Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 27

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 27
F A X I 183 Þannig var það Fjörutíu ára minning. Þegar ég var að leita í ruslakistu minn- inganna, fann ég ekki neitt, sem ég gæti hugsað til að kæmi fram í dagsins ljós. Annir daganna og strit áranna hafa þurrk- að flest út. En þó er þar ein minning, sem alltaf skýtur upp kollinum, og af því að nú er Jólaföstuinngangur, er hún einmitt nú réttra 40 ára gömul. Unga fólkið á Ströndunum hafði komið sér saman um að halda skemmtun. Húsa- kostur var hvergi mikill þar um slóðir, en þó var þar á einum bænum nokkuð stór og rúmgóð stofa, sem hægt var að dansa í, og önnur fyrir veitingar. Mikið var nú hlakkað til, sérstaklega hjá okkur kvenfólkinu. En það leit ekki út fyrir að hamingjan ætlaði að vera okkur hliðholl, því snjónum kyngdi niður mest- alla vikuna fyrir laugardaginn, þegar skemmtunin átti að vera. Loks rann þó upp þessi langþreyði dag- ur, dimmur og þungbúinn, en lítið snjóaði. Leizt karlmönnunum ekki vel á veðrið og þaðan af síður á færið, því snjórinn var svo laus, að ekki var hægt að nota skíði. Okkur konunum fannst hins vegar óbæri- legt að hætt yrði við skemmtunina, sem við höfðum hlakkað svo mikið til, og því hvöttum við mjög til fararinnar. Niðurstað- an varð því sú, að ákveðið var að fara og var síðan lagt af stað. Ferðin gekk mjög seint, piltarnir gengu á undan en við stúlkurnar fylgdum fast á eftir, gengum í slóðina og voru bakkar hennar oft í mitt læri og meira, svo mikið var snjókafið. En þrátt fyrir þessa erfið- leika voru allir hressir í anda, því til mik- ils var að vinna, að komast þetta, og þó að tvær vondar og viðsjálar torfærur væru á leiðinni, létum við það ekki á okkur fá, enda stóð nú ekkert fyrir okkur. Eftir þriggja stunda ferðasvakk náðum við á samkomustaðinn, vorum við þá bæði blaut og svöng. En nú voru hendur látnar standa fram úr ermum við að hafa fata- skipti og skrýðast sínu hezta skarti, sem borið hafði verið með sér á hinni erfiðu göngu. Var síðan setzt að kaffidrykkju, sem húsmóðirin á bænum og dætur hennar báru fram af mikilli rausn. — Og fljótt leið tíminn. Þarna á skemmtuninni voru samankom- Stefanía Guðmundsdóttir. in ungmenni frá 5 bæjum, en á sumum þeirra var fjölbýli. Þetta æskufólk hafði ekki mörg tækifæri til þess að hittast, sízt að vetrinum, því oftast hömluðu þá snjó- þyngsli og svo lágu illvíg fjöll á milli sumra bæjanna, sem gátu orðið þung í skauti á þeim árstíma. En þetta umrædda kvöld varð allt slíkt að víkja fyrir hinni tápmiklu æsku, er sveif syngjandi og lífs- glöð inn í dansinn. Og þó þar væri engin hljómsveit, aðeins tvöföld hamonika til að dansa eftir, þá ljómaði þar heilbrigð og óspillt æskugleðin á hverju andliti og allir dönsuðu af hjartans lyst. Einnig var farið í jólaleiki. En þegar fólk var orðið þreytt að dansa og leika sér, sameinuðust allir í fögrum söng. Þetta kvöld voru einnig flutt- ar ræður, þó ég hafi nú gleymt um hvað þær fjölluðu eða hverjir fluttu þær. Var síðan aftur tekið til við dansinn og þá dansað fram á morgun, en þá var skemmt- uninni hætt með því, að húsbóndinn til- kynnti, að nú ætti húslestur að hefjast, þegar búið væri að drekka morgunkaffið, og kom engum til hugar að mótmæla því, jafnvel þótt marga hefði fýst að mega dansa lengur, enda var þessi tilhögun föst venja í sveitum landsins í þá daga. Var síðan gengið til baðstofu og hlýtt á lestur- inn, og munu flestir gestanna hafa tekið þátt í sálmasöngnum, en sjálfsagt hefir nú margan syfjað í slíkri kyrrsetu eftir svo langa og stranga vöku, og líklega hafa þá enn hljómað í eyum okkar margra hinir töfrandi og seiðmjúku tónar harmonikk- unnar og dunurinn af hratt stignum dans- inum. Er mér ekki grunlaust, að þetta allt hafi orkað meira á hugann, en lestur hús- bóndans. En þegar húslesturinn var á enda, var tekið til við að búa sig til heimferðar, kveðja heimilisfólkið og þakka fyrir góðar viðtökur. Glöð og hress í anda héldum við svo af stað út í hríðarmugguna, þeir sam- ferða, er samleið áttu, en hinir kvaddir og þeim þökkuð samveran, er aðrar leiðir fóru. Allir voru ánægðir með velheppnaðaa skemmtun, þótt hvorki væru þar reyktir vindlingar né drukkið vín. Reyndar fengu karlmennirnir vindla, þeir sem það vildu, en kvenfólkið kunni þá ekki slíka hluti, að minnsta kosti ekki á Ströndum. Og þegar ég nú legg frá mér prjónana mína og legg hendur í skaut og læt hug- ann reika til löngu liðinna daga, og orna mér við arinn minninganna, liggur við, ef ég ætti ósk fram að bera, að hún vrði sú, að ungu stúlkurnar, sem nú sækja sínar skemmtanir í raflýsta og glæsta sali nútím- ans, mættu eiga þaðan jafn ánægjulegar minningar frá þeirra æskuskemmtunum, er lýsi og vermi síðar meir í hug þeirra og hjarta, eins og þessi fátæklega, litla æskuskemmtun hefir gert í huga mínum fram á þennan dag. Stefanía Guðmundsdóttir. Guðmundur Finnbogason Hvoli Innri-Njarðvík sendir Faxa nokkra vísnafyrriparta ,sem 'hann óskar eftir að fá botna við í næsta blaði. Getur þetta orðið skemmtilegur þáttur hér í blaðinu, ef menn vildu sinna þessu og senda blaðinu botnana. Finnst þér ekki að stjórnin hafi staðið stórmannlega við sín fyrirheit? Nú er mikið Strompastand, startar því hann Kiljan. I heiminum er hark og brak , hamagangur mesti. Síldin gefur sumum mikið, sem að hennar notið fá. Norðanáttin nöpur, stinn næðir þrátt um vanga. Sjónvarpið um landið læðist líkar ykkur þessi menning? Jólastjarna, helg og hrein heim til barna lýsir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.