Faxi - 01.12.1961, Qupperneq 19
F A X I
175
Sjálfboðaliðar við gróðursetningu að Háabjalla á Vogastapa.
ekki glatast ,og bæri brýn nauðsyn til að
skrá þau, jafnframt sem merkilegar menn-
ingar-sögulegar heimildir. Hóf hann því á
árinu 1952 að skrá fiskimiðin í Grinda-
víkursjó eftir frásögn ábyggilegra heimild-
armanna. Seinna skráði hann önnur fiski-
mið, sem birta á í annarri bók. Eftir beiðni
og hvatningu Friðriks, tók Magnús Þórar-
insson, fyrrv. formaður og fræðimaður að
sér að skrá fiskimiðin fyrir Miðnesi og lýs-
ingu á svæðinu frá Höfnum til Garðskaga,
enda var hann nákunnugur á þessum slóð-
um eftir að hafa dvalið þar og sótt sjó
þaðan um langt árabil. Einnig lagði hann
til mikið af öðru efni í bókina. A Magnús
rniklar þakkir skildar fyrir þann stóra
skerf og mikilsverða, sem hann hefur lagt
til áðurnefndrar bókar af einstökum áhuga
og elju, auk þess sem frásagnargáfa hans
er frábær.
Að lokum skal þess getið, að félagið
lét gera bók, sem nefnd er „SILFUR-
SKINNA", árið 1953, í þeim tilgangi, að
það félagsfólk og aðrir velvildarmenn fé-
lagsins, er styrkja vildu starfsemi þess með
gjöfum, riti nöfn sín eða þeirra, er þeir vilja
minnast, í bókina og æviatriði. Fé því, sem
fremst varið til aðkallandi framkvæmda í
sambandi við trjáræktarland félagsins á
Suðurnesjum og annarra nauðsynjamála,
er félagið beitir sér fyrir að koma í fram-
þannig kann að safnast, verður fyrst og
kvæmd. Bók þessi verður í vörzlu félagsins
á meðan það starfar, síðan verður hún af-
hent þjóðskjalasafninu til geymslu.
Stjórn Félags Suðurnesjamanna er nú
þannig skipuð:
Formaður: Þorsteinn Bjarnason, kennari.
Vara-form.: Einar Jósefsson, forstj.,
Ritari: Stefanína Stefánsdóttir, frú,
Gjaldkeri: Halldór Þórarinsson, inn-
heimtum.,
Einar Stefánsson, múrarameistari,
Jón Guðmundsson, skrifstofum.,
Sveiney Guðmundsdóttir, frú.
F.K.M.
Kóngsdóttirin fagra
og Álfagull í nýjum búningi
Út eru komnar á vegum Bókaútgáfu Menn-
ingarsjóðs hinar ágætu og sígildu barnabækur
Bjama M. Jónssonar námsstjóra, Kóngsdótt-
irin fagra og Alfagull, sem á sínum tíma þóttu
vera öndvegisrit sinnar tegundar, en voru
fyrir mörgum árum uppseldar hjá forlagi og
bókaverzlunum. Bækur þessar koma nú á
markaðinn í nýjum og glæsilegum búningi
og munu áreiðanlega verða aufúsugestir allra
þeirra, sem góðum bamabókum unna. Hér
gefst ekki tóm til að ræða innihald þessara
kjörbóka, en síðar mun ég gera þeim betri
skil, því samtímis því að vera spennandi
lestrarefni fyrir börnin, eiga þær siðfræði-
legt erindi til þeirra og reyndar til allra, jafnt
ungra sem gamalla.
Skal hér tilfærður kafli úr ritdómi um
aðra útgáfu bókanna eftir dr. Símon Jóh.
Agústsson prófessor.
„Nýlega bárust mér tvær barnabækur eftir
Bjarna M. Jónsson námsstjára: Alfagull og
Kóngsdótturin fagra. Ég las þær mér til
óblandinnar ánægju. Báðar sögurnar eru æfin-
týri, fallegar að efni. Nú er ekki nóg að efni
bókar sé hugþekkt, ef meðferð þess, gerð
sögunnar, er áfátt. En einmitt í þessu atriði
finnst mér höfundi hafa tekizt óvenjulega
vel. Maður gæti haldið, að hann væri þama
að færa í letur gamalt ævintýri, þaulfágað
í geymd af frásögn margra kynslóða. Málið
á bókunum er eðlilegt og vandað, þau orð
eru notuð, sem efnið að réttu lagi krefst, og
á þeim er því ekkert uppgerðar bamamál,
eins og um of hefur oft gætt á sumum bók-
um, sem börnum eru ætlaðar."
Þetta segir hinn hámenntaði og gagnmerki
skólamaður um bækur Bjarna M. Jónssonar
námsstjóra og þau orð tek ég undir af sann-
færingu. Betri né skemmtilegri barnabækur
hefi ég ekki lesið og ég vil enda þessi orð
Bjarni M. Jónsson.
mín með því að 'hvetja skólastjóra og kenn-
ara til að eignast þær í bókasöfn skólanna
áður en þær seljast upp hjá forlagi og bóka-
verzlunum. En gera má ráð fyrir að þær verði
mikið keyptar til jólagjafa, enda er önnur
þeirra, Alfagull, beinlinis jólaævintýri.
Til útgáfunnar er að þessu sinni mjög vel
vandað. Bækurnar em prentaðar á góðan
pappír, með ágætu letri, myndum prýddar
og ódýrar, miðað við núgildandi verðlag.
Sem sagt ódýrar, skemmtilegar og nyt-
samar bækur.
H. Th. B.
Félagsheimili Keflavíkur.
Eins og skýrt var frá i siðasta blaði Faxa
hefur verið beðið eftir áliti stjórnar íclags-
heimilasjóðs á teikningum af félagsheimih í
Keflavík sem þeir gerðu Gunnar Þorsteins-
son og Hákon Hertervig. Svar hefur nú bor-
izt og fellst stjórn félagsheimilasjóðs á að
styrkja félagsheimili í Keflavík að stærð allt
að 6000 rúmmetra. Þá telur stjórnin að fengnu
áliti sérfræðinga „of mikið í fang færst“ að
gera svo stóra byggingu með nýjum bygg-
ingarmáta (á tillöguuppdrætti þeirra G. Þ.
og H. H. var reiknað með ákveðinni gerð
skelþaka, sem er nýjung hér á landi).
A fimdi sem haldinn var í sameignarfélagi
félagsheimilis Keflavíkur 30. nóv. s.l. var til
umræðu framkomin álitsgerð stjórnar félags-
heimilasjóðs og var þar samþykkt að fela
þeim G. Þ. og H. H. að gera nýja teikningu
með tilliti til svars stjórnar félagsheimila-
sjóðs.