Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 74
24. september 2011 LAUGARDAGUR42
Yndislegur sonur, faðir og bróðir,
Eiríkur Sverrir Karlsson
sem lést af slysförum í Tælandi, var jarðsunginn föstu-
daginn 23. september. Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát hans.
Ólöf Svandís Eiríksdóttir
Jón Egill Eiríksson
Kasper Englund Sørensen
Magnús Karlsson Nan Pittra Suriyatanya
Sæunn Elfa Pedersen Karlsdóttir Palle Skals Pedersen
Karl Jökull Karlsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra
Jóns Gísla Grétarssonar
pípulagningameistara,
Snægili 3b, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjartadeild
Landspítalans við Hringbraut og á gjörgæslu
og lyfjadeild Sjúkrahússins á Akureyri, fyrir alúð
og góða umönnun.
Anna Kristín Guðjónsdóttir
Róbert Freyr Jónsson Anna Hlín Erlingsdóttir
Grétar Jónsson
Edda Björk Viðarsdóttir Brynjólfur Hjartarson
Kristín Baldvina Jónsdóttir Grétar Óttar Gíslason
Margrét Vala Grétarsdóttir Jón Gunnar Guðmundsson
Baldvin Þór Grétarsson Jóhanna Sigríður
Sigurðardóttir
Kristín Sigrún Grétarsdóttir Hörður Már Guðmundsson
Anna María Grétarsdóttir Erlendur Níels Hermannsson
og afabörnin
Alúðar þakkir til allra þeirra sem
sýndu á svo margan hátt samúð, hlýju
og vinarhug vegna andláts og við útför
okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Páls Ásgeirs Tryggvasonar
f.v. sendiherra.
Fjölskyldan þakkar öllu starfsfólki á Elli- og dvalar-
heimilinu Grund fyrir einstaklega kærleiksríka
umönnun undanfarin ár.
Dóra Pálsdóttir Jens Tollefsen
Tryggvi Pálsson Rannveig Gunnarsdóttir
Herdís Pálsdóttir Þórhallur Guðmundsson
Ásgeir Pálsson Ingibjörg Bergþórsdóttir
Sólveig Pálsdóttir Torfi Þ. Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
timamot@frettabladid.is
Merkisatburðir
1957 Heimavöllur FC Barcelona, Camp Nou. er opnaður.
1963 Mjólkurvörur hækka í verði um fjórðung.
1968 Fyrsta skurðaðgerðin er framkvæmd á Borgarspítalanum
af Friðriki Einarssyni yfirlækni.
1973 Gínea-Bissá lýsir yfir sjálfstæði frá Portúgal.
1993 Samtök iðnaðarins eru stofnuð í Reykjavík og taka þau við
af sex félögum í iðnaði.
2005 Fellibylurinn Rita kemur á land í Beaumont í Bandaríkjun-
um og skilur eftir sig slóð eyðileggingar.
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð var vígður laugardaginn 24.
september árið 1966. Rektor
var Guðmundur Arnlaugsson,
sem landsþekktur var fyrir snilli
sína við skákborðið. Fastráðnir
kennarar voru sex. Í byrjun
starfaði skólinn samkvæmt
bekkjakerfi eins og hefð var
fyrir en 1972 var áfangakerfið
tekið upp og var það þá alger
nýjung hér á landi. Sama ár
hófst kennsla í öldungadeild,
hinni fyrstu í íslenskum fram-
haldsskóla.
Skólinn var tilraunaskóli
lengi vel og fékk heimild til að
fara ótroðnar slóðir á ýmsum
sviðum. Má þar nefna stofnun
félagsfræðabrautar og síðar
tónlistarbrautar til stúdents-
prófs, auk þess sem kór
skólans hefur gefið starfi hans
aukna dýpt.
ÞETTA GERÐIST: 24. SEPTEMBER 1966
Menntaskólinn við Hamrahlíð settur í fyrsta sinn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
Þóra Níelsína Helga
Hákonardóttir
sem lést mánudaginn 19. september á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni í Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju, Suðurhlíð, Reykjavík, miðvikudaginn
28. september kl. 11.00.
Helga Dagmar Jónsdóttir
Snjólaug Petrína Sveinsdóttir Jónas Þór Jakobsson
Guðrún Margrét Sveinsdóttir
Auður Sveinsdóttir Jóhann Valgeir Jónsson
Kristín Sveinsdóttir Guðmundur Unnarsson
Áslaug Sveinsdóttir Björn Grétar Þorsteinsson
Hákon Sveinsson
Haraldur Hákonarson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar,
bróðir, faðir, tengdafaðir og afi,
Ágúst Ármann
Þorláksson
tónlistarmaður,
sem lést á heimili sínu mánudaginn 19. september,
verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju, mánudaginn
26. september klukkan 14.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Norðfjarðarkirkju.
Sigrún Halldórsdóttir
Jóhanna Ármann Þorlákur Friðriksson
Halldór Friðrik Ágústsson
Bjarni Freyr Ágústsson Sif Þráinsdóttir
Þorlákur Ægir Ágústsson Bjarney Einarsdóttir
barnabörn og systkini hins látna.
Sú var tíðin að Íslendingar fylgdust
grannt með Guðrúnu Arnardóttur
afrekskonu í frjálsum íþróttum, enda
setti hún hvert metið af öðru á tíunda
áratugnum, keppti á stórmótum erlend-
is, meðal annars Ólympíuleikum og á
enn um tug Íslandsmeta. Hún hætti á
toppnum árið 2000 er hún flutti heim-
ili sitt til Bandaríkjanna og það var
því óvænt ánægja að hitta á hana í for-
eldrahúsum í Kópavogi í vikunni og
eiga við hana spjall í tilefni fertugsaf-
mælis sem er í dag.
„Ég er bara í vikufríi,“ segir Guð-
rún glaðlega og kveðst búa í Virginíu,
rétt fyrir sunnan Washington. „Þar á
ég mann sem er bandarískur og heitir
Jay Harvard. Við kynntumst í háskóla
úti í Georgíu, þar sem við vorum bæði
í frjálsíþróttaliði skólans,“ segir hún
og upplýsir aðspurð að hún hafi keppt
í grindahlaupi og hann í sleggjukasti.
Nú eigi þau tvo stráka, tveggja og fjög-
urra ára sem eru báðir fæddir vestra.
Sá eldri heiti Benjamín og sá yngri
Magnús.
Guðrún segir eiga vel við sig að búa
í úthverfi Washington því þar séu svo
margir útlendingar. „Fólk kemur alls-
staðar að og talar allt með einhverj-
um hreim svo maður fellur vel inn
í,“ útskýrir hún. Ekki vill hún meina
að hún hafi komið heim í tilefni stór-
afmælisins. „Ég er bara í húsmæðra-
orlofi á Íslandi,“ segir hún hlæjandi.
„Ég reyni að koma heim einu sinni á ári
og drusla yfirleitt strákunum með mér
til að leyfa þeim að hitta ömmu sína og
afa. En þeir feðgar voru allir skildir
eftir núna og eru í orlofi frá mér!“
Guðrún starfar á tannlæknastofu.
„Ég er tannfræðingur, lærði það fag
úti en veit ekki hvort það er til hér á
landi, það snýst um tannholdsheilsu. Í
Ameríku er hefð hjá mörgum að koma
í tannhreinsun minnst tvisvar á ári.
Ég ætlaði að fara í hjúkrun og vantaði
einn áfanga til að geta sótt um, þá sá
ég þetta nám auglýst og sótti um það
af rælni. Það var alger tilviljun eins og
svo margt annað.“
Varla getur Guðrún hreyft sig mikið
í starfinu. Skyldi hún alveg hafa lagt
hlaupaskóna á hilluna? „Já, þeir eru
alveg ryðgaðir, greyin,“ svarar hún.
Kveðst hafa verið búin að ákveða með
löngum fyrirvara að hætta árið 2000,
enda hafi henni leiðst að vera oft ein að
ferðast á stórmót erlendis. Gerir ekki
mikið úr íþróttaiðkun sinni um þessar
mundir. Hún ætlar samt að halda upp á
fertugsafmælið í dag með því að trítla
upp á Esjuna. Er kannski veisla þar
uppi? „Nei, en ætli það verði bara ekki
eitthvað gott í gogginn þegar ég kem
til baka.“ gun@frettabladid.is
GUÐRÚN ARNARDÓTTIR, FYRRUM FRJÁLSÍÞRÓTTAKONA: Á FERTUGSAFMÆLI
Í húsmæðraorlofi á Íslandi
AFREKSKONA Guðrún kveðst alveg hafa lagt hlaupaskóna á hilluna. „Þeir eru alveg ryðgaðir, greyin,“ segir hún hress. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR skáld er 49 ára.
„Ég skrifa ekki af einhverri meðvitaðri barnslegri einlægni.“49