Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 20

Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 20
O PI Ð Laugardag10:00 - 17:00 Sunnudag 11:00 - 17:00 *Afslátturinn gildir ekki á timbri og pípulagningaefni. aukaafsláttur af öllu á rýminga rsölu* 10% 20% aukaafsláttur af öllu í Outlet hl uta afsláttur! Enn meiri Síðasti dagur rýmingar- sölunnar er á morgun! Lokum í Kauptúni! Allt á að seljast! 24. september 2011 LAUGARDAGUR Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins skrifaði grein í gær þar sem hann virðist taka undir þá skoðun mína að á miðju íslenskra stjórnmála sé gat. Ég fagna samhljómi okkar Ólafs um þetta. Mér hefur lengi fundist margt í skrifum Ólafs vera skynsamlegt. Ég tel það til dæmis lykilatriði, eins og Ólafur, að aðildarviðræður við ESB verði kláraðar og það vel. Mér virðist Ólafur hafa sömu efa- semdir og ég um gjald- miðilinn okkar. Mig minnir að Ólafur hafi skrifað dálítið skörulega gegn ýmsum gamal dags hugsunarhætti í land- búnaði. Í skrifum Ólafs hef ég líka greint ríka áherslu á frelsi einstak- linga og áherslu á að ríkisvaldið reyni fyrst og fremst með aðgerð- um sínum að tryggja traustan grunn fyrir fjölbreytni í mannlífi og atvinnuháttum. Ég þori að veðja að Ólafur myndi gera sama greinarmun og ég á „liberal“ hugsjónum og „sósial demókratískum“ hugsjónum, sem fela í sér mun meiri stjórnsemi en ég tel æskilega. Ólafur ætti því af sömu málefnalegu ástæðum og ég að geta útskýrt af hverju hann „sé ekki bara í Samfylkingunni“ eins og það er stundum orðað. Við Ólafur erum, sem sagt – að mér virðist – nokkuð sammála um margt. Það bræðir hins vegar hjarta mitt að Ólafur virðist vera alveg handviss um það að þetta gat í pólitíkinni sem ég og hann upp- lifum verði með engu móti fyllt af mér eða nokkrum sem ég tala við. Líklega verð ég að búa við þetta vantraust Ólafs. Ég vil þó segja þetta: Ég hef undan farið upplifað það, að alls konar fólk – bara venjulegt fólk sem vill hafa áhrif á umhverfi sitt, án skætings og leiðinda, og sem mér virðist deila í grundvallaratr- iðum frjálslyndri og víðsýnni lífs- sýn – hefur byrjað að tala saman. Á undanförnum vikum hefur orðið til vísir að fjöldahreyfingu þessa fólks. Vonandi verður hún að veru- leika og býður fram með góða og ferska stefnuskrá í næstu kosning- um. Stór skref hafa verið stigin í þessa átt undanfarna daga, þótt enn eigi margt eftir að gera. Ég efast þó um að Ólafur muni geta kosið svona afl. Eitt virðist nefnilega skilja okkur að. Ólaf- ur virðist vita á einhvern hátt fyrirfram hvers konar týpur það eru sem geta og mega stunda góða pólitík og taka erfiðar ákvarðanir. Ekki lista- menn, til dæmis. Ekki skemmtilegt fólk. Ekki fyndið fólk. Mér finnst skrif Ólafs að þessu leyti endur spegla dálítið sem ég vil af öllum mætti berjast gegn. Það eru ekki bara konur í drögt- um og karlar í jakka- fötum sem mega stunda „raunveruleg“ stjórnmál. Það mega allir. Það geta allir. Það hefur enginn einkarétt á valdinu. Vonandi endurspeglar þetta gamal dags viðhorf Ólafs til stjórn- mála fljótfærni í hugsun hans. Annað í grein hans er markað svipaðri fljótfærni. Á sama hátt og hann virðist telja að flokkur sem ég og fólkið í Besta stofni með mörg- um öðrum geti aldrei átt „raun- verulegt“ erindi, einhverra hluta vegna, virðist hann líka telja að hljómsveitin sem ég er í, Skárren ekkert, sé hætt. Fátt er jafn fjarri lagi. Skárren ekkert var til dæmis með frábært ball í Flatey nú í ágúst. Þetta hefði Ólafur átt að vita. Þetta og annað í skrifum Ólafs í gær segir mér að hann sé ekki fylli- lega með á nótunum. Hann veit ekki hvað er að ske, svo ég leiki mér að nafni annarrar hljómsveitar sem ég er í. Vonandi endur- speglar þetta gamaldags viðhorf Ólafs til stjórnmála fljótfærni í hugsun hans. Skárren ekkert lifir Af ýmsu gerast úfar með okkar þjóð. Oftast sem betur fer af litlu tilefni. Eða eins og bóndi nokkur mun hafa sagt við konu sína sem vaknaði hágrátandi og sagði að sig hefði dreymt að hún væri komin til himnaríkis. „Oft er ljótur draumur fyrir litlu tilefni og reyndu að sofna aftur elskan mín.“ Hvort sá draumur um himnaríki sem sumir nú sjá í kaupum Kín- verjans Nubo á landi Grímsstaða á Fjöllum er fyrir litlu tilefni veit ég ekki, en vona samt að svo sé. Mig þyrstir ekki beint í þá ver- aldarsælu sem Kína nútímans býður heimsbyggðinni. Ástæðan fyrir því að ég læt mér ekki frétta- fjas um eyru þjóta í þetta sinn sem endranær, er sú að fréttamiðlun Íslands í erlendum fjölmiðlum hefur nú af alkunnri hógværð sinni og framsýni hvatt íslend- inga til þess að eftirláta vernd- urum Tíbeta væna sneið af land- inu. Það hafa fleiri en sá sem svo til hvetur, komið til Kína, en ekki látið heillast. Einn sá fyrsti, okkar ágæti Árni Magnússon frá Geita- stekk sem kom á skipi Danakóngs til Kína á 18. öld hafði meðal ann- ars eftirfarandi um Kínverja að segja: „Þessir menn eru vinsam- legir að tala við, en hin vanski- legasta þjóð að eiga kauphandlan með, því þeir eru hinir nærfærn- ustu þjófar, so mann skal ei vita fyrr en peningarnir eru af hans lummu.“ Svo mörg voru hans orð. Hvort eðli þeirrar þjóðar er annað nú, fá Íslendingar væntanlega að reyna á eigin „lummu“ von bráðar. Í skóla var okkur kennt að ræða Einars Þveræings hefði að engu gert þá bón Noregskonungs, að fyrir hin ýmsu fríðindi Íslending- um til handa, óskaði hann af lítil- læti sínu eftir að sér yrði gefið útskerið Grímsey. Ekki Gríms- staðir á Fjöllum, það er þó að verða undarlega mikið frá Grími komið í þessu máli nú. Hermann heitinn Jónasson for- sætisráðherra árið 1939 varð fyrstur Evrópuleiðtoga til þess að segja nei við útþenslustefnu Hitlers, þegar hann neitaði Luft- hansa um endurnýjun flugleyfis á Íslandi. Ég geri ráð fyrir að þegar kín- versk ferðamannanýlenda verður risin á Fjöllum þurfi þar flugvöll fyrir beint flug með túrista frá Kína. Ekki verður hægt að bjóða þeim upp á að kúldrast með rútum landshorna milli. Þá þarf girðingu um flugvöllinn öryggis vegna. Hún þarf að ná all rúmlega kring- um völlinn. Betra er að starfs- menn flugvallarins séu kínverskir svo síður sé hætta á misskilningi við lendingar og flugtök … Ég get haldið áfram að mála skrattann upp á vegg með því að lesa svona í framtíðina. Ég vil bara gera orð íslensku fréttamiðlunarinnar í erlendum fjölmiðlum að mínum og segja: „Góðir Íslendingar, við skulum bara anda með nefinu í þessu máli“ en halda áfram að eiga sker- ið fyrir okkur sjálf. Ísland til sölu Erlendar fjárfestingar Herbert Herbertsson vélstjóri Stjórnmál Guðmundur Steingrímsson harmónikuleikari
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.