Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 36
24. september 2011 LAUGARDAGUR36
Kynntu þér kostina á americanexpress.is
Icelandair American Express®
American Express er
eina kortið sem færir
þér Félagamiða
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Á
rangur landsliðsins í brids er ekki
aðeins ómetanleg landkynning út
á við. Hann hefur og mikil áhrif
hér heima. Áhuginn á heims-
meistaramótinu fór eins og eldur
í sinu um byggðir landsins.
Brids-vakning sagði til sín í samfélaginu.
Vörur tengdar brids runnu út í verzlunum
eins og heitar lummur. Fólk reif sig upp um
miðjar nætur til að fylgjast með sjónvarps-
sendingum frá mótinu. Vinna var sums stað-
ar í lágmarki þar sem fólki gafst kostur á að
fylgjast með lokalotunum á skjánum“.
Svo segir í leiðara Morgunblaðsins
laugardaginn 12. október 1991, en deginum
áður hafði íslenska briddslandsliðið tekið við
Bermúdaskálinni, verðlaunagripnum víð-
fræga, fyrir sigur á heimsmeistaramótinu í
Yokohama í Japan eftir frækilegan sigur á
Pólverjum í úrslitaviðureigninni.
Í leiðara DV sama dag hrósaði annar
ritstjóra blaðsins, Jónas Kristjánsson,
landsliðinu í bridds fyrir að færa fámennri
þjóð, sem reyndi að sýna sjálfri sér og öðrum
fram á að hún hefði tilverurétt út af fyrir sig,
aukið sjálfstraust.
Undir fyrirsögninni „Betri í bridge en póli-
tík“ klykkti hann út með þessum orðum: „Ef
við værum eins góð í póli-
tík og við erum í bridge,
mundum við ekki gefa út
fókuslausar hvítbækur,
fullar af þvaðri um góð
áform, sem varða veginn
til vítis.“
Fleiri orðum þarf vart
að fara um þá gríðar-
legu athygli sem bridds-
landsliðið, fyrstu heims-
meistarar Íslendinga í
hópíþróttum, vakti hér á
landi í upphafi tíunda ára-
tugarins. Síðan þá hefur landslið Íslendinga í
bridds ekki komist í lokakeppni heimsmeist-
aramótsins í sveitakeppni, þrátt fyrir að hafa
nokkrum sinnum verið býsna nærri því, fyrr
en nú. Með góðum árangri á Evrópumótinu á
síðasta ári, þar sem Íslendingar náðu 4. sæti,
tryggði liðið sér þátttökurétt á næsta heims-
meistaramóti, sem hefst í bænum Veldhoven í
Hollandi hinn 15. október næstkomandi.
Þrír úr liðinu enn að
Björn Eysteinsson verður fyrirliði og þjálf-
ari íslenska liðsins í heimsmeistarakeppninni
nú í október, rétt eins og í Japan fyrir tveim-
ur áratugum, en fyrirliði í briddssveit hefur
það hlutverk að ákveða uppstillingar og alla
framvindu liðs í keppni, án þess þó að spila
sjálfur. Liðið í Hollandi verður skipað þremur
af sömu spilurum og unnu til Bermúdaskál-
arinnar í Yokohama, þeim Jóni Baldurssyni,
Þorláki Jónssyni og Aðalsteini Jörgensen, auk
þeirra Sigurbjörns Haraldssonar, Magnúsar
E. Magnússonar og Bjarna H. Einarssonar.
Allir hafa liðsmennirnir verið í fremstu röð
íslenskra briddsspilara um árabil.
„Já, það er ótrúlegt en satt en þrír úr þessu
fræga liði eru enn að með landsliðinu,“ segir
fyrirliðinn Björn og hlær, en bætir við að
slíkt sé eðli briddsíþróttarinnar. „Ef menn
fara vel með sig og fylgjast grannt með nýj-
ungum geta þeir verið mjög góðir spilar-
ar í fjörutíu ár eða lengur. Það er auðvitað
háð aðstæðum og með þessa íþrótt eins og
aðrar er það ástundum og áhugi sem heldur
mönnum góðum.“
Liðið hefur æft af kappi síðan endanleg
uppstilling þess var valin í apríl síðastliðn-
um og setur aukinn kraft í æfingar nú síðasta
mánuðinn fyrir keppnina um Bermúdaskál-
ina. Björn er varkár þegar hann er spurður
um væntingar fyrir gengi liðsins í Hollandi.
Hann segir stefnuna fyrst setta á að komast
í átta liða úrslit og ef það takist geti vissu-
lega allt gerst, eins og sýndi sig fyrir tuttugu
árum þegar fáir bjuggust við sigri Íslendinga.
Frumstæð lýsing í beinni
Aðspurður segir Björn það hafa komið sér
nokkuð á óvart hversu mikla athygli heims-
meistarasveitin fékk á sínum tíma, en eftir
á hyggja sé alls ekki skrýtið að Íslendingar
hafi fylgst með liðinu og verið stoltir af því.
„Það var sýnt frá mótinu í beinni útsend-
ingu í sjónvarpinu, sem var afar sérstakur
viðburður og með þeim fyrstu í sögunni. Til
að hægt sé að senda út beint frá briddsviður-
eign þarf lýsandinn að hafa öll spilin fyrir
framan sig, því þetta eru allt forgefin spil.
Helgi Jóhannsson, sem þá var forseti bridds-
sambandsins, tókst með einstakri lagni að
sannfæra stjórn Alheimsbriddssambands-
ins um að þörf væri á beinni útsendingu því
öll þjóðin væri að fylgjast með mótinu. Þetta
var mjög frumstætt. Helgi gerði samning
við Póst og síma um að hafa opna símalínu
meðan á síðustu sextán spilunum stóð. Hann
var læstur inni í herbergi með eina tölvu og
verðir fyrir utan. Helgi þurfti því að gæta
þess að létta á sér áður en hann fór inn í
herbergið því hann komst ekkert út,“ segir
Björn og skellir upp úr.
Ísland á toppnum
Undirbúningur íslenska liðsins fyrir keppn-
ina, sem samanstóð meðal annars af mikilli
líkamsrækt, hlaupum og fjallgöngum, vakti
víða athygli. „Frægur og virtur blaðamaður
hjá breska blaðinu Guardian, Patrick Jor-
dan, þakkar mér ennþá fyrir árangurinn,
sem varð þess valdandi að hann kom sinni
fyrstu frétt á forsíðu eftir sautján ára starf
sem blaðamaður,“ segir Björn. „Fyrirsögn-
in var „Iceland on the summit“, sem vísaði
til nýlegs leiðtogafundar Reagans og Gor-
batsjovs í Höfða og þess hvernig Íslending-
ar komust á toppinn á heimsmeistaramótinu
með því að klífa hvern tindinn á fætur
öðrum. Fréttin þótti svo góð að hún tók hálfa
forsíðuna.“
Heimkoma heimsmeistaranna vakti og
mikla athygli, sérstaklega þegar Davíð
Oddsson, þáverandi forsætisráðherra,
bað viðstadda í Leifsstöð um að lyfta glös-
um fyrir liðinu og segja ekki skál heldur
Bermúdaskál. Björn var þó ekki viðstadd-
ur heimkomuna frægu, því hann og Helgi
Jóhannsson höfðu ákveðið að ferðast með
eiginkonum sínum til Hong Kong og Taí-
lands beint eftir mótið. „Það sýnir að við
vorum ekkert voðalega bjartsýnir á að þurfa
að standa í miklum móttökuathöfnum. Þetta
eigum við bara á einhverjum VHS-spólum,“
segir Björn og hlær.
Áhuginn gengur í bylgjum
Fyrirliðinn segir vissulega rétt að áhugi
almennings á briddsíþróttinni hafi aukist
verulega í kjölfarið á sigrinum fyrir tutt-
ugu árum. „Áhuginn gengur í bylgjum eins
og annað. Árið eftir sigurinn, 1992, var gerð
skoðanakönnum hjá fimmtán ára og eldri,
sem leiddi í ljós að 25 prósent aðspurðra
spiluðu bridds reglulega. Það er óhemjumagn
af heimaklúbbum starfandi, bæði konur og
karlar, en þeir sem spila keppnisbridds eru
sennilega rétt innan við tvö þúsund talsins
og dreifast um allt landið. Ef íslenska liðið
nær góðum árangri núna á ég von á því að
margir sem náð hafa þokkalegum þroska
muni hrífast með.“
Bermúdaskálin á VHS-spólu
Nærri tuttugu ár eru liðin síðan íslenska briddslandsliðið vakti mikla athygli fyrir að sigra á heimsmeistaramótinu í í Yokohama.
Ísland hefur ekki komist aftur á mótið fyrr en nú, eins og Björn Eysteinsson, fyrirliði liðsins, sagði Kjartani Guðmundssyni frá.
BJÖRN
EYSTEINSSON
HEIMKOMAN Heimsmeistarinn Guðlaugur R.
Jóhannsson ásamt Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra þar sem Davíð skálaði fyrir liðinu á ógleym-
anlegan hátt. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
BERMÚDASKÁLIN Á LOFT Í Yokohama í október 1991. Frá vinstri: Björn Eysteinsson fyrirliði, Þorlákur Jónsson, Jón Baldursson, Örn Arnþórsson, Guðlaugur R.
Jóhannsson, Aðalsteinn Jörgensen og Guðmundur Páll Arnarson. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Þ að skók briddsheiminn á síðasta ári þegar fréttist að tvö af bestu spilarapörum heims, þeir Tor Helness og Geir
Helgemo frá Noregi annars vegar og Fulvio Fantoni og Claudio
Nunes hins vegar, hefðu ákveðið að flytjast til Mónakó og spila
með briddslandsliði smáríkisins frá næsta ári og fram til ársins
2016 hið minnsta. Þriðja parið í liðinu er Franck Multon, einn
færasti spilari Frakklands, og svissneski milljarðamæringurinn
Pierre Zimmermann, en í frétt á vefsíðunni bridgetopics.com
kemur fram að gjörningurinn sé að undirlagi hins síðastnefnda.
Skattalög í Mónakó geri það að verkum að þar eigi spilarar
auðvelt með að þéna margfalt meira en í flestum öðrum
löndum. Pörin hafi þegar verið skráð sem íbúar í Mónakó og
fái ríkisborgararétt á næsta ári. „Markmiðið er að vinna
Bermúdaskálina,“ sagði hinn norski Tor Helness af
þessu tilefni.
„Milljarðamæringurinn Zimmermann er dellukarl í
íþróttinni og ætlar með þessu að sigra heiminn á næsta
ári,“ segir Björn Eysteinsson. „Hann borgar spilur-
unum góð laun og þeir eru skráðir með lögheimili í
Mónakó, þótt ég efist reyndar um að þeir séu þar öllum
stundum. Þetta er merkilegt og það eru ekki allir sam-
mála þessari þróun en þetta er allt löglegt. Stundum
hefur verið sagt að það vanti peninga inn í íþróttina en
þegar þeir eru komnir á fullt fá margir bakþanka.“
■ BESTU SPILARAR HEIMS FENGNIR TIL MÓNAKÓ