Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 94
24. september 2011 LAUGARDAGUR62
sport@frettabladid.is
Sunnudagur, 25. september
Stjarnan - Valur kl.16.00
Stjörnuvöllur
Grindavík - Fram kl.16.00
Grindavíkurvöllur
FH - ÍBV kl.16.00
Kaplakrikavöllur
Þór - Breiðablik kl.16.00
Þórsvöllur
Víkingur R. - Keflavík kl.16.00
Víkingsvöllur
KR - Fylkir kl.16.00
KR-völlur
STELPURNAR OKKAR hafa aldrei verið ofar á styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í gær. Sigurinn á Noregi skilar
íslenska kvennalandsliðinu upp um tvö sæti eða alla leið í 15. sæti listans en hver veit nema að stelpurnar hefði farið enn
ofar hefðu þær unnu Belgana líka Af mótherjum Íslands í undankeppni EM eru Norðmenn í 12. sæti og hafa aldrei verið
lægra á listanum. Belgía er í 33. sæti listans, sæti á undan Ungverjum. Búlgaría er í 49. sæti og Norður Írar í 64. sæti.
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson
komst í gegnum niðurskurðinn á
opna austurríska mótinu í golfi í
gær. Hann spilaði fyrsta hringinn
á fimmtudag á þremur höggum
undir pari. Í gær tókst honum
ekki jafnvel upp og lauk leik á
fimm yfir pari og tveimur yfir
samanlagt.
„Maður má bara þakka fyrir að
hafa komist áfram,“ sagði Birgir
Leifur sem var langt í frá að vera
sáttur við spilamennsku sína í
gær.
„Ég er rosalega ósáttur við
sláttinn, komst aldrei í gang og
var að missa flatir trekk í trekk.
Var að setja mig í mjög slæmar
stöður,“ sagði Skagamaðurinn.
„Þetta er bara þannig völlur
að það er ekkert pláss til að spila
öruggt. Maður verður að vera
aggressívur og það var ekki að
virka í dag.“
Birgir Leifur var mættur á
æfingasvæðið þegar undirritaður
heyrði í honum hljóðið.
„Þetta eru gamlir draugar sem
maður er að reyna að losa sig
við. Það jákvæða er að ég fékk
fugl á lokaholunni og tryggði mig
áfram,“ sagði Birgir Leifur. - ktd
Birgir Leifur komst áfram:
Gamlir draugar
gera vart við sig
KAFLASKIPT Birgir Leifur náði ekki að
fylgja eftir frábærum fyrsta degi en
komst þó áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GLÍMA Bardagakappinn Gunnar
Nelson mætir Marko Helen frá
Finnlandi í fyrstu glímunni
á ADCC-mótinu, sterkasta
uppgjafaglímumóti heims, sem
hefst í Nottingham á Englandi
í dag. Marko þessi hefur verið
sterkasti glímumaður Finna
um árabil, en hann hefur keppt
í uppgjafarglímu og brasilísku
jiujitsu frá árinu 1999. Hann er
meðal annars sjöfaldur finnskur
meistari í brasilísku jiujitsu og
fimmfaldur finnskur meistari í
uppgjafarglímu. Hann er ríkjandi
Evrópumeistari í slíkri glímu og
hefur tvisvar unnið þann titil.
„Ég er bara bjartsýnn fyrir
glímuna og met möguleika mína
góða,“ sagði Gunnar Nelson
sallarólegur þegar Fréttablaðið
talaði við hann í gær. „Það skiptir
engu máli á móti hverjum ég lendi
– það verða allir bardagarnir á
þessu móti mjög erfiðir. Þetta eru
allt topp glímumenn.“
Haraldur Nelson, faðir Gunnars
og umboðsmaður, hitti Marko við
komuna til Nottingham. Hann seg-
ist ekki skilja hvernig Finninn nái
að létta sig niður í -88 kílógramma
flokkinn enda sé hann vanari að
keppa í þyngri flokkum. „Hann er
í toppformi og sagði mér að hann
rétt næði að hanga í 88 kílóunum,“
segir Haraldur.
Gunnar ætlaði upphaflega að
keppa í -77 kg flokknum en vegna
breyttra reglna við vigtun ákvað
hann að keppa í næsta flokki fyrir
ofan, -88 kg flokkinum.
„Ég er léttur í mínum flokki,
ætli þeir séu ekki flestallir
þyngri en ég,“ segir Gunnar,
sem er þó hvergi banginn. „Ég
er með ákveðna taktík sem ég
mun nota. Hann er þungur og að
öllum líkindum sterkari, en ég er
sneggri. Ég hef eitt og annað með
mér.“
Gunnar þekkir vel t i l
Markos. Finninn heimsótti
bardagaklúbbinn Mjölni fyrir
nokkrum árum, auk þess sem
Gunnar hefur margoft séð hann
glíma. „Ég hef oft séð hann berjast
en hef ekki verið að stúdera hann
undanfarið. Ég er með mína grófu
taktík í hausnum og mun vinna
eftir henni.“
Á A D C C - g l í m u m ó t i n u
eru sextá n keppendur í
hverjum flokki. Keppt er með
útsláttarfyrirkomulagi, sem þýðir
að ef Gunnar tapar glímunni á
móti Marko er hann úr leik.
Á laugardeginum er keppt í
ákveðnum þyngdarflokkum en á
sunnudeginum er keppt í opnum
flokki. Sextán áhugaverðustu
keppendurnir eru valdir í þann
flokk. - kh
Bardagakappinn Gunnar Nelson hefur leik í dag á ADCC-mótinu, sterkasta glímumóti heims:
Mætir ríkjandi Evrópumeistara í fyrstu glímu
GUNNAR NELSON Gunnar kom til Nottingham á fimmtudag. Faðir hans og tveir
félagar úr Mjölni eru með í för. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Ísland á flotta full-
trúa í stórleik dagsins í þýska
handboltanum þegar lærisvein-
ar Guðmundar Guðmundssonar,
Rhein-Neckar Löwen, taka á móti
strákunum hans Alfreðs Gísla-
sonar í Kiel. Róbert Gunnarsson
og Aron Pálmarsson munu takast
á inni á vellinum en Róbert hefur
mætt eins og nýr maður til leiks á
þessu tímabili eftir að hafa tekið
mataræðið algjörlega í gegn.
„Þetta er einn af þessum
stóru leikjum og það verður
rosa gaman að spila hann. Von-
andi hittum við á góðan dag en
Kiel er í svaka formi þessa dag-
ana og er að spila hrikalega vel,“
segir Róbert Gunnarsson. Rhein-
Neckar Löwen vann þrjá fyrstu
leiki sína í deildinni en tapaði
síðan óvænt fyrir Íslendingalið-
inu Hannover-Burgdorf í síðustu
umferð.
„Við getum verið ógeðslega
góðir og svo getum við líka verið
hrikalega lélegir. Við erum að
reyna að stilla það af en það gekk
ekki alveg nógu vel á móti Hann-
over. Á einni viku áttum við tvo
mjög góða leiki og einn hræði-
legan mitt á milli. Það er eitthvað
sem við verðum að laga en þetta
lítur allt í lagi út,“ segir Róbert.
Róbert hefur byrjað tímabil-
ið vel með Löwen-liðinu en Guð-
mundur treystir nú algjörlega
á hann á línunni hjá liðinu eftir
að Norðmaðurinn Bjarte Myrhol
er frá eftir að hafa greinst með
krabbamein í sumar.
„Ég spila alla leikina núna því
Bjarte er ekki með. Eins og stað-
an er í dag þá er ég bara einn um
stöðuna. Það mætti alveg ganga
betur en við skulum ekki nota orð-
takið að spýta í lófana því þá gríp
ég ekkert,“ sagði Róbert í léttum
tón. Hann var að sjálfsögðu ekki
sáttur við síðasta vetur þar sem
hann var í algjöru aukahlutverki
hjá Löwen-liðinu.
„Ég þarf að halda áfram að
berjast og hafa gaman af því að
spila. Það voru mikil viðbrigði í
fyrra þegar ég spilaði mun minna
en ég var vanur. Ég vissi alveg
að ég myndi spila minna en svo
stóð Bjarte Myrhol sig alveg frá-
bærlega vel þannig að ég spil-
aði ennþá minna. Það er ekk-
ert við því að segja því svona er
bara sportið og atvinnumannalíf-
ið. Þetta er fljótt að breytast og
maður þarf bara að vera á tánum
þegar maður fær að spila,“ segir
Róbert.
Róbert er nú eini Íslendingur-
inn í liði Rhein-Neckar Löwen
en Ólafur Stefánsson og Guðjón
Valur Sigurðsson fóru til danska
liðsins AG Kaupmannahöfn í
sumar.
„Ég hef prófað þetta áður. Ég
var í Gummersbach þegar við
vorum fjórir Íslendingarnir og
svo var ég orðinn einn eftir. Ég
þekki þetta alveg, auðvitað er
gaman að hafa Íslendinga með sér
en þetta er óskavinna og maður
kynnist þá bara hinum liðsfélög-
unum betur,“ segir Róbert.
Þeir sem hafa séð til Róberts
á haustmánuðunum hafa tekið
eftir að hann er búinn að skera sig
niður og virkar í frábæru formi.
Róbert segist ekki hafa farið í
neitt átak en að hann hafi tekið
sig taki í mataræðinu.
„Ég fór loksins að opna augun
fyrir heilbrigðara líferni og þetta
er ekkert flóknara en það. Ég er
í engum kúr eða svoleiðis en er
bara að lifa aðeins heilbrigðara og
hættur þessu sukki. Það er hræði-
legt að segja frá því að maður
fatti þetta fyrst þegar maður er
kominn yfir þrítugt,“ segir Róbert
sem tók líka vel á því í sumar.
„Ég æfði hrikalega vel, bæði
í sumar sem og á undirbúnings-
tímabilinu. Ég hef alltaf æft vel
en tók núna allan pakkann, fór að
hugsa um mataræðið og fór líka
að æfa aukalega. Undirbúnings-
tímabilið er búið og nú er bara
komið að því að standa sig.“
Róbert hefur skorað þrjú
mörk að meðaltali í fyrstu
fjórum leikjunum. „Ég hef
átt mjög góða leiki það sem
af er í vetur en ég hef átt líka
lélega leiki. Þetta snýst bara
um að ná stöðugleika og það
þýðir ekkert að dvelja við for-
tíðina. Maður verður að halda
áfram, taka bara næsta dag og
halda áfram að reyna að bæta sig.
Ég þarf að sanna aðallega fyrir
sjálfum mér að ég geti ennþá spil-
að eins og ég hef gert áður,“ segir
Róbert.
Róbert hefur spilað fyrir þá
Guðmund Guðmundsson og Alfreð
Gíslason bæði í félagsliði og lands-
liði og þekkir því vel til þjálfar-
anna tveggja sem mætast í dag.
„Þetta er svolítið sérstakur leik-
ur því þarna mætast tveir íslensk-
ir þjálfarar og við erum síðan
tveir íslenskir leikmenn líka.
Þetta er svolítill þjálfaraslag-
ur enda verður þetta taktískt og
eins konar skák fyrir þjálfarana.
Ég þekki þessa þjálfara vel og
þeir eru að vissu leyti mjög svip-
aðir. Þeir eru örugglega báðir að
hugsa hvað hinn ætlar að gera á
morgun. Ætli þeir séu ekki búnir
að ofhugsa þetta báðir,“ segir
Róbert.
Leikur Rhein-Neckar Löwen og
Kiel verður í beinni útsendingu
á Stöð 2 Sport og hefst klukkan
15.30.
„Ef við náum að spila nokkuð
stresslausir og náum að spila
okkar bolta þá hef ég engar
áhyggjur. Það þurfa allir hjá
okkur að eiga góðan dag. Ég reyni
kannski að standa mig extra vel
á morgun fyrst þetta er sýnt
heima,“ segir Róbert að lokum.
ooj@frettabladid.is
Hættur öllu sukki í mataræðinu
Landsliðslínumaðurinn Róbert Gunnarsson tók mataræðið sitt í gegn eftir síðasta tímabil. Hann verður í
sviðsljósinu í dag þegar Íslendingaliðin Rhein-Neckar Löwen og Kiel mætast. „Ætli þeir séu ekki búnir að
ofhugsa þetta báðir,“ segir Róbert um þjálfareinvígi Guðmundar Guðmundssonar og Alfreðs Gíslasonar.
KLÁR Í ÁTÖKIN Á LÍNUNNI Róbert Gunnarsson sést hér í baráttunni í leik með Rhein-
Neckar Löwen á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ JÜRGEN PFLIEGENSDÖRFER