Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 42
24. september 2011 LAUGARDAGUR2
NÝKOMNIR
ULLARJAKKAR
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Í ÚRVALI
TOPPVÖR
UR • TOP
PÞJÓNUS
TA
NÆG BÍLASTÆÐI
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
þekktur fyrir að fara á jöfnum
hraða.“
Inntur eftir því hvort honum
líki betur að ferðast einn eða með
öðrum svarar Haraldur:
„Í grunninn fer ég á fjöll fyrir
sjálfan mig og líkar best, en eftir
langan tíma í fjallamennsku fæ ég
mikið út úr fyrstu upplifun fólks
á fjöllum og endurupplifi stemn-
inguna á ný.“
Mörgum er í fersku minni þegar
Haraldur fór einn síns liðs á norð-
urpólinn og þjóðin fylgdist grannt
með honum á viðsjálum ísnum.
„Þá reyndi mjög á andlegt þrek
að ganga um tveggja mánaða
skeið á fljótandi ísjökum innan
um hungraða ísbirni. Allar nætur
svaf ég með annað augað opið og
aldrei djúpt né rótt, enda orðinn
verulega þrekaður í lokin eftir
vansvefta baráttu við óblíð nátt-
úruöflin,“ upplýsir Haraldur, sem
þó sér ekki eftir neinu.
„Það var ómetanlegt að fara
þessar ferðir, sem allar gengu vel.
Margir reyna það sama án þess
að ná markmiðum sínum og snúa
jafnvel ekki lífs til síns heima. Því
var yfir mér blessun.“
En rakst hann aldrei á jólasvein-
inn, kominn á sjálfan norðurpól-
inn? „Nei, ekki hinn eina sanna, en
þarna voru á ferð fleiri jólasvein-
ar eins og við Ingþór Bjarnason.
Við veltum fyrir okkur að taka
með jólasveinabúninga, en ekkert
varð úr. Mynd af okkur með hrím-
hvítt síðskegg hefði verið skotheld
sönnun um að jólasveinninn er til,“
segir Haraldur brosmildur.
Hann segir fólk enn vilja ræða
við sig á förnum vegi og sérstak-
lega rifja upp norðurpólsferðina.
„Ég fékk þó sönnun þess að
maður verður ekki frægur að
eilífu í síðustu kosningum. Þá
afhentu mér kjörseðilinn fáein
ungmenni og á meðan ég var í klef-
anum heyrði ég þau svekkja sig á
að enginn frægur hefði enn komið
í þeirra kjördeild.“
thordis@frettabladid.is
Haraldur Örn klífur enn hæstu fjöll en
syndir, hjólar og hleypur líka, ásamt því
að stunda heitt jóga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Framhald af forsíðu
Gróðurinn hefur tekið á sig haustlit sem skapar kjöraðstæður
fyrir útimyndatökur. Notið helgina til að mynda börnin og
fjölskylduna umvafin marglitum laufskrúða.
Tónleikar til heiðurs hljómsveit-
inni Nirvana verða haldnir á Gauki
á Stöng í kvöld í tilefni þess að tutt-
ugu ár eru liðin frá útgáfu plötunnar
Nevermind. Hljómsveitina í kvöld
skipa þeir Einar Vilberg, söngvari
Noise, Franz Gunnarsson úr Ensími,
Þórhallur Stefánsson úr Lights on
the Highway og Jón Svanur Sveins-
son úr Hoffman, en sérstakur gest-
ur er Agnar Eldberg úr Lights on
the Highway.
„Við höfum áður verið með sams
konar tónleika til heiðurs Alice in
Chains, Smashing Pumpkins, Stone
Temple Pilots og Pearl Jam, en
mikið af böndum frá grunge- eða
gruggtímabilinu svokallaða standa
einmitt á tímamótum um þess-
ar mundir og átti Pearl Jam til að
mynda tuttugu ára afmæli í fyrra,“
segir Franz, sem situr fyrir svörum.
Hann segir ákveðinn kjarna í hljóm-
sveitinni. „Við höfum síðan valið
menn til liðs við okkur eins og hent-
ar hverju sinni og kom enginn annar
en Einar úr Noise til greina enda er
hann okkar íslenski Kurt Cobain.“
Hljómsveitin hyggst flytja plöt-
una Nevermind eins og hún legg-
ur sig. „Hún kom þessari tónlist-
arstefnu, sem spratt upp í Seattle í
Bandaríkjunum, rækilega á kortið.
Við ætlum líka að vera með óraf-
magnað sett í anda MTV Unplugged-
tónleika hljómsveitarinnar þar sem
hún sýndi á sér aðeins rólegri hlið.
Svo ætlum við að taka skemmtileg
lög af fyrstu plötunni Bleach og
valin lög af In Utero og Incesticide.
Við tökum bæði helstu slagara og
svo ýmis lög fyrir allra hörðustu
aðdáendurna, svo allir ættu að fá
eitthvað við sitt hæfi.“ Tónleikarn-
ir hefjast klukkan 23.30 og á Franz
von á því að þeir teygist vel fram
yfir tvö. „Það er að minnsta kosti
reynsla okkar af hinum tónleikun-
um, sem hafa verið vel sóttir, að fólk
vill jafnvel heyra sömu lögin aftur.“
En eruð þið miklir Nirvana-aðdá-
endur sjálfir? „Já, þessi hljómsveit
hafði gríðarleg áhrif og hreif með
sér heila kynslóð. Ég var sjálfur
að vinna í hljóðfæraverslun á þeim
tíma sem hún var á toppnum og
annar hver strákur sem kom inn í
búðina var með sítt hár og í rifnum
buxum og vildi gamlan gítar eins og
Kurt Cobain. Hann var ekki endi-
lega með færustu hljóðfæraleik-
urum en var talsmaður utangarðs-
rokkara og hetja þeirra sem voru
aðeins á skjön við normið.”
vera@frettabladid.is
Hreif heila kynslóð
Haldið verður upp á tuttugu ára útgáfuafmæli plötunnar Nevermind með Nirvana á Gauki á Stöng í
kvöld. Platan verður spiluð eins og hún leggur sig ásamt völdum lögum af öðrum plötum sveitarinnar.
Þeir Einar Vilberg, Þórhallur Stefánsson, Franz Gunnarsson og Jón Svanur Sveinsson
munu láta vel í sér heyra á Gauki á Stöng í kvöld.
Nevermind-platan verður flutt í heilu lagi auk þess sem boðið verður upp á órafmagnaða tóna í anda MTV Unplugged-tónleika
Nirvana á sínum tíma. NORDICPHOTOS/GETTY
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar