Faxi

Årgang

Faxi - 01.05.1979, Side 4

Faxi - 01.05.1979, Side 4
Iii.skup íslands, hr. Sitfurbjörn Einarsson, vígði kirkjuna, en vígsluvottar voru (frá v.) sr. Björn Jónsson, Friðrik Valdimarsson, sr. Bragi Friðriksson og Guðrún Birna Gísladóttir. KIRKJAN í Ytri-Njarðvík var vígð á sumardaginn fyrsta að viðstöddu fjölmenni. Biskup íslands, hr. Sigurbjörn Einars- son, vígði kirkjuna og var prcstur sr. Ólafur Oddur Jóns- son. Vígsluvottar voru sr. Björn Jónsson, sr. Bragi Friðriksson, Friðrik Valdi- marsson og Guðrún Birna Gísladóttir, ekkja sr. Páls heit- ins Þórðarsonar sem þjónaði Njarðvíkurprestakalii þar til hann féll frá sl. haust. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju söng við athöfnina og aðstoðuðu hljóðfæraleikarar úr Sinfóníu- hljómsveit Islands, en stjórn- andi var Helgi Bragason. Ein- söng sungu Elísabet Erlings- dóttir, Guðmundur Sigurðsson og Halldór Vilhelmsson. Kirkjan í Innri-Njarðvík hef- ur lengst af verið sóknarkirkja Ytri-Njarðvíkinga, en Ytri-Njarðvík varð sérstök sókn 1968. Framkvæmdir við kirkju- bygginguna hófst í september 1969 en Örnólfur Hall og Orraar Þór Guðmundsson teiknuðu hana. Kirkjuvígsla í Njarövík: HVERNIG VAR ÞETTA HÆGTÁTÍUÁRUM? Herra biskup yfir íslandi og frú, herra prófastur yfir Kjalar- nesprófastdœmi og frú og þið öll, sem hér eruð samankomin gestir og heimamenn. Eg bið ykkur öll hjartanlega velkomin hingað til þessarar eftirmið- dagskaffidrykkju. Til þessarar samkomu er efnt af sóknar- nefnd, systrafélagi Ytri-Njarð- víkursóknar og kvenfélaginu Njarðvík til þess að fagna þeim áfanga, sem náðst hefir í dag í trúar og öðru menningarlífi Njarðvíkinga. Okkur þykir sem áfangi þessi sé mjög stór og vœntum við þess að við munum njóta þess starfs sem hér hefir verið unnið um ótalin ár. Með nokkrum orðum mun ég nú leitast við að lýsa stöðu Y-Njarðvíkinga í kirkju og safnaðarmálum í gegnum tíðina, byggingu kirkjunnar og því hvernig þetta hefir tekist, á þó ekki lengri tíma en raun ber vitni. Kirkjan í Innri-Njarðvík var sóknarkirkja Y-Njarðvíkinga í gegnum aldir. í I-Njarðvík er fyrst getið um kirkju í kirkju- skrá Páls biskups Jónssonar um I2oo. Njarðvíkurkirkja til- heyrði Hvalnesþingum en var lengst af þjónað af prestum, sem sátu íKirkjuhvoli íHöfnum. Árið 1810 var Njarðvíkur- sókn lögð til Kálfatjarnar- prsetakalls. Mun Kálfatjarnar- prestur hafa þjónað Njarðvík- urkirkju allt til ársins 1917 er kirkjan var lögð niður og Njarðvík, Innri og Ytri samein- uð Keflavíkursókn í Útskála- prestakalli. Þannig stóðu málin til ársins 1944 er kirkjan í I- Njarðvík var endurreist. Varð þá I-Njarðvík sérstök sókn, en Y-Njarðvík fylgdi Keflavík áfram. Árið 1952 var stofnað Kefla- víkurprestakall með tveimur sóknum, Keflavíkur (Keflavík og Njarðvík) og I-Njarðvíkur- sókn. Árið 1968 varð Y-Njarðvík sérstök sókn. Árið 1964 var stofnuð Keflavíkursókn B. vegna íbúa á Keflavíkurflug- velli og starfsfólks þar. Þessi B. sókn heyrði undir Utanríkis- ráðuneytið Guðsþjónustur voru haldnar í lögreglustöðinni í Grœnási. Við stofnun Y-Njarðvíkur- sóknar var Keflavíkursókn B. lögð niður og runnu eignir hennar til Y-Njarðvíkursóknar og íbúar þar síðan í Y-Njarð- víkursókn. Stofnun Y-Njarðvíkursókn- ar bar upp á 28. jan. 1968. Var þá kosin sóknarnefnd, sem að mestu er óbreytt enn. Guðs- þjónustur hafa þetta tímabil verið haldnar í félagsheimilinu Stapa og þökkurn við fyrir það langa og góða samstarf. Strax á fyrstu fundum sókn- arnefndarinnar var rœtt um kirkjubyggingu í Y-Njarðvík og var það raunar eðlilegt áframhald, sem uppi hafði verið um alllangt skeið um það mál. Upphaf þeirrar hugmyndar er hœgt að rekja til þess að hinn 8. maí 1948 stofnaði heiðurskon- an Þórlaug Magnúsdóttir í Höskuldarkoti Kirkjubygg- ingasjóð Y.-Njarðvíkur „til minningar um unga látna ást- vini frá Höskuldarkoti". Stofn- fé sjóðsins var kr. 1000.00. ákvœði skipulagsskrár voru m.a. að þegar höfðustóllinn hefði náð því að vaxa í kr. 1000.000.00 skyldi sjóðnum varið til kirkjubyggingar í Y,- Njarðvík. Þá var einnig mœlst til þess að vígsla kirkjunnar fœri fram 1. sumardag. Á útmánuðum og vormánuð- um 1968 var rœtt við skipulags- nefnd í Njarðvík og skipulags- stjóra ríkisins, og biskup íslands um stærð og staðsetn- ingu kirkjunnar og var henni valinn staður á milliBrekkustígs og Reykjanesvegar. 23. maí 1968 voru samþykktir til verks- ins arkitektarnir Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall. 14. mars 1969 voru í sóknarnefnd samþykktar teikningar að kirkjunni og kosnir í byggingarnefnd þeir Friðrik Valdimarsson, Guð- mundur Gunnlaugsson og Oddbergur Eiríksson. Verkfræðistofan Hönnun s/f hafði þá verið fengin til að annast verkfrœðistörf við bygginguna og höfðu þeir gert kostnaðaráœtlun, sem hljóðaði upp á fjórar milljónir króna og má vel vera að sú áœtlun hafi FAXI — 4

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.