Faxi - 01.05.1979, Page 13
hafa eingöngu nú verið seldar
vörur gerðar af konum hér
víðsvegar af Suðurnesjum og er
það vissulega ánægjuleg þróun.
Skipting sölu eftir uppruna
vörunnar.
Vörur úr ull..........71,7°/o
Vörur úr skinnum . . 5,6%
Skartgripir ........... 4,5%
Keramik................ 2.4%
Matvæli................. 5,9%
Aðrar vörur............ 10,5%
100,0%
Gjaldeyrisskil
Árangurinn af starfsemi
fyrirtækisins hefur verið mjög
góður að mati allra sem nálægt
sölumálum íslenzkrar iðnfram-
leiðslu koma. Margar nýjar
framleiðsluhugmyndir og end-
urbætur hafa þróast með og
fyrir tilstilli fyrirtækisins og
fjölmörg ný viðskiptasambönd
milli framleiðenda og erlendra
heildsölu- og smásölufyrir-
tækja hafa myndast. Á siðast-
liðnu rekstrarári nam vörusala í
verzluninni kr. 518. milljónir.
Langhæztur hluti sölunnar er
til útlendinga og á s.l. ári skil-
aði fyrirtækið 92,34% sölunn-
ar í erlendum gjaldeyri. íslenk-
ur markaður h.f. var þvi sem
fyrr annar stærzti aflandi
gjaldeyris v/ferðamarina í
landinu eftir Flugleiðum h.f.
Skattagreiðslur fyrirtækisins á
árinu námu um 40 milljónum
króna og launa kostnaður 79
milljónir króna.
Steinunn Guðnadóttir
sölustjóri póstverzlunar.
Postverzlunin
Eins og ákveðið var strax í
upphafi og reynzlan hefur sýnt,
gæti varningur sá sem er á boð-
stólum í verzlunum átt vísa
kaupendur víða annarsstaðar
ef hægt væri að koma honum á
framfæri. Var því hafist handa
strax eftir opnun verzlunarinn-
ar að undirbúa og gefa út póst-
pöntunarverðlista og hefja
póstverzlun. Hafa verið gefnir
Elías Guðmundsson
aðstoðarverzlunarstjóri.
út 8 listar. S.l. haust kom nýj-
asti listinn út en hann er 36 lit-
prentaðar síður og er gefinn út í
1C0.000 eintökum. Þessum list-
um hefur verið dreyft víða um
lönd og eru viðskiptamenn sem
panta reglulega úr honum frá
öllum heimsálfum en þó aðal-
lega frá Bandaríkjunum.
Póstsalan á s.l. ári nam 44
milljónum króna.
Bygging iðnaðarog
lagerhúsnæðis
Frá stofnun fyrirtækisins
hafa vörugeymslur fyrirtækis-
ins verið utan vallarsvæðisins.
Fyrir tveim árum var fest kaup
á húsinu Bolafót 11 í Njarðvík
og er þar nú prjónavörumót-
takan og vörugeymslan til
húsa. Vegna umræðna um
byggingu nýrrar flugstöðvar
var ákveðið að tryggja hentugt
húsnæði innan byggðar í Kefla-
vík en sem næst hinni væntan-
legu flugstöðvarbyggingu.
Byggingarlóð var fengin og
búið er nú að reysa 940 m2 hús
við Iðavelli 14b sem notað
verður fyrir lagerhúsnæði og
síðar meir fyrir iðnaðarstarf-
semi.
Miklar sviftingar eru nú í
flugmálum og flugi yfir N-At-
landshafið. Nýjar og stærri
flugvélategundir geta flogið
yfir hafið án millilendinga.
Mikið er þó enn um flugvélar
sem þurfa að taka eldsneyti en
samkeppni millilendingaflug-
valla á þessari flugleið er mikil
og einungis réttlát lendingar-
gjöld og þjónustugjöld og sam-
keppnisfært eldneytisverð
getur haldið Keflavíkurflugvelli
inn i myndinni á næstu árum.
Ljósmyndir:
Ljósmyndastofa Suðurnesja
krðnínn
KRANAR ávallt til leigu!
Frá 15 - 30 tonna lyftigeta, í allar
hugsanlegar hífingar, steypu, landanir
og símar KRANANS eru 1803 og 2224.
Símar kranamanna:
Pétur Jóhannsson
Helgi Guðleifsson
Jón Þór—1752
2656
2203
GARÐYRKJUÁHÖLD:
Garðgaflar
Stunguskóflur
Garðhrífur
Ristuspaðar
Klóru og skóflusett
Heyhrífur
Kantskeri
Trjáklippur
Grasklippur
Garðslanga
Garðúðarar
Garóbörur
Slöngustadíf
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
JÁRN OG SKIP
-
FAXI — 13