Faxi - 01.12.1961, Side 47
F A X I
203
1888. Er gift Magnúsi Magnússyni vkm.
í Reykjavík, Sörlaskjóli 32, eiga mörg börn.
2. Einar GuSmundsson f. 2. febr. 1891,
dó af voðaskoti 12. febr. 1907.
3. Stefanía Guðlaug f. 11. apríl 1900.
Giftist Friðfinni Gíslasyni verkstjóra, Ný-
lendugötu 16, d. 13. júní 1959, eiga fjögur
börn.
Fósturbörn Þórunnar og Guðmundar
voru fjögur:
1. Jónína Pálsdóttir, bróðurdóttir Guð-
mundar. Atti Kristin Jónsson trsm. bróður
Björns skipstjóra frá Ánanaustum.
2. Þórunn Ingibjörg Pálsdóttir, bróður-
dóttir Þórunnar, f. 25. ágúst 1897 í Hvhr.
m. Bjarni Nikulásson vélstjóri, Bræðra-
borgarstíg 21C.
3. Gunnar Bjargmundarson, frændi
beggja hjónanna, sjá Árnætt. bls. 146.
Hann kom á 1. ári f fóstur að Hvassahr.,
en þá andaðist Anna Guðrún móðir hans.
Vélstj. í Rvík.
4. Halldóra Sigríður Pálsdóttir, alsystir
Þórunnar Ingibjargar. Hún kom nýfædd
í fóstur rétt eftir aldamótin, en þá andað-
ist Guðbjörg móðir hennar. Halldóra litla
dó hátt á öðru ári.
Ens og sjá má á þessari upptalningu,
hafa þau hjón ekki legið á liði sfnu, þegar
válegir atburðir gerðust í fjölskyldu þeirra.
En gagnkvæm ást og eindrægni ríkti á
milli barnanna og foreldra. Þá var eldri
kynslóðin ekki afskipt á heimilinu, þar
voru alltaf þrír ættliðir og um nokkurt
skeið voru ættliðirnir fjórir, meðan Anna
Jónsdóttir, amma Þórunnar, lifði, en hún
andaðist 22. nóv. 1896.
Um miðjan október 1908 voru opnaðar
sex landssímastöðvar á nýrri símalínu er
lögð hafði verið frá Hafnarfirði suður
með sjó til Gerða í Garði. Stöðvarnar
voru: Hvassahraun, Auðnar, Hábær í
Vogum, Keflavík, Litli-Hólmur í Leiru
og Gerðar. Það féll í minn hlut að vinna
við Keflavíkurstöðina. Kynntist ég því vel
fólki á stöðvunum og varð þetta líkast
stóru heimili, einkum fyrst í stað meðan
lítið var að gera, og það var tekið þátt í
önn og ys dagsins, gleði og sorg, öllu
smáu og stóru, sem gerðist á hverju heimili.
Við vissum, að húsbóndinn í Hvassa-
hrauni lá á spítala í Reykjavík og við vor-
um kvíðin. Nógur var sá ógnar harmur,
sem yfir þetta heimili hafði dunið, er
efnilegum einkasyni var á burtu kippt.
Þessi uggur varð að veruleika. Húsbónd-
inn kom heim, helsjúkur, rétt til þess að
eiga síðustu dagana heima. Guðmundur
bóndi andaðist 10. des. 1910.
Þórunn tók þessum harmi með hetju-
dug. Hún hélt áfram búi með börnunum,
móður sinni og Margréti Matthíasdóttur,
er lengi hafði verið í Hvassahrauni, góð
kona og fyrirtaks dyggðahjú. Vorið 1914,
er yngstu börnin fermdust, seldi Þórunn
jörð og bú og flutti til Reykjavíkur með
hópinn sinn, ásamt Ingibjörgu móður
sinni og Margréti. Var þá lokið búsetu
þeirra fimm ættliða í Hvassahrauni.
Ekki mun Þórunn hafa verið rík af
veraldarauði, er hún hætti búskap og
greiðasölu, því sú fyrirgreiðsla við ferða-
fólk, sem var þar í té látin, mun aldrei
hafa verið nein tekjulind, engum var gert
að skyldu að greiða fyrir sig, og margir
voru svo snauðir, að þeir áttu ekki eyri
til, og aldrei fengu þau hjón neinn opin-
beran styrk til þess að halda uppi greiða-
sölunni. Frú Þórunn andaðist í Reykja-
vík hjá Stefaníu dóttur sinni 8. febr. 1942.
Hafði hún þjáðst af hjartabilun hin síð-
ustu ár. (Morgunbl. 2. júní 1939).
Enn þá má sjá gamla veginn um
Hraunin, bæði í Kapelluhrauninu og
víðar. Er hann nú orðinn gróinn, en furðu
glöggur. Gvendarbrunnur var í hrauninu,
við veginn milli Hvassahrauns og Þor-
bjarnarstaða. Var það skál eða hola í
hraunklöpp, en vatn sitraði í skálina, svo
að alltaf var dreitill í skálinni, sem aldrei
þornaði alveg. En þreytt og þyrst ferða-
fólki, sem um veginn fór, kraup niður við
skálina, signdi sig og drakk svo, ýmist
úr lófa sínum, eða að það lagðist alveg
niður að vatnsfletinum.
Væri vel ef gamla veginum ásamt Kap-
ellunni í Hrauninu og þessum Gvendar-
brunni væri þyrmt, þegar nýr vegur verð-
ur lagður um Hraunin, sem þegar er
byrjað á.
/
U tgerðarmenn!
Verðum byrgir af uppsettri línu og ábót,
línubelgjum, baujjum og bólfærum.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Járn- og skipadeild — Sími 1505
/
U tgerðarmenn!
ALGER NÝJUNG
Höfum fengið frá Þýzkalandi línubala úr plasti.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Jám- og skipadeild — Sími 1505
U tgerðarmenn!
Höfum fyrirliggjandi Hörpu og Rex skipamálningu.
Einnig lestabrons og lestalökk.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Járn- og skipadeild — Sími 1505