Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1979, Síða 5

Faxi - 01.05.1979, Síða 5
farið nœrrí lagi ef upphœðir allar vœru reiknaðar í alnum eða fiskum. Hinn 13. september 1969 í mikilli rigningu hófust fram- kvœmdir á lóð kirkjunnar að undangenginni helgistund. Guð- laug Stefánsdóttir frá Þórukoti stakk fyrstu skóflustunguna með aðstoð tveggja lítilla stúlkna. Að því búnu hófu stórvirk tœki störf. Við þetta tœkifœri mun ég ekki rekja byggingarsögu þessa húss nákvæmlega skref fyrir skref, aðeins geta verktaka. Arkitekta er þegar getið og einnig verkfrœðinga. Fyrsti byggingarmeistarinn var Hjalti Guðmundason Keflavík, skilaði hann húsinu upp úr jörð með gólfplötu. Næstur til þess að veita verki þessu forstöðu var Grétar Haraldsson Njarð- vík, byggði hann vesturhluta byggingarinnar, safnaðarsal, anddyri og skrifstofu. Að síðustu kom til sögu fyrirtœkið „Hús og innréttingar” í Sand- gerði og hafa þeir innt af höndum smíðavinnuna tilþessa dags. Múrarameistari hefir lengst af verið Trausti Einars- son Njarðvík og hefir hann einnig annast járnalögn. Nú síðasta sprettinn hefir Tómas Hansson annast múrverk. Raf- virkjameistarí við húsið frá byrjun hefir verið Ingólfur Bárðarson Njarðvík. Málara- meistari hefir verið Ólafur Guðmundsson Njarðvík. Hita- lögn í gólfin lagði Sigurður Guðmundsson Kópavogi en röríagnir að öðru leyti þeir feðgar Asbjörn Guðmundsson og Guðbjörn Ásbjörnsson Njarðvík. Kirkjuhurðirnar, eins og annan innri frágang í kirkjunni teiknaði Gunnar G. Einarsson starfsmaður á Arki- tektastofunni. Eirsláttinn á hurðirnar framkvœmdi Þorkell Skúlason Kópavogi en hand- föngin eins og fleiri járnsmíða- vinnu fyrir húsið voru unnin í Vélsmiðju Ol. Ólsen Njarðvík. Ágúst Guðjónsson blikksmiður í Keflavík hefir unnið eirvinnu, sem er nokkuð mikið afíkirkj- unni s.s. á altarisgrátum, predikunarstól, gólflistum o.fl. Hitateikning var unnin af Fjarhitun í Reykjvík en raf- teikning af Tryggva Sigur- bjarnarsyni Reykjavík. í upptalningu þessari er að- eins getið verktaka í hinum ýmsu greinum byggingarvinn- unar og þökkum við þeim öllum fyrir þeirra þátt í þessari framkvœmd allri. Einnig þökkum við öllum þeim starfs- mönnum, sem hér hafa unnið á vegum verktaka og hafa þeir skilað góðu verki í öllum greinum. Það veldur vissulega nokkru óhagrœði þegar ekki er hægt að /talda viðstöðulaust áfram við húsbyggingu. í hvert sinn, sem hlé verður á fram- kvœmdum þarf að vissu marki að fitja upp á þegar hafist er handa á ný. En allir okkar starfsmenn hafa verið umburð- arlyndir og skilið okkar aðstöðu. Við fœrum þeim öllum okkar alúðar þakkir. Þá þökkum við fjölmörgum konum og körlum, sem hafa rétt okkur hjálparhönd með sjálfboðaliðsvinnu við bygginguna og einnig ýmis- konar fyrirgreiðslu, sem engin greiðsla hefir verið innt fyrír. Blessist þeirra hugir og hendur. Þá vil ég hér nefna fram- kvœmdarsjórann okkar við bygginguna frá árinu 1977 Friðrik Valdimarsson. Án þess að á aðra sé hallað held ég að það gœti orkað tvímœlis að við hefðum getað vígt kirkjuna á þessum degi eða á þessu ári ef hans hefði ekki notið við hvað varðar samtengingu verka og úrlausna í margskonar vanda- málum smœrri og stærri. Þegar húsi er lýst þá er greint frá nokkrum tölum og er því fordæmi fylgt hér. Gólfflötur jarðhœðar er 400 m2 í kjallara 108 m2. Mesta hœð í kirkjunni fyrir utan turn er 8 m. Hœð á turnspíru er 23 m. í kirkjunni er œtlað rúm fyrir 230 sœti og 100 í safnaðarsal. Lóðarstœrð er óákveðin. Kirkjan stendur í norðanverðu svæði sem að öðru leyti er hugsað sem skrúð- garður. Byggingarleyfinu fylgdi sú kvöð að ekki yrði hreyft við fornum görðum og götum að kórbaki. Það sem sérstaka athygli vekur í sambandi við þetta hús, fyrir utan það hvað það er sér- stakt ogfagurt eru fyrst klukk- urnar í sínum klukkuturni. Þœr eru smíðaðar hjá Portilla Linares í Santander á Spáni. Þœr eru þrjár, 400 kg. 290 kg. 200 kg. Hljómar þeirra eru La- Do-Re. Þá hurðirnar, sem eru að heita má frumvinna hér á landi fagrar og traustar. Gluggarnir eru þannig gerðir að rúðurnar eru felldar í steinfög að undan- teknum turngluggum. Aðþessu leyti eru báðar Njarðvíkur- kirjurnar ísömu fjölskyldunni. Hitalögnin er einstakt verk og frumverk í húsum hér í landi. Net af sérstökum plast- rörum er lagt í gólfið. Hita- veituvatnið er tekið inn með 60 gráðu hita. Hitanum til síðustu kaloríu er náð úr vatninu svo að 71. m. duga til þess að hita húsið. Fleiri merkilega hluti mœtti telja í sambandi við þetta hús en sú upptalning verður ekki höfð lengri að sinni. Einn þátturinn í þessari þulu, er að gera grein fyrir því hvernig þetta var hœgt á ekki lengri tíma en raun ber vitni. Tíu árin frá því að fyrsta skólfustungan var stungin eru ekki liðin fyrr en 13. sept. í haust og Y.-Njarðvíkursókn er ekki í tölu þeirra fjölmennari. En við höfum átt góða að allan tímann. I fyrsta lagi félög og hópa, sem hér verða nefndir án þess að getið sé hve framlag hvers er mikið. Ég nefni fyrst Kvenfélagið „Njarðvík” það hófst handa með söfnun fyrir kirkjubyggingunni í Y.-Njarð- vík. Síðan koma í þéttri fylk- ingu Systrafélag Y.-Njarðvíkur kirkju, Brœðarfélag Y.-Njarð- víkurkirkju, Lyonsklúbbur Njarðvíkur, Sveitarfélagið, Sóknirnar sem að Y.-Njarð- víkursókn liggja, Sparisjóður Keflavíkur og hlutaveltubörn- in. Þá nefni ég biskup íslands og embœttið, sem hann stýrir og að síðustu Gísla Sigurbjörns- son og hans fjölskyldu og er framlag þeirra svo stórt og fjöl- þœtt að sérstaka aðdáun vekur. Þá hafa fjölmargir einstakl- ingar rétt okkur hjálparhönd með fjárframlögum smærri og stærri og einnig í gjöfum í munum. Athygli vekur hve þeir eru margir í þessari sveit, sem Söngstjórí, kór, biskup og prestar ganga til vigsluathafnarínnar, Fremstur gengur Gísli Páll Pólssou. FAXI — 5

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.