Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 3

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 3
1 FAXI 10. tbl.-XXI. ár DESEMBER 1 96 1 Útgefandi: Málfundafélagið Faxi Keflavík I nw & & & $ & & & & & & & 1$ PQ & $ & & & $> & $ & ft & &> Þ & & & & fc BJÖRN JÓNSSON: Fögnuður, friður og velþóknun ,,Og engillinn sagði við }>á: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum. Því yður er í dag Frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs". (Lúk. 2, 10). Við fögnum hækkandi sól og vaxandi veldi dagsins, sem jólatíminn boðar. Okkur þykir yndi að mörgum þjóðlegum myndum og minningum, sem við þessa iniðsvetrarhátíð eru tengdar frá fornu fari. En kristnum mönnum eru jólin heilög ljóssins hátíð í vetrarmyrkri, vegna þess, að þau hoða leitandi og ljósþyrstum mannssálum fögnuðinn æðsta og iiiesta. ,,Ég boða yður mikinn fögnuð!" Þetta segja okkur jólafrásögur, jólasálmar og hljómar jóla- klukkna, er berast út yfir bæ og byggð og „kalla þjóð Krists í tjöld". Við víkjum því til liliðar, sem á undanförnum dögum hefir verið sett í samband við jólin. Hið ytra jólahald verður aukaatriði. Við fögnum hinni beztu, — hinni einu og sönnu jólagjöf Guðs. Nú er okkur fæddur Frelsarinn. Og hver ein- asta jólahátíð kallar kristinn lýð til þess að íhuga gildi þeirrar gjafar, — og þakka Honum, sem gjöfina gaf. Sjálfur á ég að þakka þessa gjöf af öllu mínu hjarta, — gjöf, sem verður mér því dýrmætari, sem ég á hana lengur. — En ég á líka af mínum veika mætti að benda öðruin á þessa gjöf, sem öllum er ætlað að eiga og njóta með mér. Ég á að segja frá því sem ég veit urn frelsishetjuna og friðargjafann, sem jólin eru helguð. Og ég rná ekki frernur þegja um þetta, þótt nú virðist svo, sem mennirnir meti annað meira en frelsið og friðinn, sem þeim er boðinn í honum. Ef Kristur hefir verið og er mér ástvinur sálar minnar, svo að þökk og lofgjörð býr í hjarta mínu, má ég ekki gleyma því, að allt hið göfugasta og bezta í sál hvers einstaklings þráir hann öllu öðru fremur. — Og ef ég veit uin þyrstar og þreyttar sálir, þá má ég ekki gleyma því, sem af mér er krafizt. „Seg þeim, hvað þú sjálfur reyndir, sjálfur veizt og þreifar á. Urn hans kærleik, um hans dæmi, um hans lífgun dauðum frá.“ Það skiptir minna máli í þessu sambandi, þótt einhverjir skilji eða skýri eðli hans og veru öðruvísi en ég á einn eða annan hátt. Þess get ég ekki vænzt, að allir hugsi eins og ég. En hitt veit ég, að allir eru í þörf fyrir hið sama: Að sjá hann, — gefa honum hjarta sitt, — eiga hann að frelsara og leið- toga í lífi og dauða. Það er því aðalatriðið, að ég segi frá því, sem ég hefi fengið að vita uin hann. Mér ber að fara líkt að og sagt er um hirðana í framhaldi jólaguðspjallsins, að „þeir skýrðu frá því, sem talað hafði verið við þá unt barn þetta.“ Hann var í upphafi hjá Guði. Hann tók á sig læging mann- legra kjara mönnurn til hjálpar, — gjörðist vor vegna fátækur, svo að vér auðguðumst af fátækt hans“. A mannlegan rnæli- kvarða lifði hann stutta ævi. En nógu langa til þess, að hann er nú ímynd æðsta andans tignar og máttar í vitund hinna ólíkustu manna. Þótt mennirnir horfi á hann i gegnum marglit sjóngler mis- munandi skoðana, þá dyljast engum frábærir yfirburðir hans. Af verkum hans ljómar líkn og inildi, — og eigi síður af orð- urn hans, er hann breiðir út faðminn og býður til sín öllurn þjáðum og þunga hlöðnum. En sarnt er ekkert ókarlmannlegt eða kveifarlegt við hann. í orðum og athöfnum var hann ímynd allrar hreinskilni og hugdirfðar. Hann bjó yfir þeim vísdómi, sem oft virtist hulinn spekingum og hyggindamönnum heims- ins, en reyndist þó opinber og augljós bömum og smælingjum. — Gæskan, mátturinn og spekin, sem birtist í lífi hans, helgar honum það nafn, sem hverju nafni er æðra: Guðs sonur. Þega hann lét blinda sjá, læknaði sjúka og gaf látnum líf, kom það í ljós, að hann, sem fæddur var við fátækleg kjör, var óendanlega miklu máttkari öllum, sem fyrr eða síðar hófust til auðs og valda. Eins og hann sjálfur sagði, átti hann hvergi höfði sínu að að halla, en samt leituðu mennirnir hælis hjá honum og vildu halla þreyttu höfði að bróðurhjarta hans. Frá þessu segja guðspjöllin. Frá þessu segir 19 alda saga mann- kvnsins. Og frá þessu segir saga okkar tíma um öll heimsins lönd. Enn sem fyrr em vottar hans að verki víða um heim, boðandi hin heilögu sannindi með orðum og athöfnum. — Vitundin um það fyllir hjörtun lofgjörð og þökk. Mörgum þykir dimmt yfir, og veður öll válynd í mannheimi á þessum tímum — og það ekki að ástæðulausu. Ekki skortir þó mennina vísindaþekkingu né vald það, sem hún veitir. En það sem brestur, em sannir vitsmunir, sem stýrt er af kær- leika og góðum vilja, svo að allri sannri þekkingu mannanna og getu verði til gæfu stýrt, en ekki ógæfu. Og ekki mun neinn treystast til að andmæla því í einlægni, að allt rnundi þetta fást, ef mennirnir gerðu Krist Jesúm — jólabarnið að írelsara sinum, og létu ljós orða hans og eftirdæmis lýsa sér. En það htúla einnig aðrir skuggar yfir lífi margra. Skuggar sjúkdóma, skuggar sorgar og sársauka, er dauðinn veldur. Þeir skuggar hvíla víða yfir um þessi jól sem endranær. En eins til þeirra og til liins stríðandi og skelfingu lostna mannkyns urn heim allan berast nú engilkveðjan himneska: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum. Því að yður er í dag Frelsari fæddur“, — Frelsari frá synd og sorg og dauða, — Frelsari, sem býður hjálp sína þeinr „bjargarlausu og snauðu, þeim breyzku, særðu, föllnu, týndu og dauðu“, — öllum, er boðinu vilja taka, — hjálpina þiggja. Hans jólagjöf, — Guðs jólagjöf í Honum er: Friður Guðs og velþóknun öllum mönnum og öllum heimi. Hver er sá, sem ekki vill þiggja þá gjöf? 1 Jesú nafni. — Gleðileg jól. $ $ fe & & & & $> $ to $$ & $ & & & & $ & $ & $ & &
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.