Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 34
24. september 2011 LAUGARDAGUR34
F
rá því að vefurinn
barnaland.is, sem í dag
kallast Bland, fór fyrst
í loftið árið 2000 hefur
hann verið einn sá vin-
sælasti hérlendis. Sam-
félagið er lifandi þar sem fólk deil-
ir góðum ráðum og reynslusögum,
rífst og hlær og síðast en ekki síst
– selur hvert öðru dótið sitt – sem
það keyrir svo bæjarhluta á milli.
Barnaland varð til þegar stofn-
endur síðunnar reyndu alvarleg
veikindi fyrsta barns. Þeir reyndu
að finna upplýsingar á internetinu
er gagnast gætu þeim í baráttunni
en varð lítið ágengt. Úr varð að þau
hleyptu sjálf af stokkunum slíkum
vettvangi, þar sem foreldrar gátu
skipst á ráðum og reynslusögum.
Fljótlega bauðst foreldrum að útbúa
heimasíður fyrir börn sín á vefn-
um, sem voru orðnar 6.000 þrem-
ur árum síðar. Skráðir notendur á
Barnalandi frá upphafi eru 171.000.
Sérstök spjallsvæði urðu til sem
helguð voru afmörkuðum umræðu-
efnum, allt frá uppeldi og upp-
skriftum upp í spjall um ofnæmi.
Þegar harðnaði í ári árið 2008 varð
til sérstök spjallsíða sem hét ein-
faldlega „Kreppa“. Þá hafa sölu-
þræðir, þar sem einkum notað-
ar vörur hafa gengið kaupum og
sölum, notið mikilla vinsælda.
Magn auglýsinga hefur aukist um
fjórtán prósent milli ára.
Fimmtán hundruð nýjar smá-
auglýsingar koma inn á hverjum
degi þar sem fólk er ýmist að selja
eitthvað eða óskar eftir ákveðnum
vörum. Svo margar eru þær að á
vinsælustu þráðunum kemur inn ný
auglýsing á hverri mínútu, stund-
um nokkrar á sömu mínútunni.
Þetta gríðarlega magn auglýs-
inga er að miklu leyti hægt að
skýra út með því að ókeypis er að
auglýsa og svara auglýsingum, auk
þess sem Barnalandsmarkaðurinn
á sér orðið langa sögu. Notendum
býðst þó að kaupa auglýsingar og
birtast þær auglýsingar, þá efst í
auglýsingaflokkunum, í ákveðinn
tíma. Þeir sem ekki borga þurfa
að passa að uppfæra sínar auglýs-
ingar reglulega og það mjög reglu-
lega svo þær falli ekki neðst í bunk-
ann. Að uppfæra auglýsingarnar er
einfaldlega gert með því að svara
eigin auglýsingu, en flestir svara
henni með því að skrifa „upp“ sem
merki um að auglýsandinn sé bara
að minna á að varan sé enn til sölu.
Þar sem vefurinn er lesinn á
landsvísu er ekki óvanalegt að
seljendur taki fram að þeir sendi
hvert á land sem er, en
kaupandinn borgar þá
yfirleitt sendingarkostn-
aðinn. Fjölbreytni var-
anna er gífurleg og oft
árstíðabundin. Þannig
má um þessar mund-
ir sjá fjöldann allan af
notuðum útigöllum og
kulda skóm. Nemendur
í háskólum og mennta-
skólum landsins leita
að notuðum bókum og
þeir sem eru að hefja
tómstundavetur leita að
íþróttaskóm, ballettbol-
um og júdógöllum. Þá er
alltaf mjög mikið versl-
að með farartæki, hús-
gögn, barnavörur og -föt
og eitthvað hlýtur það að
segja um markaðinn að
600 pör af skóm voru þar
til sölu í gær.
Þeir sem blaðamaður
hafði samband við og
höfðu reynslu af kaupum
og sölu voru allir á því
að á vefnum væru yfir
það heila heiðarleg við-
skipti stunduð. Þó mætti
maður ekki vera alveg grænn og
flestir hefðu þann háttinn á að
greiða fyrir vöruna um leið og hún
væri afhent. Út á land er oft sent
í póstkröfu og þekkist það jafn-
vel líka innanbæjar, eigi fólk ekki
heimangengt.
Vörurnar sem seldar eru koma
oftar en ekki úr geymslum viðkom-
andi, fötin eru seld þegar börnin
vaxa upp úr þeim og ekki er óal-
gengt að fólk sem hyggst flytja
búferlum, er að gera upp dánarbú
eða vantar einfaldlega aura nýti
sér vefinn. Hreina fjársjóði má
finna, nú er til dæmis fálki eftir
Guðmund frá Miðdal til sölu á vefn-
um, mynd eftir Stórval og glæsibif-
reiðar. Gjafabréf í verslanir, nudd,
leikhúsmiðar og fleira sem fólk á
í fórum sínum gengur kaupum og
sölum og fæst þá á lægra verði en
því sem inneignin nemur. Í dag eru
að minnast kosti tuttugu og fimm
slík gjafabréf til sölu.
Til að selja á Barna-
landi er gott að setja
mynd inn með auglýs-
ingu af hlutnum. Fyrsta
skrefið í þessu öllu er
þó að stofna notenda-
nafn, sem er bráðnauð-
synlegt til að geta átt í
viðskiptum, hvort sem
maður vill selja eða
kaupa því viðskiptin,
prútt og önnur sam-
skipti fara fram í póst-
hólfi sem er notend-
um einum aðgengilegt.
Prútt er afar algengt
inni á vefnum, sem
gerir samfélagið ekki
síður skemmtilegt.
Notendur hafa þann
háttinn á að setja fast
verð á vörurnar eða
óska eftir tilboði „í
einkaskilaboðum“. Verð-
mat á hverjum hlut fer
síðan eftir aldri hans,
hvað hann kostar nýr út
úr búð og út frá ástandi
hans almennt. Þriggja
ára gamlir gönguskór
geta verið verr farnir en aðrir
helmingi eldri, hafi þeir verið
mikið notaðir. Sumir vilja skoða
vöruna áður en ákveðið er hvort
hún er keypt.
Ekki má gleyma að minnast á að
víðs vegar á internetinu má finna
söluvefi, íslenska líka, sem eru þó
ekki enn sem komið er sambæri-
legir við Barnaland því umferð þar
er ekki brot af því sem Barnaland
hefur einhverra hluta náð.
Verðmat á
hverjum hlut
fer eftir því
hve gamall
hann er, hvað
hann kostar
nýr út úr
búð og út frá
ástandi hans
almennt.
■ REYNSLUSÖGUR
600 skópör og
54 ísskápar
Á stærsta flóamarkaði internetsins, bland.is, er að finna stórskemmtilegt
samfélag þar sem vörur, flestar notaðar, ganga kaupum og sölum. Júlía
Margrét Alexandersdóttir kynnti sér viðskiptahætti og ótrúlega hluti.
● 171.000 notendur hafa skráð sig til leiks á bland.is frá því að
vefurinn var opnaður árið 2000, þá sem barnaland.is
● 1.500 nýjar auglýsingar koma inn á degi hverjum á bland.is.
Líftími hverrar auglýsingar er fjórtán dagar ef hún er skilin eftir
óhreyfð í kerfinu.
● Eins og staðan er í dag eru flestar auglýsingar í flokknum
Farartæki.
● Á eftir farartækjum voru húsgagnaauglýsingar næstalgengastar.
● Í gær voru meira en 400 notuð húsgögn úr IKEA auglýst til
sölu.
● Og 600 pör af skóm.
● Á sama tíma voru átján fuglabúr til sölu og
54 ísskápar.
● og 200 barnaúlpur.
● Ýmsir voru að leita að einhverju sérstöku í
vikunni sem leið. Einn óskaði eftir að kaupa
Ísfólksbækurnar, annan vantaði nokkur
kíló af frosnum rabarbara og einn
sárvantaði gjallarhorn. Þá vildi
einn kaupa steypuhrærivél
og Trivial Pursuit.
● Notendum sem auglýsa hefur
fjölgað að meðaltali um fjór-
tán prósent milli ára.
● Á þessu ári voru barna-
land.is, dyraland.is, er.is
og bloggland.is sameinaðir
undir einn vef, bland.is.
Mörgum er því enn
tamt að kalla vefsíðuna
bland.is „Barnaland“.
● Fjölmargar gæludýra-
auglýsingar má finna á
Barnalandi; í gær voru
tugir hunda að leita að
nýju heimili, naggrísir og
kettir.
NÝJUSTU FRÉTTIR ÚR KAUPHÖLLINNI
Ég hef sjálfsagt keypt skrítnasta og tilgangslausasta hlutinn í heimi hér inni á Bland, ofurvaxinn Garfield-bangsa,“
segir Sædís Anna Jónsdóttir hlæjandi þegar hún rifjar
upp undarlegustu kaup sín á vefnum, sem voru risastór
og þungur Garfield-bangsi, líklega um tveggja metra
hár. „Ég var að vinna á pósthúsinu á Egilsstöðum þegar
ég fékk bangsa sendan þangað frá Reykjavík. Hann
var svo stór að ég kom honum varla inn í bílinn. Og
svipurinn á yfirmanni mínum var óborg-
anlegur: „Hver lætur eiginlega senda
sér svona risabangsa í miðri jólatörn,“
sagði hann og sá svo nafnið mitt.“
Bangsakaupin voru skyndiákvörðun. „Ég talaði
ekki einu sinni við manninn minn áður en ég
gekk frá kaupunum. Þetta vakti kannski ekki
alveg jafn mikla lukku hjá þeim sem þurftu svo
að hjálpa til við að ná í bangsann og keyra hann
vandræðalega ferð á pósthúsið.“
Sædís á ekki bangsann í dag, en hún býr í
Keflavík. Hún segist þó hafa gert góð kaup
sem komi henni að notum í dag. Þannig fékk
hún kerru, með öllum aukahlutum, á 55.000
krónur en út úr búð kostar hún ný um 130.000.
Risabangsi í pósti
Sædís Anna Jónsdóttir, 23 ára
Ég er ástríðuræktandi og hef haft plöntur, tré og eitt og annað til sölu á Bland eða
Barnalandi síðustu þrjú árin,“ segir Vilborg
Eggertsdóttir. Í síðustu viku auglýsti hún
hindberja- og jarðarberjaplöntur til sölu,
en af öðru í hennar fórum má nefna kopar-
reyni, mímósu, furu, heimilisblóm og kakt-
usa. Mokkabolla, súpuskálar og svokallaða
sjónvarpsbolla, sem eru bollar með áföstum
kökudiski, hefur hún einnig til sölu.
„Sjálf hef ég gert góð kaup, keypt allt frá
úlpu til frystikistu og hef verið ánægð
með að ég hef bara kynnst heiðarleg-
um viðskiptaháttum. Þetta er sniðugur
vettvangur.“
Keypti frystikistu og selur hindberjaplöntur
Vilborg Eggertsdóttir, 61 árs
Ég hef keypt allt milli himins og jarðar á Bland. Ég keypti mér heilan bíl þar og er núna að selja annan. Köttinn
minn fékk ég þarna, keypti þorsk í öskjum og yfirleitt kíki
ég fyrst þarna inn ef mig vantar eitthvað,“ segir Jónas Jón
Níelsson. Hann segir eiginkonu sína ekki síður duglega að
finna fjársjóði inni á vefsíðunni og gefa sér góðan tíma í
leitina.
Sjálfur er Jónas að selja ýmislegt þar inni um þessar mund-
ir annað en bíl, svo sem fjarstýrðan bát sem hann setti
saman fyrir nokkrum árum. „Reynsla mín af
þessum vettvangi er yfirleitt góð. Maður
má passa sig að vera ekki
alveg grænn en í 95 prósent-
um tilvika er fólk heiðarlegt.“
Keypt og selt bíl
Jónas Jón Níelsson, 36 ára
GEYMSLA FULL FJÁR Ýmislegt hefur gerst eftir efnahags-
hrun. Ekki aðeins að fleiri taki slátur eða rækti kartöflur
heldur hafa íbúar grafið eftir gulli í eigin geymslum og komið
hlutum í verð.
● Ferðatöskuvigt. Ný og
ónotuð. „Ekkert prútt
takk fyrir!“
● 150 lítra eikarviskítunna
frá Kanada.
● Brunaslöngukefli með
veggfestingu.
● Stórt kort af Reykjavík.
● Aska úr Eyjafjallajökli.
Ung sveitastúlka
auglýsir ösku til sölu
sem hún hreinsaði af
þökum í mesta ösku-
fallinu.
● Taska úr fílaskinni.
● Landnámshænur.
Fimm stykki.
● 100 ára gamall hest-
vagn frá Svíþjóð.
● 17 stykki bækur í
bastkörfu.
● Þrefaldur álstigi.
Seljandi tekur
það líka til
skoðunar
að selja
hann
tvö-
faldan.
NOKKRAR ÓVENJULEGAR VÖRUR Í SEPTEMBER: