Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 42

Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 42
24. september 2011 LAUGARDAGUR2 NÝKOMNIR ULLARJAKKAR Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16 www.topphusid.is Mörkinni 6 - Sími 588 5518 Í ÚRVALI TOPPVÖR UR • TOP PÞJÓNUS TA NÆG BÍLASTÆÐI Fæst í Bónus og Inspired, Keflavíkurflugvelli HOLLUR BITAFISKUR + 80% prótín Fiskneysla er góð fyrir heilabúið þekktur fyrir að fara á jöfnum hraða.“ Inntur eftir því hvort honum líki betur að ferðast einn eða með öðrum svarar Haraldur: „Í grunninn fer ég á fjöll fyrir sjálfan mig og líkar best, en eftir langan tíma í fjallamennsku fæ ég mikið út úr fyrstu upplifun fólks á fjöllum og endurupplifi stemn- inguna á ný.“ Mörgum er í fersku minni þegar Haraldur fór einn síns liðs á norð- urpólinn og þjóðin fylgdist grannt með honum á viðsjálum ísnum. „Þá reyndi mjög á andlegt þrek að ganga um tveggja mánaða skeið á fljótandi ísjökum innan um hungraða ísbirni. Allar nætur svaf ég með annað augað opið og aldrei djúpt né rótt, enda orðinn verulega þrekaður í lokin eftir vansvefta baráttu við óblíð nátt- úruöflin,“ upplýsir Haraldur, sem þó sér ekki eftir neinu. „Það var ómetanlegt að fara þessar ferðir, sem allar gengu vel. Margir reyna það sama án þess að ná markmiðum sínum og snúa jafnvel ekki lífs til síns heima. Því var yfir mér blessun.“ En rakst hann aldrei á jólasvein- inn, kominn á sjálfan norðurpól- inn? „Nei, ekki hinn eina sanna, en þarna voru á ferð fleiri jólasvein- ar eins og við Ingþór Bjarnason. Við veltum fyrir okkur að taka með jólasveinabúninga, en ekkert varð úr. Mynd af okkur með hrím- hvítt síðskegg hefði verið skotheld sönnun um að jólasveinninn er til,“ segir Haraldur brosmildur. Hann segir fólk enn vilja ræða við sig á förnum vegi og sérstak- lega rifja upp norðurpólsferðina. „Ég fékk þó sönnun þess að maður verður ekki frægur að eilífu í síðustu kosningum. Þá afhentu mér kjörseðilinn fáein ungmenni og á meðan ég var í klef- anum heyrði ég þau svekkja sig á að enginn frægur hefði enn komið í þeirra kjördeild.“ thordis@frettabladid.is Haraldur Örn klífur enn hæstu fjöll en syndir, hjólar og hleypur líka, ásamt því að stunda heitt jóga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Framhald af forsíðu Gróðurinn hefur tekið á sig haustlit sem skapar kjöraðstæður fyrir útimyndatökur. Notið helgina til að mynda börnin og fjölskylduna umvafin marglitum laufskrúða. Tónleikar til heiðurs hljómsveit- inni Nirvana verða haldnir á Gauki á Stöng í kvöld í tilefni þess að tutt- ugu ár eru liðin frá útgáfu plötunnar Nevermind. Hljómsveitina í kvöld skipa þeir Einar Vilberg, söngvari Noise, Franz Gunnarsson úr Ensími, Þórhallur Stefánsson úr Lights on the Highway og Jón Svanur Sveins- son úr Hoffman, en sérstakur gest- ur er Agnar Eldberg úr Lights on the Highway. „Við höfum áður verið með sams konar tónleika til heiðurs Alice in Chains, Smashing Pumpkins, Stone Temple Pilots og Pearl Jam, en mikið af böndum frá grunge- eða gruggtímabilinu svokallaða standa einmitt á tímamótum um þess- ar mundir og átti Pearl Jam til að mynda tuttugu ára afmæli í fyrra,“ segir Franz, sem situr fyrir svörum. Hann segir ákveðinn kjarna í hljóm- sveitinni. „Við höfum síðan valið menn til liðs við okkur eins og hent- ar hverju sinni og kom enginn annar en Einar úr Noise til greina enda er hann okkar íslenski Kurt Cobain.“ Hljómsveitin hyggst flytja plöt- una Nevermind eins og hún legg- ur sig. „Hún kom þessari tónlist- arstefnu, sem spratt upp í Seattle í Bandaríkjunum, rækilega á kortið. Við ætlum líka að vera með óraf- magnað sett í anda MTV Unplugged- tónleika hljómsveitarinnar þar sem hún sýndi á sér aðeins rólegri hlið. Svo ætlum við að taka skemmtileg lög af fyrstu plötunni Bleach og valin lög af In Utero og Incesticide. Við tökum bæði helstu slagara og svo ýmis lög fyrir allra hörðustu aðdáendurna, svo allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi.“ Tónleikarn- ir hefjast klukkan 23.30 og á Franz von á því að þeir teygist vel fram yfir tvö. „Það er að minnsta kosti reynsla okkar af hinum tónleikun- um, sem hafa verið vel sóttir, að fólk vill jafnvel heyra sömu lögin aftur.“ En eruð þið miklir Nirvana-aðdá- endur sjálfir? „Já, þessi hljómsveit hafði gríðarleg áhrif og hreif með sér heila kynslóð. Ég var sjálfur að vinna í hljóðfæraverslun á þeim tíma sem hún var á toppnum og annar hver strákur sem kom inn í búðina var með sítt hár og í rifnum buxum og vildi gamlan gítar eins og Kurt Cobain. Hann var ekki endi- lega með færustu hljóðfæraleik- urum en var talsmaður utangarðs- rokkara og hetja þeirra sem voru aðeins á skjön við normið.” vera@frettabladid.is Hreif heila kynslóð Haldið verður upp á tuttugu ára útgáfuafmæli plötunnar Nevermind með Nirvana á Gauki á Stöng í kvöld. Platan verður spiluð eins og hún leggur sig ásamt völdum lögum af öðrum plötum sveitarinnar. Þeir Einar Vilberg, Þórhallur Stefánsson, Franz Gunnarsson og Jón Svanur Sveinsson munu láta vel í sér heyra á Gauki á Stöng í kvöld. Nevermind-platan verður flutt í heilu lagi auk þess sem boðið verður upp á órafmagnaða tóna í anda MTV Unplugged-tónleika Nirvana á sínum tíma. NORDICPHOTOS/GETTY Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 Þráinn á tökkunum og Gissur með fréttirnar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.