Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.05.1979, Qupperneq 22

Faxi - 01.05.1979, Qupperneq 22
SAGNIR AF SUÐUR- NESJUM Sagnir af Suðurnesjum heitir ný bók eftir Guðmund Á Finn- bogason frá Hvoli í Innri-Njarðvík. Kom hún út fyrir síðustu jól, útg. er Setberg. Guðmundur rifjar upp gamlar minningar um menn og málefni sem eru kryddaðar notalegri kímni. Það verður enginn svikinn af þessari bók, enda finnst í henni mikill fróðleikur og grunur minn er margir bíði með eftirvæntingu eftir meiru frá Guðmundi og má hann ekki gleyma kviðlingum sínum. Guðmundur segir í bók sinni m.a. frá Símoni Sigurðssyni og Þórdísi Ófeigsdóttur, konu hans, sem bjuggu í Kóngsgerði í Leiru 1860. Guðmundur yrkir um Símon: Lítið oft þó léti í maga lundu glaða Símon bar. Fátæktina festi á snaga fór að semja skrítlurnar. Hafinn yfir heimsins gengi hungur basl og mæöustand. Grannur sló á gamans strengi gullu hljómarvítt um land. Það er besti auöur öllum andanns gull sem verða kann. Mikiö ofar matardöllum marga gleði Símon fann. Með þessum vísum lýsir Guðmundur Símoni best. þegar ég var að vaxa úr grasi í Garð- inum hcyrði ég marga brandara hafða eftir Símoni og lifa þeir enn á vörum manna. Skulu nokkrir þeirra sagðir hér eins og ég man þá best. Árið 1860 búa í Kóngsgerði í Leiru Símon Sigurðsson, 34 ára ættaður úr Sigluvíkursókn og kona hans Þórdís Ofeigsdóttir, 31 árs, ættuð úr Njarð- víkursókn. Eitt barn var hjá þeim þá, Sigurður 3 ára. Árið 1860 er kaupmaður í Keflavík sem hét Pétur Duus, 65 ára. Símon átti oft erindi í verslun Duus enda líka bytt- an þar á stokkum en Símoni þótti sop- inn góður. Símon þótti orðheppinn og fljótur til svara og rnargir brandarar eftir honum hafðir sem flestir eru geymdir, þó skal rifja upp nokkra: Kóngsgerði var talið til tómthúsa en þó mun hafa verið þar smá túnblettur. Eitt sumar voru þau hjón að taka saman heytugguna vildi Símon leggja lítið undir sátuna til þess að fá hana sem hæsta. Svo kom að því að Símon náði í stiga og rétti Þórdís honum hey- tugguna. Þegar allt heyið var svo komið í sátuna fer Símon upp á hana og kallar: „Er logn á jörðu Þórdís mín“. Með þessu vildi Símon láta það út ganga að í Kóngsgerði væru há hey. Eitt vor var Símon að þurrka vertíð- arfiskinn sinn á klöppunum fyrir neðan Kóngsgerði. Staflaði hann fiskinum í stakk rétt fyrir ofan flóðfarið en um nóttina gerði austan strckkings vind með nokkrum sjógangi og fór allur staflinn í sjóinn. Morguninn eftir kemur nágranni Símonar á gluggann til hans og segir að allur fiskurinn sé kominn í sjóinn en Símon rís upp með hægð og segir: „Hann átti með það blessaður sjórinn, hann var úr honum hvort sem var“, og Símon lagði sig til svefns aftur. Nú var ástandið eigi gott hjá Símoni; út-skrift hjá verslun Duus í Keflavík ekki fáanleg þar sem inn-skrift var farin í sjóinn, en Þórdís var að nudda í Símoni að eitthvað yrði að taka til ráða þar sem allur matur væri á þrotum. Símon tekur tóman poka og fer til Keflavíkur, hittir kaupmann Duus og skrökvar því að honum að ástandið sé ekki gott hjá sér: Nú hafi konan dáið í morgun og ekkert sé til í kotinu og það sé ansi slæmt að geta ekki gefið lík- mönnunum kaffisopa og hvort hann Duus geti ekki látið sig hafa útskrift þegar svona standi á. Duus vorkennir Símoni og lætur hann fá kaffi, sykur, mjöl og ýmislegt fleira. Símon fer glaður með pokann á bakinu syngjandi út Hólmsberg til Þórdísar sinnar og verður af þessu nokkur kátína. Nokkru seinna fer Símon til Kefla- víkur og kcmur i verslun Duus. Pétur Duus var feitur og mjög hóstagjarn. Þegar Duus sér Símon kallar hann til hans: „Ilvcrnig líður konunni þinni, Símon minn“. Símon svarar um hæl: „Og hóstað gat hún fyrir fitunni í morgun“. Nú líða nokkrar vikur þar til Simon kemur í verslunina Duus. Pétur Duus sér Simon, kallar til hans og býður hon- um innfyrir búðarborðið og inn á skrif- stofu. Símoni finnst þetta nokkuð skrítið og er við öllu búinn. Pétur Duus tekur vindlakassa og réttir Símoni vindil en áður hafði Duus sett púður i vindilinn. Duus varð að fara fram í búð til að ná í eldspitur. Á meðan skiftir Símon um vindil, tekdur vindil Péturs og lætur sinn í staðinn. Nú kemur Pétur inn með eldspýtustokkinn kveikir í vindlinum. Setjast þeir síðan hver á móti öðrum og ræðast við í léttum dúr. Allt í cinu springur vindillinn í munni Péturs. Þá stendur Símon upp og segir: „Er nú fjandinn að sækja þig Duus.“ Eina vertíð er Símon bjó í Kóngs- gerði var ótiðarsamt. Lá mikið í norðan- og austanáttum. Gaf ekki á sjó og fiskmeti upp gengið þar í norðan- áttum. Símon fer með tvo hesta og ætlar að kria út fiskmeti sér til bjargar. Hann kemur á eitt stórbýlið í Höfnum þar sem hann var vel kunnugur. Hús- frúin var smávaxin og fíngerð kona og hjartahlý. Hún var með herðakistil á baki sem myndaði kryppu. Húsfrúin kemur út þegar hún sér Símon og segir: „Ósköð er að sjá hestana þína Símon minn, þeir eru svo horðair og járna- lausir“. Símon svarar að bragði: „Já og já, þeir eru ckki farnir að setja upp kryppuna enn kona góð.“ Eitt sinn fór Símon til kirkju að Út- skálum, en hann fór oft til kirkju. Prestur á Útskálum var þá merkisprest- urinn síra Sigurður B. Sívertsen. Hann kom oft inn á skaðsemi víns i stólræð- um sinum. Eftir messu kemur prestur til Símonar, hcilsar honum og spyr hvort honum hafi ekki líkað ræðan. Símon svarar: „Og já og já — glös voru á borðum hjá Salomon konungi en ckki vissi ég hvað í þeim var og blessuðum frelsaranum okkar þólti sopinn góður, enda útbýtt við altarið." Njáll Benediktsson. Minning: Agnar Júlíusson frá Bursthúsum Nýtt ár hefur heilsað. Hækkandi sól boðar komandi vor, sigur lífs- ins í ríki náttúrunnar. Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi.“ Ég vil gera þau dýrðlegu fyrirheit að yfirskrift örfárra minningarorða um mág minn og kæran vin, Agnar Júlíusson, sem lést á Landspítalanum 19. jan. síðast liðinn. Minningarnar frá meira en þrjátíu ára kynnum leita nú á hugann, og allar eru þær bjartar og hlýjar. Agnar Júlíusson var fæddur 10. des. 1903. Foreldrar hans voru hjónin Agnes Ingimundardóttir og Júlíus Helgason, sem lengu bjuggu í Bursthúsum á Miðnesi. Agnar ólst upp í stórum systkinahópi. Á þeim árum voru lífskjör íslenskrar alþýðu erfið og fast varð að sækja á sjó og á landi, til þess að afla lífsbjargar. Reyndi því snemma á þor og manndóm uppvaxandi kyn- slóðar og mun Agnar ekki hafa látið sitt eftir liggja á þeim vettvangi. Hann byrjaði ungur að sækja sjó á opnum róðrarskipum með föður sínum og bræðrum. Agnar dvaldi löngum á heimili foreldra sinna, og reyndist þeim ávallt hjálpfús og traustur sonur. Eink- um móður sinni, er sjúkleiki sótti hana heim á efri árum. Og lýsir það betur en nokkuð annað hugar- fari þessa mæta manns. Árið 1945 kvæntist Agnar Kristínu Sigurð- ardóttur, mikilhæfri ágætis konu, og byrjuðu þau búskap í Bursthús- um. Þau eignuðust 5 dætur og einnig gekk Agnar í föðurstað, dóttur Kristínar, er fluttist ung með móður sinni að Bursthúsum. Allar eru j)ær myndar- og efnis- stúlkur. Á heimili þeirra ríkti ávallt gestrisni, alúð og hlýja, og þar var gott að koma. En erfiðleik- ar sóttu snemma að heimilinu. Kristín átti oft við mikla van- heilsu að stríða og varð að dvelja langtímum á sjpkrahúsi. Þá reyndi mikið á Agnar og ungar dætur þeirra. En þar fór enginn meðal- maður. Agnar var hlutskipti sínu vaxinn. Glaður og traustur mætti hann hverri raun, og gekk með sigur af hólmi. Sjálfur átti Agnar einnig við vanheilsu að stríða á fullorðinsárum, og dvaldi um skeið á Vífilsstaðahæli. En einnig þar gekk hann með sigur af hólmi, og náði aftur allgóðri heilsu. „Verið ávallt glaðir,“ stendur í helgri bók. Og þau orð voru vissu- lega aðalsmerki þessa látna vinar Hann var ætíð glaður, hvað sen mætti honum á langri æfi, og gat miðlað öðrum af sínum góðu eðlis- kostum. Einn af hinum fegurstu þáttum sannrar gleði er söngur- inn. Agnar hlaut í vöggugjöf góða söngrödd. Hann byrjaði ungur að syngja í kór Hvalsneskirkju og átti þar á söngloftinu um áraraðir sínar dýrmætu gleðistundir í hópi góðra félaga, eða uns hann fluttist búferlum úr Hvalsnessókn. Árið 1976 missti Agnar Kristínu konu sína. Eftir það hélt hann heimili með dætrum sínum og bjó að Sunnubraut 8 í Keflavík. Góður maður er genginn. Ég votta dætrum hans, dætrabörnum og tengdasonum dýpstu samúð mína, og bið þeim blessunar um framtíð alla. Kæri mágur og vinur, af alhug þakka ég þér, að leiðar- lokum, alla þá hlýju og góðvild, sem þú sýndir mér frá fyrstu kynnum. Blessuð sé þín bjarta minning. I.S. FAXI — 22

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.