aðgerð- in olli. Loksins þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms- son, steig fram, klæddist fötum forsætisráðherra Íslands og fór út á völlinn og tók upp málstað íslands með þeim hætti í erlend- um fjölmiðlum og á blaðamanna- fundum að öllum varð ljóst níðingsverkið og hundraða millj- arða skaði vopnlausrar þjóðar. Þar að auki bræðraþjóðar innan NATO við hliðina á Bretlandi og öðrum vestrænum þjóðum, starfandi á EES-svæðinu með samning við ESB. Formaður Framsóknarflokksins 15. okt. 2008 Ég stenst ekki mátið þegar sjálf- stæðismenn vakna loksins, að rifja upp smá kafla úr ræðu sem ég hélt á Alþingi 15. október 2008 um hryðjuverkalögin sem formaður Framsóknarflokksins í stjórnarandstöðu. Þetta geri ég ekki síst af því að þá sátu mér til sitt hvorrar handar í þing- salnum þeir vösku menn sem nú telja tíma kominn til að ákæra Bretana. Guðlaugur Þór að vísu á ráðherrabekk en Bjarni Bene- diktsson mér til hægri handar og efnahagsráðherrann Árni Páll Árnason til vinstri handar sem einnig segist vilja skoða ákæru í dag. Í harðri ræðu sagði ég þá eftirfarandi á Alþingi við forsætisráðherra og þáverandi ráðherra Íslands. „Ég verð að gagnrýna ríkisstjórnina og for- sætisráðherrann sérstaklega fyrir það að hafa ekki þegar snúist af fullri hörku og ákært breska forsætisráðherrann og bresku ríkisstjórnina fyrir fólskulega og hatramma árás á íslensku bankana í Bretlandi. Hryðjuverkalög – fáheyrð aðferð gegn lítilli vinaþjóð. Vont er þeirra ranglæti en verra þeirra réttlæti.“ Síðar í ræðunni bætti ég við: „Við framsóknarmenn teljum að Bretana eigi að kæra strax, kæra þá sem samstarfs- þjóð á hinu Evrópska efnahags- svæði, kæra þá fyrir ólögmæta og einstaka aðför að lítilli vina- þjóð og fyrir að úthrópa Ísland gjaldþrota.“ Jafnframt lagði ég til að í ljósi hryðjuverkalaganna yrði stjórnmálasambandi þjóð- anna slitið tafarlaust. Icesave-málið, hvað var það? Ég vil rifja þessi varnaðarorð upp hér þegar menn loksins þremur árum síðar eru að vakna og segjast vilja fram. Jafnframt hef ég aldrei skilið hvers vegna íslensk ríkisstjórn í tvígang reyndi að koma Icesave-klafan- um um háls landsmanna allt til ársins 2046? Forseti Íslands á nú ekki vini í ríkisstjórnarliðinu af því að hann fól þjóðinni að skera úr í tvígang í þessu erfiðasta og undarlegasta máli Íslands- sögunnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, var sá foringi á Alþingi sem aldrei bognaði í Icesave og barðist með þing- flokk sinn heilan gegn breskum og hollenskum hagsmunum allt þar til Guðmundur Steingríms- son hinn brotthlaupni fylgdi Samfylkingunni og ríkisstjórn- inni í seinna Icesave-málinu. En fólkið í landinu reis upp og hafn- aði máli sem ber að rannsaka og upplýsa hvers eðlis var. Var það þjónkun við aðildina að ESB að menn glúpnuðu? Hryðjuverkalög Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra Betra er seint en aldrei að vakna og loksins segist Jóhanna forsætisráðherra tilbúin í slaginn, Þyrnirósar- svefninn í þrjú ár er þó rannsóknarefni. Ég skora á á Nátt- úrufræðistofnun að gera tillögur byggðar á vísindalegum rökum sem taka ekki mið af gömlum úreltum hefðum. Það er hlutverk pólitíkusa en ekki vísindamanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.