Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 9

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 9
F A X I 165 Bindindismannamófið að vanda léti. Ferðasaga okkar verður ekki sögð á þessum vettvangi, eða hvers við urð- um vísari. En ég get þessa hér til þess að fólki skiljist, að Reglunni sem slíkri, er ekkert mannlegt óviðkomandi. Henni er alls ekki nóg, að standa sjálf fyrir áfengislausum sam- kvæmum, innan dyra sem utan þeirra. Hún vill einnig hafa bætandi áhrif á það hrylli- lega ástand, sem nú ríkir í skemmtanalífi landsmanna og er því staðráðin i að fylgjast með á samkomustöðunum og fletta miskunn- arlaust ofan af ósómanum, ihvar sem liann er að finna. Eftir þennan útúrdúr skal nú áfram haldið, þar sem frá var horfið. Er við klukkan að ganga 2 um nóttina komum úr þessum nætur- leiðangri, var varðeldur sá hinn mikli, sem tendraður hafði verið fyrr um kvöldið, út- brunninn að mestu. En í flöktandi bjarma frá hinum dvinandi glæðum bar einkennilega og næstum nýstárlega sýn fyrir augu okkar. Stór hópur ungmenna, yfir hundrað manns sat þar þögull í þéttri þyrpingu. maður við mann, og hlustaði með andakt á ungan mann er sat utarlega í þyrpingunni og sagði sögu af mikilli orðgnótt og mælsku. Og vitanlega urðum við Freymóður brátt hluti af þessari samstæðu hlustandi heild. Nokkru síðar brá ég mér snöggvast heim í tjaldið mitt, en er ég aftur kom á staðinn, var Freymóður tekinn við hlutverki sögumannsins og hafði náð óskiptri athygli áheyrenda sinna. Þessi sér- stæða og hátíðlega athöfn minnti í einfald- leik sínum á tvennt í senn, eitthvað fjarlægt og framandi, en þó nærtækt og gamalkunn- ugt. Annars vegar siðvenjur Austurlanda- búa, en á hinu leitinu Sögurnar hennar ömmu. — En umgerðin um þessa sérkennilegu og undurfögru mynd var blækyrr og rökkur mjúk nóttin. Þannig leið þetta laugardagskvöld í Húsa- fellsskógi og húmdökk náttslikjan lagðist yfir jörðina og vafði hana örmum sínum, unz hin rósfingraða og árrisula morgunsól birtist við austurbrún og boðaði komu nýs dags. Það var sunnudagur. Þennan morgun var víðast seint risið úr rekkju. Aðeins morgunhanarn- ir tóku sér smágöngutúra fyrir hádegið. En þegar fólk almennt var vaknað og hafði mat- azt, heyrðist tilkynnt í hátalaranum um Víð- Mótsgestir horfa á varðeldinn brenna. Umdæmisstúka Suðurlands efndi nú í sum- ar eins og á s. 1. ári til bindindismannamóts í Húsafellsskógi um verzlunarmannahelgina. Mót þetta fór vel fram og var í alla staði hið ánægjulegasta og til verðugs sóma fyrir um- dæmisstúkuna, enda virtist allt leggjast þar á sömu sveif; fagurt veður, unaðslegur stað- ur, mikið af skemmilegu fólki, er þarna virt- ist mætt með það sjónarmið ofar öllu öðru, að njóta lífsins þessi bráðfley.gu sumaraugna- blik, og svo síðast en ekki sízt hin ágæta mótsnefnd, sem hafði haft veg og vanda af skipulagningu mótsins, undirbúið samkomu- svæðið fyrir komu gestanna, raðað niður dagskráratriðum, eftir því sem um var vitað fyrirfram og veitt hvers konar fyrirgreiðslu meðan á mótinu stóð. Inngangseyrir að þessu bindindismanna- móti var mjög í hóf stillt. Aðgöngumiðinn, sem gilti fyrir öll skemmtiatriðin, þar með taldar 3 leiksýningar og dansinn bæði kvöld- in, var aðeins 15 krónur. Mundu það áreiðan- lega hafa þótt litlar eftirtekjur á öðrum sam- komustöðum þessi kvöld. En það sem hér ræður mestu um og vert er að veita athygli, er sú staðreynd, að Góð- templarareglan heldur ekki slíkt sumarmót um verzlunarmannahelgina, né á neinum öðrum tíma, til þess að græða á því, 'heldur í þeim tilgangi einum, að forða ungu fólki frá því ofboðslega svalli og siðleysi, sem ræður ríkjum í landi voru þessa björtu sum- ardaga, sem frá hendi höfundar lífsins eru ætlaðir til að bæta manninn og göfga, en ekki til að skemma hann og skrílmenna í Hrunadansi heimsku og siðleysis. Svipast um í fögru umhverfi. Eftir að mótsgestir, sem töldust vera nálægt 700 og voru vítt að komnir, höfðu tjaldað og búið um sig á grænflosuðum bökkum Kald- ár, umluktum hávöxnu skógarkjarrinu, söfn- uðust þeir saman á samkomusvæðinu, þar sem mótið var sett af formanni undirbúnings- nefndar, Kjartani Olafssyni, er lýsti tilgangi og tilhögun mótsins og stjórnaði því með lip- urri framkomu. Að lokinni þessari athöfn dreifðist fólkið nokkuð. Hópar af yngri kynslóðinni héldu til knattspyrnu og handboltaleikj a á völlun- um handan árinnar, en eldra fólkið lét sér hægar til leikjanna, en notaði þess í stað tímann til þess að skoða sig um á þessum við- kunnanlega stað og rabba saman. Síðar um kvöldið hófst svo dans af miklu fjöri og tóku þótt í honum bæði ungir og gamlir. A meðan „danslagið dunaði og svall“ þarna í grænu skógarrjóðrinu, bauð Freymóð" ur Jóhannsson listmálari mér með sér í öku- ferð til hinna ýmsu skemmtistaða héraðsins, sem allir mundu þetta kvöld fullsetnir og líkur til að upp úr kynni að sjóða víða, ef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.