Fréttablaðið - 24.09.2011, Síða 78
24. september 2011 LAUGARDAGUR46
Sunnudaginn 25. september n.k er hinn árlegi Alþjóðlegi
hjartadagur haldinn hátíðlegur. Að því tilefni hvetjum við
alla til að huga að hreyfingu og hollu mataræði.
Hjartaheill í samstarfi við Heilaheill og Hjartavernd standa
fyrir hjartadagshlaupi 5 og 10 km sem hægt er að skrá sig
í á www.hlaup.is Einnig verður u.þ.b. 3. km ganga sem
allir eru velkomnir í. Engin skráning fer fram í hana fólk þarf
aðeins að mæta.
Hlaupið hefst kl.10:00, en gangan fer af stað kl. 10:30.
Hlaupið og gangan fara fram við Kópavogsvöll v/ Dalsmára.
Allir velkomnir.
Hjartaheill á höfuðborgarsvæðinu
Hjartaganga
krakkar@frettabladid.is
46
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Á GÆLUDÝRAVEF RÚV er að finna alls kyns fróðleik um
gæludýr, ráðgjöf og aragrúa skemmtilegra dýramynda. Slóðin
er servefir.ruv.is/dyr/index2.html
Dreki með brunasár á fram-
fæti fór í læknisskoðun.
Læknirinn hlúði að sárum
drekans og spurði svo hvernig
hann hefði eiginlega brennt
sig. Drekinn svaraði: „Æ, ég
hélt fyrir munninn þegar ég
geispaði.“
Móðir við dóttur sína: „Af
hverju seturðu bangsann þinn
inn í frysti?“
Dóttirin: „Af því mig langar í
ísbjörn!“
Gunni: „Ég heyrði nýjan
brandara um daginn! Var ég
búinn að segja þér hann?“
Doddi: „Ég veit það ekki. Er
hann fyndinn?“
Gunni: „Já!“
Doddi: „Þá hefurðu ekki sagt
mér hann!“
Af hverju þarf maður að fara í
skóla á sunnudögum?
Hafdís: Það þarf enginn að fara í
sunnudagaskólann, en allir mega
koma.
Klemmi: Sunnudagaskólinn er
uppáhaldsskólinn minn.
Mætir Jesús líka í sunnudaga-
skólann?
Klemmi: Auðvitað! Jesús er aðal-
hetjan í sunnudagaskólanum,
næstum öll lögin fjalla um hann
og svo er alltaf verið að kenna
það sem hann sagði og gerði. En
maður getur samt ekki séð hann
með augunum.
Hafdís: Maður getur fundið fyrir
Jesú í hjartanu.
Hvernig kemst Jesús fyrir inni í
hjartanu?
Klemmi: Hann kemst fyrir í
hjartanu ef maður elskar hann
og elskar máf ungann líka.
Hafdís: Ekki máf ungann,
Klemmi, heldur náungann! Elska
náungann!
Hafið þið hitt Guð?
Hafdís: Ég hef ekki séð hann með
berum augum.
Klemmi: Já, ég hef hitt Guð.
Er Guð maður eða kona?
Hafdís: Amma sagði að Guð væri
bæði og hvorugt.
Klemmi: Kannski maðkona?
Hverjir eru foreldrar Guðs?
Hafdís: Engir, held ég. Guð hefur
alltaf verið til.
Klemmi: En María var mamma
hans Jesú, Guð var pabbi hans og
Jósef fósturpabbi.
Var Jesús einhvern tímann
óþekkur?
Hafdís: Neeei, en hann týnd-
ist samt einu sinni í musterinu.
Musteri er eiginlega kirkja.
Mamma hans og pabbi leituðu úti
um allt, en ég held hann hafi ekki
ætlað að vera óþekkur.
Klemmi: Kannski fannst honum
svo gaman að koma heim til
alvöru pabba síns að hann
gleymdi sér.
Hver er uppáhaldssagan ykkar í
Biblíunni?
Klemmi: Nói.
Hafdís: Sagan af því þegar Jesús
reis upp frá dauðum.
Hvert er uppáhaldssunnudaga-
skólalagið ykkar?
Hafdís: „Ég er ekki fótgönguliði.“
Klemmi: Það er lagið „Takk fyrir
mömmu og takk fyrir pabba
minn.“
Hvernig getur Guð heyrt bænir
mínar?
Klemmi: Við vitum ekki alveg
allt. Við erum bara krakkar, sko.
En ég er bara viss um að hann
heyrir í mér af því ég finn það á
mér.
Fer vont fólk líka til himnaríkis?
Hafdís: Ég er allavega stundum
vond, en samt viss um að ég fari
til himnaríkis af því að ég veit að
ef einhver kann að fyrirgefa þá
er það Guð.
Hversu hátt upp í himininn þarf
maður að fara til að sjá himna-
ríki?
Klemmi: Einu sinni þegar ég fór
til útlanda tók ég stóran kíki með
mér í flugvélina og reyndi að sjá
Guð út um gluggann, en ég sá
hann ekki!
Hafdís: Ég spurði ömmu eitt sinn
að þessu og hún svaraði: „Það er
ekki hægt að fljúga þangað. Bara
að trúa þangað.“
Af hverju þurfum við að deyja?
Klemmi: Ég veit það ekki.
Kannski verður maður engill og
fær vængi?
Hafdís (hugsi): En þegar fuglar
deyja og verða englar, fá þeir þá
fjóra vængi?
Klemmi: Haha. Það væri fyndið.
Af hverju hjálpar Guð ekki
svöngu börnunum í heiminum?
Hafdís: Guð er að hjálpa og hann
notar fólk til þess. Það er til
nægur matur á jörðinni handa
öllum en við mennirnir skiptum
honum ekki jafnt. Guð vill að við
hjálpum þeim sem eru svangir og
líður illa. Ég safna alltaf í bauk
fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
Af hverju er ljótt að blóta þegar
aðrir gera það líka?
Klemmi (hugsar sig um): Það er
enn verra að blóta þegar aðrir
gera það líka. Alveg eins og með
ruslið.
Hafdís: Ha? Ég skil ekki.
Klemmi: Jú, göturnar verða skít-
ugri eftir því sem fleiri henda
rusli, og blót er talrusl.
thordis@frettabladid.is
BLÓT ER TALRUSL
Sumarfríið er búið og sunnudagaskólinn byrjaður aftur í flestum kirkjum landsins. Þangað mæta vinirnir
Hafdís og Klemmi á hverjum sunnudegi og rata í skemmtileg ævintýr. Þau vita enda sitthvað um Guð.
MYND/HARALDUR GUÐJÓNSSON
„Við getum ekki hætt, við erum ævintýraóðir,“ segja
leikararnir Gói og Þröstur Leó, en þeir ætla aftur að
setja upp Gói og eldfærin í Borgarleikhúsinu næstu
tvær helgar. Sýningarnar verða fjórar, klukkan 13
bæði á laugardag og sunnudag. „Kannski verða þær
fleiri, við sjáum bara til,“ segir Gói og iðar í skinn-
inu. „Við erum svo spenntir, við getum ekki beðið
eftir morgundeginum. Ég leik dátann og Þröst-
ur leikur allt hitt, prinsessuna og nornina og sér
bara alveg um rest. Við notum öll leikhústrikkin
í bókinni til að blása lífi í þetta gamla ævintýri
og erum ekkert að sykurhúða neitt. Það var ekkert
gert í þessum gömlu ævintýrum, það fer til dæmis
mjög illa fyrir norninni og það er bara í góðu lagi.“
Gói og Þröstur skemmtu sér svo vel í Eldfær-
unum að eftir áramót ætla þeir að setja upp
annað gamalt ævintýri í Borgarleikhúsinu, Gói
og baunagrasið.
„Það er bara svo skemmtilegt að búa til fámennar
og litlar barnasýningar. Þá verður meira samband
milli okkar og krakkanna í salnum. Við hugsum líka
um foreldrana og reynum að skemmta þeim líka,
svo þeir sofni ekki,“ segir Gói sposkur og lofar
góðri skemmtun um helgina.
Engin sykurhúðun
DÁTINN OG
NORNIN Gói og
Þröstur Leó eru
ævintýraóðir og
setja Eldfærin
aftur upp um
helgina.