Faxi - 01.10.1980, Síða 5
Fórst þú aö kenna að námi
loknu?
„Vorið sem ég útskrifaöist
fór ég að vinna á Keflavíkur-
flugvelli við gæslustarf í liði
Guðmundar Arngrímssonar.
Þar vann ég svo í þrjú ár og
beið átekta varðandi kennslu
starf, sem að sjálfsögðu var
markmiðið.
Þá varst þu ógiftur og bjóst
hjá Hallgrími?
„Já. Hallgrímur og Lóa
Þorkelsdóttir, kona hans,
leigðu mér og það má
næstum segja að þau voru
mér bæði sem foreldrar og
fræðarar. Ég hef síðan borið
mikla virðingu fyrir þeim
ágætu hjónum. Þau voru
bæði miklar hugsjóna- og
baráttumanneskjur, höfðu
mikinn áhuga fyrir fræðslu-
og uppeldismálum. Svo var
það haustið 1952 að Hall-
grímur sagði mér frá því ai
kennara vantaði í mínum
fögum við Barna- og Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur. Hann
hvatti mig til að sækja um
stöðuna og hefur sjálfsagt
lagt mér gott orð á réttum
stað. Ég fékk stöðuna og hef
verið í henni síðan".
,,Hvernig var kennsluaó-
staöan fyrir þessar greinar?
,,( byrjun var aðstaðan
nokkuð frumstæð en
þróaðist furðu fljótt til þeirrar
aðstööu sem trúlega er hvað
best hér á landi, miðað við
grunnskóla. Margir kennarar
víðsvegar að af landinu hafa
komið hingað til að skoða
aðstöðuna. Eg vil nota
tækifærið til að þakka bæjar-
yfirvöldum fyrir þeirra fram-
sýni og skilning varðandi
þennan þátt skólastarfsins,
enda reyndist þar aðstaða
við allra hæfi er Baðstofan
byrjaði".
Hvenær hófst starfsemi
Baöstofunnar og hver voru
tildrög aö henni?
,,Við byrjuðum á þessu vet-
urinn 1968. Nú, tildrögin, já,
þetta átti náttúrlega margar
rætur. Kannski hefur
hugmyndin kviknaö við um-
ræður okkar Hallgríms um
uppeldisgildi gömlu baðstof-
unnar og tengsli milli
kynslóðanna, sem beðið
hafði hnekk við breytta lífs-
hætti þjóðarinnar".
Þú sagöir aö Baöstofufólk-
iö heföi sest aö i hand-
menntakennslustofu þinni
og væri þar enn?“
Já, það er rétt. Rögnvaldur
Sæmundsson skólastjóri, sá
ágæti maður, leyfði þá heim-
ilisfesti, sem síðan hefur
Listaverk þetta eftir Erling heitir „Menningarvitinn". Eins og þeir ágætu menn, þá lýsir Ijós hans aóeins
fram á nefið, en samt heldur hann sig sjá allan heiminn.
verið búið við. Satt að segja
held ég að skólinn hafi hlotið
nokkra virðingu af þessu
framtaki, því þetta mun trú-
lega hafa veriö fyrsti klúbb-
urinn á landinu sem hafði
þessar handíðir (alþýöulist)
að markmiði. Margir iðnað-
armenn komu þarna.ýmisttil
að aðstoða eða til að nema.
Gamli baðstofuandinn var í
hávegum hafður, allir voru
virkir og samstarfið var gott.
Vilt þú nafngreina ein-
hvern öörum fremur af
þessum gömlu iönmeistur-
um, sem gengu þarna bæöi
kennslu- og námsbraut?
,,Það er kannski erfitt að
gera það. Þó hygg ég að ég
geri engum rangt til, þó að ég
nefni hér Óskar Kristjánsson
á Brautarhóli í Ytri-Njarðvík,
sem er listelskur trésmíða-
meistari og snillingur í hönd-
unum. Hann tók þátt í flest-
um greinum iðju okkar og
leiðbeindi mikið varðandi
tréverk.
Hvaö er þér nú minnis-
stæöast frá þessu starfi þinu
viö kennslu og i Baöstofu-
starfinu?
„Þegar ég lít yfir farinn veg
í þessum efnum, gleðst ég
yfir þeim mikla árangri sem
náðst hefur. Árangurinn
hefur óneitanlega staðfest,
að undir vallarvæng veröur
síður en svo fundinn nokkur
Sódóma eða Gómorra, eins
og ýmsir landsmenn virðast
álíta. Ótrúlegur fjöldi ein-
Hér glímir Erlingur viö aö gera leirmynd af einum góðborgara bæjarins.
staklinga hefur sýnt það með
áhuga sínum og afrekum, að
hér er mjög góður efniviður.
Brjóstvörn íslensku þjóðar-
innar og menning hennar
hefur að því leyti síður en svo
bilað. í þeimefnumerhéralls
engin lægð. Til viðbótar því
er að framan getur má benda
á mjög þróttmikið tónlistar-
líf. Við eigum í fullu tré við
alla aðra landshluta, hvað
það snertir.
Hver er ástæöan fyrir þvi?
„Hingað hefur leitað kjarn-
mikið og þróttmikið fólk
hvaðanæfa að af landinu.
Það reif sig upp frá kyrrstöðu
og dofa, frá þeim þyrnirósar-
svefni, sem lamaði flestar
byggðir landsins eftir krepp-
una miklu 1930-40. Hérfékk
það góðar móttökur heima-
manna og samstarfsgrund-
völl til nýrra viðfangsefna,
sem jók því bjartsýni, atorku
og þor til átaka og sköpunar
á ýmsum sviðum lista, sem
það hafði varla hugmynd um
að leyndist með því.“
Hvaö er nú framundan?
„Það stendur til að fara til
Noregs í haust í framhalds-
nám í myndlist - skúlptúr -
Framh. á sföu 122
FAXI - 121