Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 26
24. september 2011 LAUGARDAGUR26
É
g væri mjög óheiðarlegur ef ég
mundi segja að ég væri ekki að
fara að gera breytingar á fyrir-
tækinu því að það má öllum
vera ljóst að þetta gengur ekki
svona,“ segir Birgir Jónsson,
nýráðinn forstjóri Iceland Express, þegar
blaðamaður hittir hann á þriðja starfsdegi.
Birgir – prentari að mennt – er ekki með
öllu ókunnugur þessu umdeilda fyrirtæki.
Hann var forstjóri þess árin 2004 til 2006,
áður en hann söðlaði um, flutti til Austur-
Evrópu og rak prentsmiðjur fyrir íslenska
fjárfesta í rúm þrjú ár.
Gagnrýnin sem Iceland Express hefur
sætt undanfarið fór ekki fram hjá Birgi
frekar en öðrum. „Ég hafði eins og aðrir
fylgst með því sem hafði gerst þarna síð-
ustu misseri og fannst það mjög leiðinlegt.
Mér fannst mjög leiðinlegt að vera með það á
ferilskránni að ég hefði unnið þarna. Maður
var eiginlega hættur að tala um það því að
þá fékk maður bara gusur yfir sig. Þannig að
mér fannst það nánast vera skylda mín að gá
hvort ég gæti snúið þessu við.“
Það hafi því ekki verið sér-
staklega erfið ákvörðun að
þiggja starfið. „Það var auð-
velt fyrir mann sem er með
með einhvers konar innbyggt
klikkunargen. Maður hefur
auðvitað alltaf taugar til svona
skemmtilegs fyrirtækis – þetta
er líflegur bransi og gott fyrir-
tæki með helling af góðu fólki.“
„Þetta hætti í gær“
Það má heyra á Birgi að honum
finnist hann vera að taka við
fyrirtæki í býsna erfiðri stöðu.
„Þegar ég kom þarna inn síðast
þá var fyrirtækið í raun gjald-
þrota, við byrjuðum á núlli og
byggðum það upp. Staðan er
alls ekki þannig núna. Hún er
þrátt fyrir allt sterk og það er
bara markaðnum að þakka.
Það ferðast hálf milljón manna
með félaginu á ári og bara
brotabrot af farþegum lendir
í vandræðum.
En það er auðvitað ærið verk-
efni að laga vörumerki sem er svona gífur-
lega illa liðið. Félagið hefur vaxið mjög hratt
og ég held að menn hafi misst stjórn á vext-
inum, misst sjónar á þjónustu við viðskipta-
vini og leyft sér alls konar hluti í kreppunni
og í kringum eldgos – til dæmis niðurfelling-
ar á flugi og yfirbókanir – sem eru kannski
hagfelldir þann daginn en ekki til lengri
tíma litið.“
Nú er kreppan hins vegar á undanhaldi og
langt frá síðasta eldgosi en þrátt fyrir það
hafa vandamálin – seinkanir og fleira – bara
færst í aukana síðustu mánuði. „Þetta hætti í
gær,“ segir Birgir kokhraustur. „Ég er strax
búinn að stoppa mjög mikið af þessu. Það
er auðvitað viss skriða í gangi sem maður
getur ekki stoppað á punktinum en það eru
ákveðnir hlutir sem ég hef gefið skýr fyrir-
mæli um að verði ekki gerðir lengur.“
Grunnatriði úr viðskiptum 101
Brotalamirnar eru margar, að mati Birg-
is: „Ef það hefur ekki selst nóg nokkrum
vikum eða mánuðum fyrir flug þá hefur
reglan verið sú að einhver fór í að hringja
í hundrað farþega og bjóða þeim annan
kost. Þetta finnast mér afleit viðskipti og
þetta verður ekki gert meir. Auðvitað geta
komið upp bilanir í vélum og annað slíkt,
en sem kerfisleg lausn verður þetta ekki
notað.
Lággjaldafélög hafa almennt aldrei yfir-
bókað í vélar. Ef þú kaupir sæti þá færðu
sæti. Þessi gömlu rótgrónu félög voru allt-
af að yfirbóka, vissu að það væru alltaf
tíu manns sem kæmust ekki í flugið og
seldu tíu aukamiða til að redda því. Ice-
land Express var farið að seilast í þessa
átt en það stoppaði í gær. Það er ekki leng-
ur yfirbókað í neitt flug.
Þegar vélar bila þá mun ég leigja inn
vélar ef þess er kostur. Auðvitað munu
koma upp tilvik þar sem við höldum að
hlutir séu að fara að leysast og svo leysast
þeir ekki og enda illa. En það er ekki til
þess fallið að byggja upp arðbært fyrir-
tæki til langtíma að hafa þá stefnu að hlut-
irnir muni bara reddast.
Það mætti halda svona
áfram. Þetta eru bara grunn-
atriði úr viðskiptum 101. Ef
þú ert með vöru til sölu þá
á fólk að fá vöruna ef það
er búið að borga fyrir hana.
Þessi flugbransi er mjög ein-
faldur. Þú þarft að skila fólki
frá A til B, það þarf að kom-
ast um það bil á réttum tíma,
með töskurnar sínar, það
þarf að fá að borða á leiðinni
og helst að komast á réttan
stað.“
Hundraða milljóna tap vegna
vöruskorts um borð
Birgir nefnir að farþeg-
ar þurfi að fá að borða. Því
var ekki alltaf að heilsa í
sumar, því að á tímabili var
tilfinnanlegur vöruskort-
ur um borð í vélum Iceland
Express eftir að skipt var
um þjónustuaðila við vélarn-
ar á jörðu niðri.
„Ég var auðvitað ekki á
staðnum þegar þetta gerðist en það slett-
ist eitthvað upp á vinskapinn á milli
Express og félagsins sem höndlaði vélarn-
ar á völlunum og með mjög stuttum fyrir-
vara þurftum við að setja upp okkar eigin
þjónustu. Það vannst í rauninni krafta-
verk að gera það á um þremur mánuðum,
en afleiðingarnar urðu meðal annars það
að það vantaði vörur um borð. Það snerti
ekki bara þjónustu við farþega heldur
held ég að félagið hafi orðið af um hundr-
uðum milljóna í tekjur. Ég vil ekki kalla
þetta mistök en þetta var grafalvarleg
staða sem kom upp. Maður þarf stundum
að anda með nefinu og ef maður ætlar að
vaxa þarf maður að flýta sér hægt. Það er
ástæðan fyrir þessu illa umtali og þessum
vandræðum sem Express hefur verið í.“
Meira sætabil skilar ánægðari kúnnum
Meðal þess sem fólk hefur gagnrýnt Ice-
land Express fyrir eru óþægindi um borð
í vélunum, lítið rými og lök þjónusta.
Mér fannst
mjög leiðinlegt
að vera með það
á ferilskránni að
ég hefði unnið
þarna. Maður
var eiginlega
hættur að tala
um það …
Flugbransinn er mjög einfaldur
Nýi maðurinn í brúnni hjá Iceland Express hefur klikkunargenið sem þarf til að reyna að lappa upp á eitt hataðasta vörumerki
landsins. Rokktrymbillinn Birgir Jónsson segir Stíg Helgasyni að hann muni taka rækilega til hjá félaginu – allt fyrir farþegana.
Birgir segist alls ekki hafa átt von á
því að vera boðið að snúa aftur til
starfa fyrir Iceland Express. Undanfar-
ið hálft annað ár hafi hann nefnilega
einbeitt sér að trommuleik og sá
ekki annað fyrir sér en að halda því
áfram um sinn. „Ef þú hefðir hitt
mig fyrir nokkrum dögum hefði mér
fundist þetta alveg fjarstæðukennt,“
segir hann.
„Ég hef spilað á trommur síðan
ég var níu ára og var í raun atvinnu-
trommuleikari áður en ég fór í nám,
frá svona 16 til 22 ára aldurs. Svo
hef ég alltaf verið að spila þegar ég
er á Íslandi.“ Hann hafi haft nóg fyrir
stafni í tónlistinni.
„Eftir að ég kom heim fyrir um
einu og hálfu ári þá hef ég haft
mikinn tíma til að leika mér og þá datt maður inn í bransann aftur. Ég er að spila í hljómsveitum
sem eru að gefa út plötur, var í tónleikaferð um Evrópu í vor með hljómsveit sem heitir Stafrænn
Hákon, er í þungarokkshljómsveitinni Dimmu og annarri sem heitir XIII og ég mun spila þrisvar á
Airwaves,“ segir Birgir.
Hann spilaði í gærkvöldi á Gauknum, er í Sjallanum í kvöld og segir nýja starfið ekki munu
spilla gleðinni. „Ég ætla að tromma áfram – ég er ekkert hættur því.“
■ BER HÚÐIR Í ÞRÍGANG Á ICELAND AIRWAVES
EKKI FLÓKIÐ Nýi forstjórinn segir að það sé í raun ekki flókið að reka flugfélag. Fólk þurfi bara að komast á
réttan stað, nokkurn veginn á réttum tíma, með töskurnar sínar og fá að borða á leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
„Það sem ég einblíni á núna, mun standa
fyrir og mögulega falla með – sjáum til
með það – er þjónusta við farþega. Það
snýr að öllum hlutum: þjónustu um borð,
sætabili og fleiru. Ég er algjörlega sam-
mála því að þetta megi bæta mjög mikið og
eitt af því sem ég er að skoða er að fækka
sætum í vélunum til að auka sætabilið,
þannig að það yrði til dæmis ívið ríflegra
en er hjá okkar góða samkeppnisaðila.
Þetta gerði ég líka áður. Við vorum með
vélar með 170-sæta möguleika en höfðum
bara 150 sæti í þeim. Það var ekki af því
að ég væri svo mikill mannvinur, það skil-
aði sér bara í ánægðari kúnnum og meiri
tekjum. Þetta er ekkert flókið.“
Engar heilagar kýr í leiðarkerfinu
Iceland Express er þekkt sem seint flug-
félag. Jafnvel með þeim seinustu í heimi.
Innan við þrjátíu prósent af flugvélum
félagsins undanfarin misseri hafa farið og
komið á réttum tíma. Munu þessar breyt-
ingar sem Birgir hefur útlistað koma í veg
fyrir það vandamál? Hann segir að áætlun
félagsins hafi undanfarið verið of þröng og
því þurfi að breyta.
„Það var of lítið svigrúm til ófyrirséðra
uppákoma. Ef það gerðist eitthvað þá var
enginn sveigjanleiki. Núna er verið að
vinna að nýrri áætlun sem nýtir vélarnar
í rauninni verr frá sjónarhóli fyrirtækis-
ins en loftið í áætluninni er miklu meira.
Ég held að strax núna í haust ættum við
að fara að sjá 85 til 90 prósent af flugi á
réttum tíma.“
En hvað þýðir það fyrir fyrirtækið að
nýta vélarnar verr? Þarf að leggja niður-
leiðir?
„Það er algjörlega inni í myndinni. Það
eru engar heilagar kýr. Aðaláhersla mín er
að þetta gangi, mér er alveg sama hversu
margir áfangastaðirnir eru. Ég vil bara að
þeir séu réttir og prógrammið rúlli.“
Algjörrar endurskipulagningar þörf
Spurður hvort hann telji að fyrirtækið hafi
einfaldlega verið orðið óviðráðanlega stórt
jánkar Birgir. „Ég les bara blöðin eins og
þú og maður hlýtur að draga þá ályktun.“
Sérstaklega hafi verið farið allt of geyst í
að hefja flug vestur um haf. „Það er ekki
bara að flugvélarnar fari til Ameríku held-
ur er það algjör kerfisbreyting á félaginu.
Allt í einu ertu kominn með farþega sem
þú ert að selja frá London til New York
í gegnum Keflavík. Töskurnar þeirra
þurfa að komast á leiðarenda, upplýsing-
ar að berast til útlendingaeftirlitsins og
allt lagalegt umhverfi og öryggismál eru
alveg rosalega flókin. Þetta er ekki eitt-
hvað sem lítið fyrirtæki hristir bara fram
úr erminni á sex mánuðum. Málið núna er
að ná áttum, stjórn og gera skipið stöðugt,“
segir Birgir, sem fer ekki í felur með það
að ýmsu þurfi að breyta.
„Ég er búinn að vera mjög heiðarleg-
ur með það á mínum fyrstu dögum innan
fyrirtækisins að ég mun láta til mín taka,
ekki með neinum látum eða vitleysisgangi
– ég er ekki að fara í neinar massaupp-
sagnir eða neitt þannig – en það verður
að endurskipuleggja þetta algjörlega til að
við náum þessum markmiðum.
Ég er alveg til í að minnka fyrirtækið
– veltu, starfsmannafjölda og leiðakerfi –
ef það skilar ásættanlegri arðsemi og ég
næ að laga vörumerkið. Það er það sem
mér finnst áhugaverðast í þessu pers-
ónulega, að taka vörumerki sem var einu
sinni eitt vinsælasta vörumerki landsins
en hefur á mjög skömmum tíma orðið eitt
það hataðasta og reyna að hefja það aftur
til vegs og virðingar.“