Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 6
162
F A X I
Utskálakirkja hundrað ára
Söfnuður útskálasóknar minntist 100 ára
afmælis kirkju sinnar hinn 12. nóv. s.l. Há-
tíðahöld hófust í kirkjunni kl. 2 e.h. með
guðsþjónustu. Biskup íslands, hr. Sigur-
björn Einarsson, predikaði ásamt sóknar-
prestinum, séra Guðmundi Guðmundssyni.
Kirkjukór Utskálakirkju söng með undir-
leik Auðar Tryggvadóttur organista, en
Jón Isleifsson, form. kirkjukórasamb. Is-
lands hafði æft kórinn fyrir guðsþjónust-
una.
Margt mætra gesta var viðstatt, biskup
Islands og frú, prófasturinn í Kjalarnes-
prófastsdæmi, séra Garðar Þorsteionsson
og frú, séa Björn Jónsson og frú, Keflavík,
séra Jón Arni Sigurðsson og frú, Grinda-
vík, séra Kristinn Bjarnason og frú, Reyni-
völlum, og biskupsritari, séra Ingólfur
Astmarsson. Einnig voru viðstaddir safn-
aðarfulltrúar og formenn sóknarnefnda
frá Hvalsnes-, Keflavíkur- og Njarðvíkur-
sóknum.
Kirkjunni bárust margir fagrir og vand-
aðir gripir að gjöf, m. a. 50 silfurbikarar
frá kvenfélaginu Gefn í Garði, silfurkaleik-
ur frá prestshjónunum að Utskálum, frú
Steinvöru Kistófersdóttur og séra Guð-
mundi Guðmundssyni og mjög vandaður
hökull frá hjónunum frú Helgu Þorsteins-
dóttur og Jóhannesi Jónssyni, Gauksstöð-
um í Garði, til minningar um foreldra
þeirra hjóna. Keflavíkursöfnuður gaf fjórar
fagrar ljósastikur á altari kirkjunnar og
afhenti jafnframt skrautritað ávarp, en Ut-
skálakirkja var sóknarkirkja Keflavíkur
allt til ársins 1915. Gömul fermingarsystkin
gáfu tvo kristallsvasa. Fjárupphæðir bár-
ust frá Hvalsnes- og Njarðvíkursöfnuðum,
kirkjukór Utskálakirkju og frá einstakling-
um innan safnaðarins og brottfluttu safn-
til Reykjavíkur og bjó hún síðan hjá börn-
um sínum, og eftir að þau giftust, dvaldist
hún hjá þeim á víxl á hinum stórmyndar-
legu heimilum þeirra systkina beggja.
Anna Gísladóttir hélt sálarkröftum óskert-
um til hins síðasta og skemmti sér þá eink-
um við hannyrðasaum. Hún andaðist hjá
Ingibjörgu dóttur sinni 28. sept. 1928. Lík
hennar var flutt suður að Utskálum og
jarðað við hlið manns hennar í Utskála-
kirkjugarði.
Talið frá vinstri: Sr. Ingólfur Ástmarsson biskupsritari, sr. Kristján Bjarnason, sr. Garðar Þorsteins-
son, prófastur, biskupinn yfir íslandi dr. Sigurbjörn Einarsson, sr. Guðmundur Guðmundsson,
sr. Björn Jónsson og sr. Jón Á. Sigurðsson.
aðarfólki. Á öðrum stað í blaðinu verður
gerð nánari grein fyrir þessum gjöfum, en
alls bárust kirkjupnni um 100.000,00 krón-
ur. Einnig barst fjöldi heillaskeyta.
Eftir guðsþjónustuna hófst samsæti í
samkomuhúsinu að Gerðum. Formaður
sóknarnefndar Utskálasóknar, Sigurbergur
H. Þorleifsson, bauð gesti velkomna og
stjórnaði samsætinu. Flutti hann einnig
erindi og rakti sögu Utskálakirkju s.l. 100
ár. Verður sú ræða birt í janúarbl. Faxa.
Þorlákur Benediktsson, safnaðarfulltrúi,
flutti erindi og minntist þar presta, er
þjónað hafa á Utskálum, söngfólks og
annarra, sem mest hafa starfað fyrir kirkj-
una á undanförnum árum. Einnig fluttu
ræður undir borðum, biskup, prófastur,
sóknarprestur, séra Björn Jónsson, Kefla-
vík, sóknarnefndarmenn og safnaðarfull-
trúar frá Keflavík og Njarðvíkum og fleiri.
1 samsætinu var mikill og almennur söng-
ur, m. a. söng kirkjukór Utskálakirkju
Útskálakirkja.
lililill
wMMWmá